Læknablaðið - 01.06.2022, Síða 50
318 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
Nýlega var hópeflisdagur í vinnunni og
okkur af því tilefni boðið á fyrirlestur
um lífsstíl og hamingju. Ég var í mínu
króníska þreytuskýi svo ég man ekki
fullkomlega innihald fyrirlestursins nema
þegar fyrirlesarinn sýndi tölfræði um
hamingjuskeið lífsins. Meginskilaboðin
voru þau að maður lifir fölskvalaust gleði-
skeið á tvítugs- og þrítugsaldri en sekkur
svo í þreytu- og vanþrifaspíral frá fertugs-
aldri og inn á miðjan fimmtugsaldurinn.
Eftir það fer að rofa til aftur og maður
klífur uppúr myrkrinu, hamingjusamur á
ný, uppúr sextugu.
„Ó guð! Sjö ár eftir á botninn,“ hugsaði
ég. Mér þóttu þetta þó undarleg skilaboð
því á sama tíma er svo margt frábært að
gerast í lífinu. Börnin þrjú algerar gleði-
bombur þó úlfatíminn geti sært fram
grýlu gömlu. Heilsa til að stunda líkams-
rækt en þá þarf reyndar að stilla verkjara-
klukkuna kl. 5:30 svo það náist fyrir
vinnu. Ég verð þreytt við tilhugsunina.
Og svo auðvitað full vinna í vannærðu
heilbrigðiskerfi.
Líklega benti fyrirlesarinn á að svona
þurfi þetta nú ekki að vera og kom með
tillögur að leiðum til að takast á við erfið-
leika og mótlæti á vinnustað og í lífinu.
En þá var ég búin að missa athyglina,
sennilega farin að skoða fasteignaauglýs-
ingar í daufri von um að finna húsnæði
við hæfi og um leið senda manninum
mínum skilaboð um hvort okkar ætti að
L I P R I R P E N N A R
Sjö ár í botninn?
Inga Lára Ingvarsdóttir
svæfinga- og gjörgæslulæknir,
Sahlgrenska háskólasjúkrahúsinu í Gautaborg
inga.ingvarsdottir@gmail.com
fylgja hvaða barni í frístundastarf þann
daginn. Eða kannski var ég í sífellu að
opna tölvupóstinn minn í von um að það
væru komnar niðurstöður úr evrópska
sérfræðiprófinu sem ég tók skömmu áður.
Fyrir téð próf hafði ég einmitt lært í
vaktafríum, ætluðum til að hlaða batt-
eríin, á illa einangruðum opnum skrif-
stofugangi 15. hæðar sjúkrahússins. Einn
yfirmanna minna valsaði óvænt inn einn
daginn og komst að því að ég væri að
læra fyrir þetta tiltekna próf. Hann varð
heldur hissa og spurði: „En af hverju
ert þú að taka þetta próf? Finnst þér þú
þurfa að sanna eitthvað fyrir klíníkinni,
eða fyrir sjálfri þér?“ Mér varð orða vant,
vissi kannski ekki sjálf svarið. Ég umlaði
eitthvað á þá vegu og bætti við að ég
hefði ekki mikinn tíma til að læra í fullri
vinnu og með þrjú lítil börn heima og að
prófið væri góður hvati. „Ó hvort ég man
eftir smábarnalífinu!“ svaraði hann. „Þá
nýtti ég öll kvöld og nætur í lestur til að
halda við þekkingu.“ Ég þakkaði pent
fyrir þessi góðu ráð. Hugsanlega hafði ég
nú lært einhver bjargráð sem ung kona í
námi og vinnu innan spítalans sem gerði
mér kleift að dvelja ekki of lengi við þessi
ummæli yfirmanns míns, heldur hafa
bara gaman af þeim.
Mér hafði einnig að mestu tekist
að leiða hjá mér ummæli sama manns
skömmu áður þegar ég hafði látið það
út úr mér, tveimur vikum eftir lok sum-
arfrís, að ég væri þegar búin með alla
sumarfrísorkuna mína: „Ef fólk upp-
lifir svona mikla þreytu og nær ekki
endurheimt á milli vaktatarna, þá er það
sennilega á rangri hillu í lífinu.“ Ég er sem
betur fer fullviss um að vera í réttu starfi,
finnst vinnan bæði gefandi og ótrúlega
skemmtileg, en viðurkenni þó að starfið er
minna gefandi þegar það fer að snúast um
plássamál og takmörkuð úrræði.
Ég hefði líklega átt að reyna að halda
betur athygli yfir fyrirlestrinum til að
komast að því hvað ég þarf að gera til
að forðast óhamingjudal næstu sjö ára.
Mig grunar hins vegar að þó að ég nái
að hrista af mér alla neikvæðni og gera
allt sem ég get til að gæta jafnvægis milli
vinnu og einkalífs, njóta fjölskyldu-
stunda og þess að láta gott af mér leiða
í vinnunni, þá þurfi meira til. Kannski
á það samt ekki bara að hvíla á mínum
herðum. Kannski þarf meira til, bæði
innan og utan heilbrigðiskerfisins.
M
ynd/K
ristinn Ingvarsson