Læknablaðið - 01.06.2022, Qupperneq 48
316 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
Eins og áður hefur komið fram í Lækna-
blaðinu hefur Læknafélag Íslands (LÍ)
gert spálíkan um mannaflaþörf lækna
til ársins 2040. Í þessari grein verður
sjónum beint að mönnunarstöðu lækna
á landsbyggðinni. Öflug heilsugæsla í
nærumhverfi er sjálfsagður réttur allra
íbúa landsins og mikilvægur liður í
byggðaþróun.
Í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðun-
ar, Heilsugæsla á landsbyggðinni1 frá árinu
2018 kom meðal annars fram að grípa
verði til markvissra aðgerða til að bregð-
ast við læknaskorti á landsbyggðinni og
áhersla lögð á mikilvægi þess að sett verði
fram heildstæð heilbrigðisstefna samhliða
því.
Samkvæmt upplýsingum frá forstjór-
um heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni
um fjölda stöðugilda, heimilislækna,
annarra lækna og fjölda verktaka árið
2021,2 eru einungis 55% stöðugilda lækna
(59,45 fastráðnir af 106,3 stöðugildum) á
landsbyggðinni mönnuð af fastráðnum
heimilislæknum og öðrum læknum en
verktakar manna 26% stöðugilda (27,4
stöðugilda af 106,3 stöðugildum). Það
kemur einnig fram að það vanti lækna í
um 19% stöðugilda (20,45 stöðu-
gildi af 106,3 stöðugildum).
Á næstu 5 árum fara um 20 af
64 fastráðnum læknum á eftirlaun,
eða um 24%, en ef litið er til næstu
10 ára verða um 32 fastráðnir lækn-
ar komnir á eftirlaun, eða um 33%.
Ljóst er að ef ekkert er gert mun
staðan á landsbyggðinni versna þar
sem endurnýjunin er ekki nægjan-
leg. Tölurnar varpa ljósi á hve illa
heilbrigðisstofnunum gengur að ráða til
sín lækna með fasta búsetu á staðnum þar
sem heilbrigðisstofnanir þurfa í síauknum
mæli að ráða til sín lækna í verktöku.
Læknishéruð þar sem einn læknir
sinnir dagvinnu eru 14 talsins. Þau eru:
• Blönduós
• Búðardalur
• Djúpivogur
• Grundarfjörður
• Hólmavík
• Kópasker/Raufarhöfn/Þórshöfn
• Neskaupsstaður, heilsugæsla
• Ólafsvík
• Patreksfjörður
• Seyðisfjörður
• Stykkishólmur
• Vík í Mýrdal
• Vopnafjörður
• Þorlákshöfn
Í þessum læknishéruðum eru um 9 verk-
takar og 5 fastráðnir. Ef fram fer sem
horfir á næstu 5 árum verða þrír fast-
ráðnir læknar eftir í þessum héruðum.
Heilbrigðisþjónustan þarna byggir því í
auknum mæli á tímabundinni verktöku
og má lítið út af bera.
Nú hafa landamærin verið opnuð á
ný og ferðaþjónustan hefur tekið við sér.
Nýjustu spár gera ráð fyrir að fjöldi ferða-
manna á Íslandi í ár verði á bilinu 1,4-1,5
milljónir. Stór hluti ferðamanna ferðast
út fyrir höfuðborgarsvæðið og um leið
fjölgar þeim sem leita sér heilbrigðisþjón-
ustu á landinu öllu. Það tekur meiri tíma
að sinna erlendum ferðamönnum þar sem
þeir eru oftar en ekki með sértækari þarfir
en heimamenn, sem eykur um leið álagið
á heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni.
Fjármögnun heilsugæslu á landsbyggð-
inni hefur ekki aukist í takt við þessa vax-
andi þjónustuþörf og flækjustig.
LÍ kallar eftir framtíðarsýn varðandi
mönnun læknisþjónustu á landsbyggð-
inni, en rík ástæða er til að hafa áhyggjur
af þróuninni næstu árin. Heilbrigðis-
yfirvöld verða að tryggja að læknisstörf
á landsbyggðinni séu samkeppnishæf,
vinnuskilyrði verða að vera góð og laun
í takt við álag, bindingu og ábyrgð.
Gæta þarf þess að hvatar séu til staðar
svo læknar kjósi að starfa á landsbyggð-
inni. Heilbrigðiskerfið verður að geta
staðið undir og sinnt hlutverki í
nærumhverfi sínu, enda er góð og
örugg heilbrigðisþjónusta ein af
lykilforsendum búsetu í dreifðari
byggðum landsins sem og í þétt-
býli.
Heimildir
1. Heilsugæsla á landsbyggðinni. Skýrsla
til Alþingis. Ríkisendurskoðun Apríl 2018.
Heilsugaesla_a_landsbyggdinni.pdf - maí 2022.
2. Fulltrúar LÍ í vinnuhópi um bókun 7 skv.
kjarasamningi LÍ og fjármála- og efnahagsráð
herra sem undirritaður var 7. desember 2020.
Ingvar Freyr Ingvarsson
hagfræðingur
Læknafélags Íslands
ingvar@lis.is
Mönnun lækna á
landsbyggðinni
Steinunn Þórðardóttir
öldrunarlæknir
formaður Læknafélags Íslands
steinunn@lis.is
F R Á L Æ K N A F É L A G I Í S L A N D S
Súsanna Björg Ástvaldsdóttir
læknir
á Ísafirði
susanna.astvaldsdottir@hvest.is