Læknablaðið - 01.06.2022, Qupperneq 31
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 299
R A N N S Ó K N
Þórdís Magnadóttir1 læknir
Leon Arnar Heitmann2 læknanemi
Tinna Harper Arnardóttir1 læknir
Tómas Þór Kristjánsson1 læknir
Per Martin Silverborn1 læknir
Martin Ingi Sigurðsson2,3 læknir
Tómas Guðbjartsson1,2 læknir
1Hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala, 2læknadeild Háskóla Íslands, 3svæfinga-
og gjörgæsludeild Landspítala.
Fyrirspurnum svarar Tómas Guðbjartsson, tomasgud@landspitali.is
Á G R I P
INNGANGUR
Frumkomið sjálfsprottið loftbrjóst er algengur sjúkdómur þar sem
skurðaðgerð er beitt við viðvarandi loftleka eða endurteknu loftbrjósti.
Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna árangur þessara skurðaðgerða á
Íslandi á 28 ára tímabili.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Afturskyggn rannsókn á 386 sjúklingum (miðgildi aldurs 24 ár, 78% karlar)
sem gengust undir 430 aðgerðir á Landspítala 1991-2018. Sjúklingaþýðinu
var skipt í fjögur 7 ára tímabil og þau borin saman. Árlegt nýgengi aðgerða
var reiknað og upplýsingum safnað úr sjúkraskrám um fyrra heilsufar,
ábendingu, tegund aðgerðar, fylgikvilla og legutíma eftir aðgerð. Aðgerðir
vegna endurtekins loftbrjósts voru skráðar og forspárþættir þeirra metnir
með aðhvarfsgreiningu.
NIÐURSTÖÐUR
Árlegur aðgerðafjöldi á tímabilinu var 14,5 (miðgildi, bil 9-27) og lækkaði
nýgengi aðgerða um 2,9% á ári (p=0,004). Tæpur helmingur (49%) sjúklinga
reyktu fram að aðgerð og 77% aðgerðanna voru gerðar með brjóstholssjá.
Helstu fylgikvillar eftir aðgerð voru viðvarandi loftleki (17%), lungnabólga
(2%) og fleiðruholssýking (0,5%) en enginn lést innan 30 daga frá aðgerð.
Tuttugu og sjö sjúklingar (6%) þurftu enduraðgerð vegna endurtekins
loftbrjósts, að meðaltali 16 mánuðum frá upphaflegu aðgerðinni, þar af 24
(7%) eftir brjóstholssjáraðgerð. Aðhvarfsgreining sýndi að yngri sjúklingar
voru líklegri til að gangast undir aðgerð vegna endurtekins loftbrjósts.
ÁLYKTANIR
Skurðaðgerð vegna frumkomins sjálfsprottins loftbrjósts er örugg meðferð
og alvarlegir skammtímafylgikvillar sjaldgæfir. Líkt og erlendis greinast
um 6% sjúklinga með endurtekið loftbrjóst sem krefst endurtekinnar
skurðaðgerðar. Nýgengi aðgerða af óþekktum orsökum hefur lækkað
en benda má á að tíðni reykinga hérlendis hefur lækkað verulega á
rannsóknartímabilinu.
Árangur skurðaðgerða við frumkomnu
sjálfsprottnu loftbrjósti á Íslandi
Inngangur
Þegar loft safnast fyrir í fleiðruholi jafnast neikvæður þrýstingur
í því út en hann heldur lunganu útþöndu. Við þetta getur lung-
að fallið saman sem skerðir starfsemi þess. Loftbrjóst er oftast
sjálfsprottið og frumkomið (primary), en sjálfsprottið loftbrjóst
getur einnig tengst lungnasjúkdómum eins og lungnaþembu,
lungnatrefjun eða lungnakrabbameini (secondary spontaneous
pneumothorax). Loks getur loftbrjóst orðið vegna áverka eða læknis-
aðgerða, en mun sjaldnar eftir sýkingu í fleiðruholi.1
Frumkomið sjálfsprottið loftbrjóst er tiltölulega algengur sjúk-
dómur en samkvæmt eldri rannsóknum erlendis mældist árlegt
aldurstaðlað nýgengi á bilinu 7,4 til 18 /100.000 fyrir karla og 1,2 til
6 hjá konum.1-4 Orsökina má rekja til rofs á litlum blöðrum sem eru
í um 90% tilvika staðsettar á toppi efri lungnablaða.5,6 Það greinist
oftast hjá sjúklingum á bilinu 18-34 ára og er tíðnin hærri hjá þeim
sem eru hávaxnir, en einnig þeim sem reykja eða hafa fjölskyldu-
sögu um loftbrjóst.3,6-10
Meðferð miðast við einkenni og stærð loftbrjóstsins, en einnig
hvort loftleki sé viðvarandi eða loftbrjóstið endurtekið.11 Við lítið
loftbrjóst (<20% samfall, <4 cm við lungnatopp) er yfirleitt aðeins
beitt stuðningsmeðferð, en brjóstholskera komið fyrir við stærra
loftbrjóst (>4 cm við lungnatopp), enda valda slík loftbrjóst oftar