Læknablaðið - 01.06.2022, Blaðsíða 13
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 281
R A N N S Ó K N
Mynd 1. Gripstyrksmælir samskonar og notaður var í mælingum Jóns Þ.
Björnssonar (mynd úr einkasafni). Mælirinn var fenginn að láni á Heil-
brigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki og notaður í mælingum barna
og unglinga á Sauðárkróki og í Varmahlíð skólaárið 2018-2019.
Andrýmd
Þátttakandi stóð og fékk nefklemmu sem lokaði báðum nösum.
Þátttakandi andaði eins djúpt að sér og hann gat og blés frá sér í
munnstykki (Medikro Oy, Kuopio, Finnland) sem var snúrutengt
við tölvu (Lenovo Ideapad Yoga 13, Singapore) og mældi magn
útöndunarlofts í millilítrum (mL). Í mælingum Jóns var notaður
andrýmdarmælir sem voru tveir samsettir sívalir dunkar þar sem
efri dunkurinn hvolfdist ofan í þann neðri. Vatn var í neðri dunkn-
um og mjúk slanga kom upp úr efri dunknum sem blásið var í af
öllu afli og þá lyftist efri dunkurinn, á honum var mælistika sem
sýndi magn útöndunarlofts í mL.
Tölfræði
Við úrvinnslu gagna var tölfræðiforritið Jamovi (1.0.8.0) notað.
Gröf voru gerð í Excel. Við samanburð á mælingum Jóns við mæl-
ingahluta rannsóknarinnar var mælingum Jóns skipt upp í átta
5 ára og eitt 6 ára tímabil og notuð var dreifnigreining (ANOVA)
við samanburðinn. Samdreifnigreining (ANCOVA) var notuð til
að leiðrétta fyrir hæð og þyngd í gripstyrks-, brjóstvíddar- og and-
rýmdarmælingum. Tukey-eftirpróf var notað til að kanna mark-
tæki á milli tímabila. Mælingar voru skilgreindar martækar þegar
p<0,05. Ef færri en 10 einstaklingar voru mældir yfir heilt tímabil
(5 ár) var tímabilið tekið út.
Niðurstöður
Í mælingum Jóns voru 937 börn mæld yfir tímabilið 1912-1953, 475
stúlkur og 462 piltar. Í mælingarhluta rannsóknarinnar voru 395
börn mæld á haustmisseri, 202 stúlkur og 193 piltar, og 398 börn
á vormisseri, 203 stúlkur og 195 piltar. Niðurstöður haust- og vor-
mælinga sýndu samskonar niðurstöður og því verða aðeins niður-
stöður haustmælinga kynntar.
Hæð
Í hæðarmælingum (mynd 2) sást marktæk hæðaraukning yfir
tímabilið 1912-1952 í 3.-10. bekk hjá báðum kynjum (p<0,001-0,028).
Börn skólaárið 2018-2019 voru marktækt hærri en jafnaldrar þeirra
voru í 2.-10. bekk (p<0,001-0,029) og voru stúlkur marktækt hærri
en piltar í 6.-8. bekk (p=0,008-0,033). Víxlhrif voru til staðar í 9.
bekk (p=0,039).
Þyngd
Í þyngdarmælingum (mynd 3) sást marktæk þyngdaraukning yfir
tímabilið 1912-1952 í 5.-9. bekk hjá báðum kynjum (p<0,001). Börn
Mynd 2. Fyrri hæðarmæling (haust) hjá börnum í 2.-10. bekk. Punktarnir merkja meðaltal hvers tímabils (5-6 ára tímabil 1912–1952,
ein mæling 2018-2019) og lóðréttu línurnar 95% öryggismörk (Confidence Interval).