Skessuhorn - 08.06.2022, Síða 52
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 202252
Vörur og þjónusta
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
- Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi
Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt.
Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390.
Ökuskóli allra landsmanna
Klifur - tónlist - námskeið - afmæli - hópafjör
Fjölskyldutímar á sunnudögum 11-14
Afþreyingarsetur á Akranesi
smidjuloftid.is
GJ málun ehf
málningarþjónusta
Akravellir 12 - Hvalfj arðarsveit sími 896 2356
301 Akranes gardjons@visir.is
Garðar Jónsson
málarameistari
1990-2020 30 ár
Félags- og skólaþjónusta Snæfell-
inga fékk styrk frá Félagsmála-
ráðuneytinu árið 2020 til þess að
fara í skemmti- og menningarferð
með fullorðna skjólstæðinga sem
sækja þjónustu hjá þeim. Ferðinni
þurfti af fresta til betri tíma vegna
leiðindar veiru sem hefur sveimað
um heiminn síðastliðin tvö ár.
Þann 27. maí síðastliðinn var
svo haldið af stað frá Ólafsvík.
Stoppað var á Vatnaleið til þess
að taka á móti fleiri þátttakend-
um í ferðina. Í fallegu sumarveðri
var ekið til Borgarness og snædd
morgunhressing í bakaríinu. Eftir
gott stopp lá leið okkar á Akranes í
heimsókn í Fjöliðjuna. Fjöliðjan er
vinnustaður þar sem boðið er upp
á verndaða vinnu og endurhæfingu
fyrir þá sem þess þurfa og leita eft-
ir þjónustu. Í Fjöliðjunni á Akranesi
fer fram fjölbreytt vinna og starfs-
fólkið tekst á við mörg ólík verk-
efni. Á móti okkur tók Guðmund-
ur Páll Jónsson forstöðumaður og
Ásta Pála Harðardóttir yfirþroska-
þjálfi. Fjöliðjan er staðsett í tveimur
húsum. Annarsvegar á Smiðjuvöll-
um 9 og hinsvegar í húsi við sömu
götu númer 28. Ásamt þeim reka
þau nytjamarkaðinn Búkollu sem er
því miður lokuð eins og er.
Við mættum rétt fyrir hádegi
í æðislegu veðri á Smiðjuvelli 9,
þar var verið að koma af stað grilli
fyrir utan en Fjöliðjan bauð okk-
ur í pulsupartý í tilefni heimsókn-
ar okkar. Þvílíkar móttökur og ekki
verra að mæta beint í karíókípartý
sem þau eru með fyrir hádegi alla
föstudaga. Okkar fólk hafði gaman
af og tóku sumir þátt í að syngja og
aðrir dönsuðu með. Þegar hádegis-
hressingunni lauk fengum við tæki-
færi á að heimsækja seinna húsnæð-
ið þeirra á Smiðjuvöllum 28, en það
er nýlegt húsnæði sem býður upp á
að sinna hinum ýmsum verkefnum
í aðskildum rýmum. Fjöliðjan sinn-
ir fjölbreyttum verkefnum og höfð-
um við gaman af því að sjá og upp-
lifa vinnustaði þeirra.
Þar sem veðrið lék við okkur þá
var upplagt að keyra að gróðurhúsi
þeirra sem þau halda úti. Þarna eru
margar fallegar plöntur, blóm og
meira að segja blóm og jurtir sem
má borða. Nokkrir lögðu í það að
smakka á meðan öðrum fannst nóg
að finna lyktina. Við þökkum kær-
lega fyrir móttökurnar í Fjöliðj-
unni og hlökkum til að koma aft-
ur í heimsókn við tækifæri. Til að
þakka fyrir móttökurnar gáfum við
Fjöliðjunni þakkargjöf frá Ásbyrgi í
Stykkishólmi og Smiðjunni í Ólafs-
vík sem eru dagþjónustur fyrir fólk
með skerta starfsgetu.
Því næst var haldið til Reykja-
víkur eða í Egilshöll, þar var farið
í keilu og svo í pizzaveislu á Shake
& Pizza. Eftir að allir voru búnir að
næra sig hafði fólk fataskipti fyrir
tónleika kvöldsins, en hópurinn fór
á tónleika með Stjórninni í Bæjar-
bíói. Þar tók á móti okkur frábært
starfsfólk sem vildi allt fyrir okkur
gera. Salurinn var opnaður fyrr fyr-
ir þá sem vildu setjast inn og þeim
boðið að hitta Stjórnina að lokn-
um tónleikum. Æðisleg þjónusta
og skemmtilegt umhverfi hjá þeim
í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Þetta var
langur og virkilega skemmtilegur
dagur. Allir nutu sín og fóru glaðir
heim í helgarfrí.
Stuðningsaðilar þátttakenda í
ferðinni voru leiðbeinendur og
forstöðuþroskaþjálfi Smiðjunnar í
Ólafsvík, forstöðumaður búsetu-
kjarnans í Ólafsvík, leiðbeinend-
ur og forstöðumaður Ásbyrgis í
Stykkishólmi.
Þórheiður Elín Sigurðardóttir, for-
stöðuþroskaþjálfi Smiðjunnar
Skemmti- og menningarferð fullorðinna skjólstæðinga
hjá Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga