Skessuhorn - 08.06.2022, Qupperneq 24
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 202224
Eftir hartnær 50 ár til sjós og í
störfum tengdum sjómennsku hef-
ur Erling Þór Pálsson á Akranesi
látið að mestu staðar numið hjá
Faxaflóahöfnum og hætti form-
lega störfum 1. maí síðastliðinn en
þar starfaði hann frá árinu 2006.
Lengst af var hann fyrsti stýrimað-
ur á Vikingi AK-100 frá Akranesi.
Eftir árin á Víkingi gerði hann
stuttan stans hjá Norðuráli og síð-
an hjá Fiskistofu áður en hann réði
sig til Faxaflóahafna sem hafnsögu-
maður.
Fyrsta sjóferðin fékk
snöggan endi
Erling Þór vissi strax sem krakki
og unglingur hvert stefndi. Sjó-
mennskan átti hug hans allan. „Sem
krakki var ég alltaf að teikna báta
og skip og svo smíðaði ég báta líka
m.a. úr olíubrúsum og ferðirnar
voru ófár niður á bryggju að skoða
bátana. Eitt skiptið gengum við, ég
og Pálmi heitinn Guðmundsson,
aðeins lengra og tókum lítinn bát
traustataki sem lá við bryggjuna og
ætluðum að róa til fiskjar og veiða
í soðið. En það var einhver þarna
sem sá til okkar þegar við vorum
komnir alveg út í hafnarkjaftinn og
komin smá undiralda. Hann kall-
aði til okkar og sagði okkur að snúa
við þar sem ekkert austurtrog væri
í bátnum og svo væri ómögulegt að
halda til veiða án þess að fá sér að
borða fyrst. Við féllumst á þetta og
snérum við. Þannig fékk fyrsta sjó-
ferðin mín snöggan endi.“
Skipstjórinn kunni ráð
við sjóveikinni
Erling byrjaði á sjó 14 ára gam-
all á Önnu SI. Þar var hann í einn
mánuð. Neyddist til þess að hætta
vegna sjóveiki. „Ég var hræðilega
sjóveikur og var alveg búinn eftir
þennan tíma, náði ekkert að borða.
Fór síðan á Sigurfara AK og það var
sama sagan þar, sjóveikin að drepa
mig. Síðan var það þriðja sumar-
ið mitt á sjó árið 1970. Þá réði ég
mig á Höfrung III með Kristjáni
Péturssyni skipstjóra. Ég man eft-
ir því þegar að pabbi keyrði mig
til skips og sagði ákveðinn að þetta
yrði í síðasta skipti sem hann keyrði
mig ef úthaldið yrði ekki meira og
betra en á síðustu sumarvertíð-
um hjá mér. En Kristján skipstjóri
kunni ráð. Hann kom við í sjoppu
og keypti kassa af Coke og lét mig
fá flösku úr kassanum þegar ég fann
til sjóveiki og það virkaði heldur
betur og ég fann ekki fyrir sjóveiki
og sjóaðist um leið og hef varla
fundið fyrir því síðan. Um haustið
fór ég í Iðnskólann á Akranesi og
fór síðan á Gróttuna með Guð-
mundi heitnum Sveinssyni og síðan
á Jörund III með Runólfi heitnum
Hallfreðssyni.“
Erling ákvað síðan að fara í Stýri-
mannaskólann í Vestmannaeyjum í
byrjun september 1972 og var þar
haustönnina, en í janúar 1973 hófst
Vestmannaeyjagosið og allt breytt-
ist.
„Þegar ég var á Jörundi III var
með mér um borð Kristján Krist-
jánsson, sem var ættaður úr Eyjum.
Ég var þá að velta fyrir mér að fara í
Stýrimannaskólann. Kristján sagði
að það væri ekki spurning að ég
ætti að fara í skólann úti í Eyjum,
hann væri miklu betri en skólinn í
Reykjavík. Að áeggjan hans ákvað
ég að fara til Vestmannaeyja og sá
ekki eftir því og hefði viljað vera
þar lengur en eftir að gosið hófst
var hann fluttur til Reykjavíkur og
ég kláraði hann árið 1974.“
Eftir námið var Erling með Sím-
oni heitnum Símonarsyni á Víði og
síðan á Bjarna Ólafssyni, sem stýri-
maður á Sæfara með Einari heitn-
um Gíslasyni. „Síðan lendi ég suð-
ur í Garði á Jóni Finnssyni og kem
svo aftur á heim á Akranes og er
á Sigurborginni með Árna Sig-
mundssyni.“
Réði sig á
Víking AK-100
„Haustið 1976 var Víkingur AK
sendur til Noregs þar sem gerð-
ar voru miklar breytingar á hon-
um og þá sæki ég um pláss á honum
og byrja þar í febrúar 1977. Byrjaði
þar sem háseti og er orðinn fyrsti
stýrimaður 1979 eftir að hafa verið
búinn að leysa af fram að því. Skip-
stjóri á Víkingi var Viðar Karlsson.
Viðar er besti skipstjóri sem ég hef
verið hjá. Hann reyndist mér og
okkur öllum í áhöfninni afskaplega
vel auk þess sem maður lærði heil-
mikið af honum í gegnum tíðina.
Einnig var Guðjón heitinn Berg-
þórsson skipstjóri á skipinu um
tíma. Reyndist hann líka góður og
farsæll skipstjóri. Ég var á Víkingi
alveg þar til í mars 1998 og átti far-
sælan tíma þar með góðri áhöfn.
Á þessum tíma vorum við mest á
loðnu, kolmunna og á rækju. Á
rækjunni gerðum við út frá Ísafirði
og frá Akureyri.
Víkingur kom úr vélaskiptum
um haustið 1981. Fljótlega á eftir
er sett á loðnuveiðibann og réðist
ég þá sem skipstjóri á Gróttu eftir
áramótin og fylgdu mér nokkrir úr
áhöfninni af Víkingi yfir á Grótt-
una og var ég með hana til hausts-
ins 1983. Þá hófust loðnuveiðarn-
ar að nýju og við fórum aftur yfir á
Víking,“ segir Erling.
Þegar sjómannsferlinum lauk hjá
Erling réði hann sig til starfa hjá
Norðuráli. Hann kunni ekki nægj-
anlega vel við sig þar og var þar
einungis í rúm tvö ár. Þetta voru
einu árin sem hann starfaði ekki við
störf sem tengdust sjónum.
Góður tími hjá
Fiskistofu og
Faxaflóahöfnum
„Þegar ég hætti í Norðuráli réði
ég mig til Fiskistofu og var í veiði-
eftirlitinu í um fjögur ár. Það var
virkilega góður tími. Við ferðuð-
umst vítt og breytt um landið og
vorum einnig á sjó í eftirliti. Þarna
hitti ég marga gamla félaga úr sjó-
mennskunni og enn aðra sem ég
hafði aldrei séð en verið í sam-
bandi við þá þegar ég var til sjós.
Þetta var mjög gefandi og ánægju-
legt að starfa hjá Fiskistofu. En mér
bauðst góð vinna hjá Faxaflóahöfn-
um árið 2006. Á fyrstu árum mín-
um hjá Faxaflóahöfnum var þetta
aðeins öðruvísi en nú er. Þá vor-
um við Akurnesingarnir sér hérna
á Akranesi og þjónustuðum Akra-
neshöfn og Grunartangahöfn auk
Olíustöðvarinnar í Hvalfirði. Það
var mikið um að olíuskip kæmu að
sækja olíubirgðir þangað. Þá var
skipunum lagt við ankeri fyrir utan
höfnina og slanga lögð út í skip-
ið. En í dag eru hafnsögumennirn-
ir undir sama hatti með aðstöðu í
Hafnarhúsinu í Reykjavík og þjón-
usta allt svæðið þaðan að mestu
leyti.
Ævintýri á Mið-
jarðarhafi
Þótt Erling hafi átt farsælan og
áfallalausan starfsferil til sjós, tók
Kom ekkert annað til greina en að verða sjómaður
Rætt við Erling Þór Pálsson, sem starfað hefur í tengslum við sjómennsku í hálfa öld
Erling Þór við hafnarhúsið á Akranesi. Ljósm. se.
Áð í Messina á Sikiley í ferjusiglingunni.
Sjómannadagurinn 1985 eða 1986. Knattspyrnuleikur, yfirmenn gegn undir-
mönnum. Frá vinstri: Valetínus Ólason, Erling Þór Pálsson, Ólafur Hallgrímsson og
bræðurnir Sigurjón, Runólfur og Gísli Runólfssynir.
Um borð í lóðsinum.
Erling Þór fer upp kaðalstiga til að lóðsa flutningaskip.