Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2008, Blaðsíða 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2008, Blaðsíða 15
skítagallann og enga húfu. Ekki yfirkynd- arinn heldur. Ég var yfirkyndari í eitt ár, eða svo, á Goðafossi og ég hafði ekkert fram yfir hina nema að ég þurfti að vakna klukkan 5 á morgnana úti í löndum til þess að spilin væru í lagi, og það var kallað yfir- kyndari. Hafði svolítið meira kaup en aðrir. Og ég get sagt það óhikað, þótt þeir séu dauðir núna sem höfðu með þetta að gera, að ég stóð mig betur en allir aðrir á Goðafossi. Hafliði Jónsson kom eitt sinn um nótt til vaktmannsins og spurði hann hvernig ég hefði verið þegar ég kom um borð. Vaktmaðurinn sagði það og þá sagði Hafliði. „Ja, það er alveg sérstakur maður, Stefán, hvað hann er pössunar- samur uppá það sem hann á að gera.“ Þetta var Hafliði Jónsson. Hann hafði sérstakt álit á mér. Ég gat opnað fyrir guf- una fyrir gufuspilin klukkan átta á full- um dampi. Það brást aldrei á Goðafossi. Hafliði virti það við mig. Við áttum ákveðna verslunarfrídaga, og hann sagði við mig: „Þú skalt taka eins marga versl- unardaga og þú vilt,“ – eiginlega áttum við aðeins rétt á einum. Þetta var í New York. Við stoppuðum þar í viku. Ég hafði stundað mitt starf fullkomlega eins og hann vildi að væri starfað. Hann var sér- staklega góður karl. Þú sigldir með Jónasi Böðvarssyni, skip- stjóra. Jónas Böðvarsson var skipstjóri á nýja Goðafossi (III) þegar ég var á honum en ég var búinn að vera með honum svolít- inn tíma, líka á gamla Goðafossi. Þá var Jónas þar fyrsti stýrimaður en Pétur Björnsson skipstjórinn. Jónas var harðjaxl og mjög lítið fyrir kurteisissiði en krafðist þess þó að allt væri í röð og reglu og menn á sínum stað, nákvæmur með svoleiðis. Rafvirki, nýbyrjaður á skipinu, var að virða fyrir sér útsýnið við innsiglinguna í New York og laut yfir lunninguna, borðstokkinn, og dáðist að Manhattan. Skipið var að leggja að Pier 20 og þetta var í fyrsta sinn sem hann hafði komið til Ameríku. Jónas, skipstjóri, átti þá leið framhjá og hreytti út úr sér: „Ert þú einn af farþegunum hérna um borð?“ Þetta hraut út úr honum, gat ekki að því gert, svo baðst hann bara afsökunar á eftir, sjálfur skipstjórinn. Einu sinni var Jónas klagaður svo að við vissum. Hjúkrunarkona var að koma með okkur frá Ameríku og það þurfti að sprauta einn hásetann reglulega við einhverju í nokkurn tíma, gefa honum sprautukúr. Jónas, þá fyrsti stýrimaður, átti að gera það á leiðinni en hjúkr- unarkonan tók það að sér. Svo erum við komnir miðja leið til Íslands og þá kemur hún til Jónasar og segir honum, að hún sé búin að gefa sprautukúrinn eins og ætlast var til. Hún hélt að hann yrði ánægður með að heyra þetta, að þessum sprautum væri lokið. En þá segir Jónas: „Já, það er gott, þá getur hann farið að sprauta yður líka.“ Hjúkrunarkonan móðgaðist svo mikið að hún borðaði ekki með Jónasi það sem eftir var af túrnum og það varð að færa henni upp á herbergi. Og svo klagaði hún hann þegar hún kom heim. Hann hafði víst verið klagaður áður. Ég veit ekki hvað þeir sögðu hjá Eimskip en hann fékk ekki plássið á Gullfossi. Skipstjórastaðan á Gullfossi útheimti að maðurinn væri mikið prúð- menni, mjög kurteis við matarborðið, og góður skipstjóri. Jónas var mjög góður skipstjóri en óneitanlega blátt áfram í framkomu og orðavali. Skipstjóri á Gullfossi, nei, farþegarnir hefðu hætt að borða á fyrsta plássi og látið færa sér upp á herbergi. Þá fóru eiginlega allir með Gullfossi til útlanda. Gamla Selfoss þekktirðu líka. Gamli Selfoss var gamaldags skip; við kyndararnir sváfum allir í sama klefanum en hásetarnir voru hinum megin, allir aftur á, það var enginn lúkar á honum. Yfirmennirnir voru uppi á dekki. Selfoss þessi var smíðaður 1914 í Noregi. Hann var gott skip og ekki lítið skip í þá daga, tæplega 800 tonn. En hann gekk ekki nema 9 mílur í logni og ef það var hvasst á móti gekk hann ekki neitt. Ég leysti af á Selfossi sumarið 1936. Þá vorum við í strandsiglingum og Evrópuflutningum; sigldum til Hollands, Belgíu og Englands. Skipstjórinn var Ásgeir Jónasson. Hann var seinna með Fjallfoss sem hét Edda áður. Eimskip var með flutningana á stríðsárunum því að Sameinaða gufu- skipafélagið sást ekki. Dronning Alexandrine gekk ekki á meðan Danmörk var hertekin. Gullfoss lokaðist einnig inni í Kaupmannahöfn árið 1940. Sigurður Pétursson, skip- stjóri, og Haraldur Sigurðsson, fyrsti meistari, voru alltaf með gamla Gullfoss, og það liðu víst akkúrat 25 ár frá því að þeir sóttu hann árið 1915 og þang- að til að þeir skiluðu honum aftur til Kaupmannahafnar, á sama stað og þeir höfðu sótt hann. Framhald í næsta blaði. Jónas Böðvarsson skipstjóri. Gamli Selfoss. Sjóm­annablaðið Víkingur­ - 15

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.