Læknablaðið - 01.06.2022, Side 4
272 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
279
Linda Björk Valbjörnsdóttir, Þórarinn Sveinsson, Árni Árnason
Líkamsástand barna og unglinga á Sauðárkróki og í Varmahlíð fyrr og nú
Á Héraðsskjalasafni Skagfirðinga eru varðveitt fáséð og viðamikil gögn um líkamsmæl-
ingar á grunnskólabörnum á Sauðárkróki sem Jón Þ. Björnsson skólameistari gerði á
árunum 1912-1953. Þessi gögn hafa ekki verið notuð í rannsóknir áður en meginmarkmið
rannsóknarinnar var að bera mælingar Jóns saman við mælingar gerðar á börnum á
sama aldri 2018-2019.
288
Ragna Kristín Guðbrandsdóttir, Oddur Ingimarsson
Náms- og atvinnuþátttaka ungs fólks á Íslandi eftir snemmíhlutun í geðrof
Einstaklingar greinast almennt ungir með geðrofssjúkdóma og þrátt fyrir meðferð hefur
stór hluti viðvarandi einkenni sem leiða gjarnan til skertrar samfélagslegrar virkni og
örorku. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hversu hátt hlutfall ungra einstaklinga
sem fengu snemmíhlutun í geðrof hér á landi árin 2010-2020 tók þátt í námi eða vinnu að
endurhæfingu lokinni, ásamt því að kanna hvaða þættir hefðu forspárgildi um það.
299
Þórdís Magnadóttir, Leon Arnar Heitmann, Tinna Harper Arnardóttir, Tómas Þór Kristjánsson,
Per Martin Silverborn, Martin Ingi Sigurðsson, Tómas Guðbjartsson
Árangur skurðaðgerða við frumkomnu sjálfsprottnu loftbrjósti á Íslandi
Þessi rannsókn sýnir að árangur aðgerða við loftbrjósti hérlendis er sambærilegur við
niðurstöður erlendra rannsókna. Aðgerðin er örugg, skammtíma fylgikvillar fátíðir og allir
sjúklingarnir lifðu aðgerðina af. Tíðni endurtekins loftbrjósts er þó enn talsverð, ekki síst
eftir brjóstholsspeglun þar sem 7% sjúklingar þurfa enduraðgerð. Nýgengi aðgerðarinnar
fór lækkandi og er frekari rannsókna þörf til að kanna hvort það geti tengst því að dregið
hefur úr reykingum.
F R Æ Ð I G R E I N A R
6. tölublað · 108. árgangur · 2022
275
Nanna Briem
IPS – starfsendurhæf-
ing sem skilar árangri
IPS byggir á þeirri grunn-
hugmynd að hægt sé að
finna störf fyrir alla sem
vilja vinna. Virk sjúkdóms-
einkenni, skortur á fyrri
reynslu á vinnumarkaði
eða vímuefnaneysla er
engin hindrun.
L E I Ð A R A R
Meðlimur Team Heart tók þessa mynd á
skurðstofu King Faisal sjúkrahússins í
Rúanda í apríl 2022 og hún sýnir
sjálfboðaliða aðstoða Maurice Musoni
hjartaskurðlækni frá Rúanda við að
framkvæma míturlokuskipti hjá ungum
sjúklingi.
Martin Ingi Sigurðsson hefur farið
nokkrum sinnum suður á bóginn til
Rúanda með Team Heart til þess að
kenna heimamönnum handtökin við
bráðalækningar. Hann kemur alltaf
heim reynslunni ríkari og Afríka hefur
kennt honum margfalt meira.
Rúanda er lítið hæðótt ríki rétt sunnan
við miðbaug. Þar sitja fleiri konur en
karlar á þingi. Meðalaldur þjóðarinnar
er 19 ár, og körfubolti og fótbolti eru
vinsælar íþróttagreinar.
Á FORSÍÐU
Míturlokuskipti í Rúanda277
Martin Ingi Sigurðsson
Mwaramutse* frá
Rúanda
Rúanda og Ísland eru
gerólík. Í Rúanda búa 14
milljónir manna og þrátt
fyrir að ástandið í
landinu batni ár frá ári
lifa enn tæplega 50%
íbúanna á minna en
tveimur dollurum á dag.
Aðgengi að sérhæfðri
heilbrigðisþjónustu er
mjög takmarkað og í
landinu öllu starfa til
dæmis einungis 5
hjartalæknar.
*Góðan dag
Rúanda