Skessuhorn - 08.06.2022, Side 38
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 202238
„Ég byrjaði í rauninni að fara á
sjó þegar ég kem hingað,“ seg-
ir Jóhann Már Þórisson kokkur og
háseti um borð í Bárði SH sem rær
frá Rifi. Jóhann Már er smiður í
grunninn og hefur starfað lengst af
við smíðar með föður sínum Þóri
Jónssyni húsasmiði. Jóhann er með
smíðaverkstæði á Rifi og áður en
hann hóf störf um borð í Bárði SH
var hann í því að gera húsgögn fyr-
ir fólk, bæði hanna þau og búa til,
undir nafninu Sheepa. Hann býr
ásamt konu sinni og fjórum börn-
um í Rifi. „Í dag er aðal vinnan
mín að vera á sjó og það er búið að
vera svoleiðis í eitt ár núna,“ seg-
ir Jóhann. Bárður SH var í slipp
þegar blaðamaður Skessuhorns
heimsótti Jóhann á heimili hans og
var hann að bíða eftir símtalinu að
fá að komast út á sjó aftur. „Mér
finnst þetta æði. Eins og núna þá
bara hlakkar mig til að báturinn
fari niður.“
Smíðarnar lagðar
til hliðar
„Ég tók netavertíðina í fyrra í jan-
úar og fram í apríl á Bárði. Skip-
stjórinn hringdi svo í mig í júlí
þegar vertíðinni var lokið og bauð
mér að koma um leið og þeir byrj-
uðu aftur. Þannig hafði ég smá
tíma til að ljúka við útistand-
andi verkefni í smíðunum,“ segir
Jóhann. Í dag er sjómennskan aðal
vinnan hans og hafa smíðarnar því
verið lagðar til hliðar. „Það kom í
raun bara tími þar sem mig lang-
aði að gera eitthvað allt annað. Ég
var í eigin rekstri í smíðavinnunni
í svo mörg ár og það að losna við
allt áreitið sem fylgir því að vera
í eigin rekstri var mikill léttir. Á
sjónum þá bara sinni ég vinnunni
minni. Eins og til dæmis þegar ég
er kokkur þá þarf ég bara að hugsa
um hvort það sé nógur matur fyr-
ir alla um borð. Það er enginn að
hringja í mig á kvöldin og spyrjast
fyrir um gluggasmíði eða þakvinnu
heldur fer ég bara heim og er með
fjölskyldunni,“ segir Jóhann. „Ég
er mjög ánægður að hafa feng-
ið þetta tækifæri. Ég geri bara það
sem mér er sagt að gera og það fer
ekkert í taugarnar á mér heldur. Ég
var kannski mest hræddur við það
hvað mér fyndist um það að vera
sagt fyrir verkum eftir að hafa ver-
ið minn eigin herra í svona mörg
ár og hafa frelsið sem því fylgir.
En mér líður vel í þessari rútínu að
vera á sjó, enda í frábærum félags-
skap.“
Af sjómannsættum
Jóhann er fæddur og uppalinn í
Reykholti í Borgarfirði. Langafi
hans var skólastjóri í héraðsskólan-
um þar og afi Jóhanns var kennari
við skólann. „Bæði móðurættin og
föðurættin eru sjómannsfólk þó
svo ég sé alinn upp í sveit. Amma
í föðurætt er úr Grindavík og
móður ættin er frá Höfn í Horna-
firði og þar voru bræður ömmu
með útgerð. Það svo sem stóð alltaf
til boða að komast á sjó hjá ættingj-
um mínum ef maður hefði geng-
ið eftir því. Mamma dró frekar úr
því að ég færi á sjó, en hefur samt
alltaf stutt mig í þeim ákvörðunum
sem ég hef tekið. Það var nefnilega
hræðilegt slys 15. september 1961
þegar Helgi SF-50 fórst og fjór-
ir úr fjölskyldunni fórust; afi og
bræður ömmu og þrír aðrir. Það
voru einungis tveir sem lifðu af af
níu sem voru um borð. Mamma
var þá 12 ára þegar þetta gerist,“
segir Jóhann. „Þetta var miklu
algengara á þessum tíma að menn
skiluðu sér ekki aftur heim. Þetta
er sem betur fer mun skárra í dag,
allur aðbúnaður, fræðsla og sund-
geta sjómanna. Þess vegna er mjög
lítið um slys eins og þetta sem átti
sér stað 1961.“
Úr Mosó og aftur
út á land
Jóhann flutti til Reykjavíkur og
keypti sér íbúð þar á meðan hann
lærði smiðinn. Hann byggði sér svo
hús í Mosfellsbæ árið 1999 og bjó
þar til ársins 2011 þegar fjölskyld-
an flytur í Rif. „Það var í rauninni
hruninu að kenna eða þakka öllu
heldur að við ákveðum að flytja aft-
ur út á land,“ rifjar Jóhann upp.
„Mig langaði alltaf að komast aft-
ur út á land, en Adela mín var ekki
alveg jafn spennt. Hún er frá Rúm-
eníu og elti mig til Íslands og stend-
ur alltaf þétt við bakið á mér. Við
byggðum okkur bústað á Arnarstapa
og ég fór að vinna mikið fyrir fólk
hérna á svæðinu, það vantaði alltaf
iðnaðarmenn,“ bætir hann við. „En
eins og fyrst þegar ég flyt hingað
réði ég mig inn sem hálfgerðan vél-
stjóra við Sjávariðjuna, fiskvinnslu
hér í Rifi.“
Jóhann var tæp tvö ár í landi áður
en hann fór svo fyrst á sjó á Hamar
SH sem er í eigu sömu fjölskyldu.
„Það var fyrsta reynslan mín á sjó,“
segir Jóhann en hann tók sér smá
pásu frá sjómennskunni á meðan þau
hjónin eignuðust börnin sín fjögur.
„Ég var í landi í sjö til átta ár. Við
eignumst fjögur börn á tíu árum.
Eigum tvær stelpur fæddar 2005 og
2007 og svo tvo stráka fædda 2012
og 2014. Eftir á þá var það bara fínt
plan því stelpurnar okkar eru bestu
vinkonur og sömuleiðis strákarnir
okkar bestu vinir,“ segir Jóhann um
krakkahópinn sinn.
Vertíðin í ár
„Fyrst þá rérum við á snurvoð-
inni viku og viku í senn, þannig
við vorum á sjó í viku og í landi í
viku til skiptis. Svo á netavertíð-
inni, þá byrjuðum við rétt fyrir
áramótin. Netavertíðin er hörku
puð, við fáum alveg að finna fyr-
ir því. Hún er yfirleitt í gangi fram
í miðjan apríl. Við erum bara með
átta daga í frí í mánuði, en bátur-
inn rær samt alla daga sem hægt er.
Þá eru bara níu um borð og þrír í
fríi hverju sinni,“ segir Jóhann um
fyrir komulagið. „Á netavertíð þá
erum við stundum að landa tvisvar
sama daginn. Tökum svona ca. 40
tonn í lest miðað við að vera með
öll kör full. Við fórum alveg upp
í það að landa yfir 100 tonnum á
dag en þá erum við líka ekki að fara
langt út. Til dæmis í mars, sem er
yfirleitt langstærsti mánuðurinn, þá
vorum við með einhver 1200 tonn
sem er mjög mikið,“ bætir hann
stoltur við.
Þykir gaman að elda
Jóhann segist vera kokkur og háseti
þegar hann er um borð. „Það er
ekki vinsælasta starfið um borð,
en mér þykir gaman að elda og ég
elda mikið heima hjá mér,“ seg-
ir Jóhann um kokkastarfið. „Ef ég
er kokkurinn um borð þá mæti ég
hálftíma áður og útbý morgun-
mat. Svo mætir áhöfnin og borðar
á meðan við siglum út. Eftir rúmt
korter er farið að draga inn fyrstu
trossu og oft dregnar inn fjórar til
fimm trossur. Svo hleypur maður á
milli trossa og reynir að undirbúa í
eldhúsinu. Síðan koma allir inn og
borða og fara strax aftur út til að
halda áfram að vinna. Ég vaska yfir-
leitt upp á landleiðinni eða þegar
verið er að landa. Það er oft reglan
um borð að kokkurinn landar ekki
heldur hreinsar hann í eldhús-
inu og undirbýr næsta dag,“ bætir
hann við. „En það er í þessu, þú ert
með þrjá til níu karla sem eru ekki
feimnir við að láta heyra í sér ef
þeim líka ekki eitthvað við matinn,
en það er alls ekki mikið um það.
Það fer að vísu bara inn um eitt og
út um hitt hjá mér,“ segir Jóhann
og hlær. „Það er bara aldrei hægt að
gera alla ánægða, ekki nema mað-
ur sé alltaf með lambalæri og brúna
sósu í matinn,“ bætir hann kíminn
við. „Aðalatriðið er að hafa nóg af
mat og fjölbreyttan mat. Allt frá
soðnum fiski, lambalæri, kótilettur
í raspi eða pottrétt. Í raun er þetta
heimilismatur fullur af orku,“ segir
Jóhann að endingu.
glh/ Ljósm. af.
Jóhann Már Þórisson um
lífið á sjónum:
„Mér finnst
þetta æði“
Jóhann Már Þórisson fyrir utan heimili sitt í Rifi. Ljósm. glh.
Jóhann Már við löndun.
Þegar Jóhann er kokkur um borð
reynir hann samt að gera eins mikið
gagn við veiðarnar og hægt er.
Við þakbyggingu.