Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2008, Blaðsíða 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2008, Blaðsíða 6
6 - Sjóm­annablaðið Víkingur­ Víkingur­ Árið 1934 keypti Kaupfélag Eyfirð­ inga gufuskipið Kongshaug sem hafði strandað í Siglufirði. Því var síðan siglt til Noregs til viðgerða en næstu ár á eftir var það í vöruflutningum fyrir KEA og nefndist þá Snæfell. Í mars 1940 sigldi Snæfellið utan til Gautaborgar að sækja garðajárn. Hinn 4. apríl hélt skipið áfram frá Gautaborg til Kristianssand þar sem átti að lesta tunnuefni, borðvið og sement. Hinn 9. apríl gerðu Þjóðverjar innrás í Noreg en þá var búið að setja eitthvað af sement- inu um borð í Snæfellið. Skipið varð hins vegar fyrir skemmdum í innrásinni og lauk ekki viðgerð fyrr en 7. maí. Var þá lestun þess haldið áfram og lokið tveimur dögum síðar. Daginn eftir, eða 10. maí 1940, hernámu Bretar Ísland. Um haustið (25. október 1940) birt- ist í Íslendingi viðtal við stýrimanninn á Snæfellinu, Guðjón Guðbjörnsson, þar sem hann greindi frá því hvernig skip- verjar á Snæfellinu lentu á milli stríðandi herja í Noregi. Viðtalið við Guðjón fer hér á eftir. Millifyrirsagnir eru Víkingsins. Loftárásir „Þegar Þjóðverjar gerðu innrásina í Noreg, lágum við í Kristianssand, sem er syðsti bærinn í Noregi og vorum að lesta þar tunnustaf. Lá Snæfellið við bryggju. Um klukkan fjög- ur þriðjudagsmorguninn 9. apríl vökn- uðum við við skotdynki utan frá sjónum. Heyrðum við að skothríðinni var svarað frá Oddyrövígi, sem er þar rétt utan við hafnarmynnið. Við snöruðum okkur á fætur og biðum átekta. Vissum við þegar að hér var um herskipaárás að ræða. Skothríðin fór nú vaxandi og færðist nær. Flugvélar flugu innyfir og vörpuðu sprengjum yfir vígið og höfnina, svo allt lék á reiðiskjálfi. Klukkan sjö varð sprenging í skotfæra- geymslu Oddyrövígis og eldblossana og reykhafið bar við him- inn. Um sama leyti taka fallbyssukúlur að springa allt í kring- um Snæfell og fer þá skipshöfnin að hafa sig í land. Héldu flestir hópinn og kom- ust á óhultan stað vestan við bæinn. En ég og 3 aðrir skipverjar urðum nokkru seinna fyrir, og er við vorum að stíga upp á bryggjuna lenti kúla í skipinu. Hristist það og skalf og var líkast eins og verið væri að brjóta það í spón. Við hlupum upp í bæinn og gengum þar eftir sundi milli tveggja gamalla húsa. Lendir þá sprengja í öðru húsinu og rigndi þak- flísum og sprengjubrotum í kringum okkur. Ein sprengjuflís kom í öxl Axels Björnssonar kyndara, reif frakka hans og jakka, en særði hann ekki. Við komumst nú inn í kjallara á 5 hæða vörugeymsluhúsi úr steinsteypu. Voru nokkrir Norðmenn þar fyrir. Þarna höfðumst við við til kl. 8, en þá féll skot- hríðin skyndilega niður. Áræddum við þá að fara út. En þar var allt á tjá og tundri. Öll flutninga- og farartæki voru yfirfull af Snæfellið í sprengjuregni

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.