Morgunblaðið - 14.04.2022, Side 11
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Ungstirni eru tíðir gestir á Kviku
Reykjavíkurskákmótinu sem lauk í
gær með sigri sextán ára indverska
stórmeistarans Rameshbabu
Praggnanandhaa. Hjörvar Steinn
Grétarsson stórmeistari varð á með-
al þeirra sem skiptu með sér 2.-5.
sæti.
„Það sem við höfum gert á Reykja-
víkurskákmótinu er að fá ungstirni
til þess að koma hingað. Magnus
Carlsen er til dæmis á meðal þeirra
skákmanna sem komu hingað korn-
ungir,“ segir hann. Praggnanandhaa
keppti í Reykjavíkurskákmótinu árin
2017 og 2018 og 2019 en 2018 mætti
hann Vigni Vatnari Stefánssyni, ein-
um efnilegasta skákmanni okkar Ís-
lendinga. Var Pragnggnanandhaa þá
með 2.447 elo-stig en Vignir 2341; nú
er hinn fyrrnefndi kominn upp í 2.624
elo-stig og Vignir 2.501 en hann vant-
ar aðeins einn áfanga til þess að ná
stórmeistaratitlinum.
Það er margt sem trekkir skák-
menn að Reykjavíkurskákmótinu og
hefur það fest sig í sessi sem eitt virt-
asta opna skákmótið á heimsvísu.
Hvað er það við mótið sem heillar?
„Menn segja að standardinn á
mótinu sé svo svakalega hár miðað
við erlendis, án þess að maður vilji
fara að monta sig. Amatörar í skák-
inni eru ekkert vanir þessu,“ segir
Gunnar Björnsson, forseti Skák-
sambandsins. Þá finnst mörgum
skákmönnum einstakt að tefla með
útsýni út á sjó. „Síðan er náttúrlega
hávaðinn sem er þarna. Á hverju ári
er alltaf einhver truflun,“ segir
Gunnar og á við tónleikahald í Hörpu
sem er gjarnan á sama tíma og um-
ferðirnar. Hávaðinn er nokkurn veg-
inn orðinn hluti af mótsumhverfinu
og kippa skákmenn sem venja komur
sínar á Reykjavíkurmótið sér lítið
upp við hann: „Mönnum finnst þetta
bara svo „júník“ allt saman,“ segir
Gunnar í lokin.
Í öðru sæti höfnuðu fjórir skák-
menn; Hjörvar Steinn Grétarsson,
Max Wanderdam, Mads Andersen
og Mishra Abhimanyu.
Ljósmynd/Þorsteinn Magnússon
Sigur Ungstirnið Ramesh Praggnanandhaa vann Kviku Reykjavíkurskákmótið með 7 og hálfan vinning í 9 skákum.
Ungstirnin sækja í Hörpu
- Sextán ára stórmeistarinn Praggnanandhaa sigraði
Morgunblaðið/Ómar
Efnilegir Vignir Vatnar Stefánsson teflir við Ramesh Praggnanandhaa árið
2018. Þá var Vignir Vatnar 15 ára gamall og Praggnanandhaa 12 ára.
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2022
Mörkin 6 - 108 Rvk. s:781-5100
www.spennandi-fashion.isOpið: Mán-fös: 11-18 Lau: 12-15
FLOTT ÚRVAL AF SUMARLEGUM
FATNAÐI FYRIR FERÐALAGIÐ!
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Fæst í
netverslun
belladonna.is
Mikið úrval af peysum, jökkum og yfirhöfnum
Bæjarlind 6 | Sími 554 7030 | Við erum á facebook
buxur
kr. 10.990.-
Str. 34-46/48
kr. 11.990.-
Str. 34-46/48
Fæst hjá N1, OLÍS,
veiðibúðum og veidikortid.is
Frelsi til
að veiða!
Ertu búinn að fá
þér Veiðikortið?
8.900 kr
Veiðitímabilið
er byrjað!
Atvinna