Skessuhorn - 08.06.2022, Qupperneq 40
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 202240
Einar Bergmann er ekki gam-
all að árum, rétt nýorðinn tvítug-
ur að aldri. Hann er hins vegar
þegar orðinn hokinn af reynslu
þegar kemur að því að stýra skip-
um. Einar er yngsti stýrimaður í
sögu Landhelgisgæslunnar og er
nú tekinn við sem yfirstýrimaður á
Herjólfi. Í millitíðinni hefur hann
stýrt stærsta flutningaskipi landsins
og risastóru skemmtiferðaskipi um
Karabíska hafið.
Að drepast á Baldri
Einar er Hólmari í húð og hár,
eins og hann segir sjálfur frá. Hann
dvaldi langdvölum hjá afa sínum og
ömmu, þeim Sigurþór Guðmunds-
syni og Sigrúnu Hrönn Þorvarðar-
dóttur, og segir afann eiga heiður-
inn af því að vekja áhuga hans á
bátum. Sigurþór er einn hluthafi
í Litla eyjafélaginu, sem á nokkr-
ar eyjar í Breiðafirðinum, og Einar
var ungur að árum þegar hann fór
með í dúntekju. Sigrún Hrönn var
síðan alin upp í Flatey og fjölskyld-
an dvaldi eina til tvær vikur á hverju
sumri þar. Og þá var auðvitað farið
með Baldri.
„Þannig kviknaði áhuginn á
Baldri. Ég ætlaði aldrei að gera
neitt annað en að sigla honum. Ég
ætlaði að fara í Stýrimannaskól-
ann og fara á Baldur og svo ætl-
aði ég að drepast á Baldri. Það var
stefnan. Ég man þegar maður stóð
á bryggjunni sem polli. Það er svo
mikill munur á flóði og fjöru hérna
í Breiðafirðinum, alveg fimm metra
munur. Gamli Baldur var um 65 m
langur, lítið skip í raun, en ég stóð á
bryggjunni og horfði á þetta flykki
og pældi í því að það væri einn lít-
ill kall sem stýrði þessu öllu. Og ég
vildi vera sá kall. Eftir að ég fór að
hafa vit á þessu áttaði ég mig síðan
á því að Baldur er ekkert stór.“
Ungur á sjóinn
Þegar Einar var 13 ára tók móðir
hans, Linda Bergmann, saman við
Sigmar Loga Hinriksson. Sigmar
var yfirstýrimaður og síðar skip-
stjóri á Baldri. „Hann hefur líka
verið mikill áhrifavaldur í þessu
öllu. Okkur hefur alltaf komið vel
saman og hann er ákveðin fyrir-
mynd í þessu öllu,“ segir Einar.
Hann var hækkaður um bekk í
grunnskóla, úr sjöunda í áttunda
bekk, og naut mikillar aðstoð-
ar móður sinnar og stjúpa við þau
umskipti. Sigmar Logi hjálpaði
Einari svo mikið við að komast í
Slysavarnaskólann sem hann lauk
skömmu eftir fermingu.
„Mamma kom mér þá í vinnu
hjá Símoni Sturlusyni, sem á
Íslenska bláskel og sjávargróður.
Hann hafði líka mikil áhrif. Hann
var fyrsti yfirmaðurinn minn og ég
held miklu ástfóstri við hann. Hann
kenndi mér að vinna og ég þakka
honum fyrir að hafa tekið við mér.
Ég var yngri en bekkjarfélagarnir
sem komust inn í vinnuskólann, en
þá tók hann við mér og leyfði mér
að kynnast því hvernig er að vinna.
Kannski full mikið, finnst mörgum
í dag miðað við 14 ára krakka.
Eftir að ég kláraði Slysavarna-
skólann gat hann lögskráð mig á
bátinn hjá sér á sumrin. Það var
partur af vinnunni, ekki bara að
vera í landi heldur að fá að fara út
og vera að dandalast í bláskelinni
og þaranum. Á svipuðum tíma var
ég að leysa af sem aðstoðarmað-
ur í eldhúsi á Baldri og Særúnu
hjá Sæferðum. Ég var alltaf þar
þegar strákarnir fengu frí. Þetta
var kannski hálf öfgakennt fyr-
ir svo ungan dreng, en bæði er að
ég er mjög þrjóskur og ef ég veit
hvert mig langar að fara þá verð ég
að græja það. Síðan á mamma mín
mikið hrós skilið fyrir að troða syni
sínum að.“
Hafði aldrei
tekið strætó
Eftir að grunnskólanámi lauk kom
aðeins eitt til greina hjá Einari; að
komast í Stýrimannaskólann. Hann
flutti til Reykjavíkur og fór að leigja
með frændum sínum. Þar var ýmis-
legt nýstárlegt fyrir ungan dreng,
bæði í borginni og skólanum.
„Þá var ég 15 ára kvikindi og
meðalaldurinn kannski 26-27
ára. Það var alveg erfitt. 15 ára er
kannski full lítið til að henda sér í
þetta, þó ég segi sjálfur frá. Þetta
var alveg bras, en gríðarleg reynsla
og maður lærði að bjarga sér. Ég
hafði t.d. aldrei tekið strætó þegar
ég flutti í bæinn. Þetta var alveg
erfitt og ég mundi kannski ekki
mæla með þessu fyrir barnið mitt,
ég myndi vilja hafa það aðeins
lengur heima. En auðvitað græj-
aðist þetta allt og þessir strákar
sem voru með mér voru allt topp-
náungar sem tóku mér vel. Ég er
í góðu sambandi við marga þeirra
enn þann dag í dag.
Stýrimannaskólinn er svo góður
staður fyrir menn í sjávarútvegi til
að mynda tengslanet. Sérstaklega
þegar ég var í Landhelgisgæslunni,
þá var maður oft að kalla upp og þá
þekkirðu rosalega marga sem eru á
skipunum. Það er gaman að fylgjast
með þeim.“
Yngstur í sögunni
Einar hefur alltaf stefnt á sjóinn
og hefur ekki verið að dóla neitt
við það að komast þangað. Hann
kláraði Stýrimannaskólann á þrem-
ur árum í stað fjögurra og þar sem
hann hafði líka klárað grunnskól-
ann ári fyrr en venjan er, var hann
aðeins 18 ára gamall þegar hann
útskrifaðist úr skólanum. Og hvert
fer 18 ára drengur með próf úr
Stýrimannaskólanum í vasanum?
Jú, Einar fór til Landhelgisgæsl-
unnar.
„Ég átti að vera háseti á Herjólfi
um sumarið. Við höfðum flust til
Eyja 2018 og stjúpi var skipstjóri
á Herjólfi og ég var farinn að leysa
af þar líka sem háseti. 2018 kem
ég þar inn sem háseti og svo stýri-
maður þegar á leið. Síðan kemur
náttúrulega bara Covid og ferðum
fækkar og það er fækkað í áhöfn-
um og ég komst ekki þar inn. Ég
hafði verið í sambandi við Auðunn
hjá gæslunni sem hafði komið mér
í samband við Pál Geirdal, sem
hefur umsjón með því að manna
skipin. Palli hringir svo í mig og
býður mér að fara sjómanna-
dagstúrinn á Tý, sem var vika. Þá
fór ég sem háseti og það var mjög
gaman, að fá að fara upp í þyrlu og
það allt. Við fórum á Ísafjörð og
það var upplifun að vera í Gæsl-
unni á svona hátíðarstundu. Allir
hjá Gæslunni eru alveg einstak-
lega gott fólk og það er gott að
vera þar.
Síðan var mælt með mér aftur.
Ég átti að vera í mánaðarfríi og
koma aftur um borð eftir það á
Seyðisfirði. En síðan fæ ég símtal
um að það vanti þriðja stýrimann á
Tý og mér er boðin staðan. Þá var
ég 18 ára og nýskriðinn út úr skól-
anum. Ég þigg það náttúrulega,
fyrst að þeir treystu mér. Þá var
annar stýrimaðurinn Elvar Sig-
urðsson, ég var með honum í skól-
anum, hann útskrifaðist ári á und-
an mér. Það var mjög skemmti-
legt. Þá var ég yngsti stýrimaður í
sögu Landhelgisgæslunnar.“
Það kallar á mig að sigla
Rætt við Einar Bergmann um sjóinn og löngunina til að stýra skipum
Einar við hið risastóra skip, Brilliance of the Sea.
Siglt inn Prins Kristjáns-sund, sem Einar segir einhvern fegursta stað sem hann
hefur séð á norðurslóðum.