Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2008, Side 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2008, Side 24
24 - Sjóm­annablaðið Víkingur­ Flestum þótti skömm að slíku. Og þá var gleði nóg. Vandvirkni og hreinlæti var áðdáanlegt. Menn voru yfirleitt mjög snyrtilegir í klæðaburði og hirtu fyrirmyndarlega um sjóföt sín og öll veiðarfæri. Þetta fór fram með inngefinni reglusemi og ánægju, handflýti og hógværð. Menn voru framúrskarandi gestrisnir og meðal sjómanna var gott bræðralag og eining. Þegar komið var upp af línu meðan hún lá að næturlagi, og hvert sem maður kom, voru bæir ólokaðir og gengu menn inn sem heimamenn þótt fólk væri í fastasvefni. Var þá strax farið að klæða sig og sýna komumönnum gestrisni og þá var oft glatt á hjalla. Mönnum þótti kaffið gott Baldvin lýsir einum róðri frá Hrísey í byrjun jólaföstu á sexrónum bát. Snemma var róið og hásetarnir urðu að byrja á því að beita. Á haustvertíð var vani að hver beitti þrjá stokka, jafnvel fjóra, þeir sem voru fljótir. Stokkurinn vanalega 100-120 önglar. Að auki höfðu hásetar spotta, lítinn stokk, þetta 30-100 öngla eftir því hve dugleg- ir þeir voru og hve fljótir þeir voru að beita. Viðvaningar höfðu oftast engan spotta. Og þeir sem voru seinir að beita urðu oft og einatt að þola það að spotti þeirra sæti óbeittur í landi. Búnaðurinn, sem sjómenn höfðu til að verjast bleytu og ágjöf á þessum tíma, var skinnstakkur, skinnbuxur, sjóhattur, skinnsokkar og stórir sjóskór úr leðri með opi á tám og hælum svo sjór gæti gengið þar út. Innan undir þessu urðu menn að vera vel búnir. Á höndum höfðu menn þykka sjóvett- linga. Mesta hetjan var vitaskuld formað- urinn og og Baldvin gefur honum einkunn. Lítur greinilega mjög upp til hans en verður þó að viðurkenna að hann sé ekki fullkominn: Frásögnin er hér lítillega stytt og dregin saman. Björn Ingólfsson Róður á sexæringi um 1880 Úr fórum Baldvins Bárðdal Hér birtist þriðji og seinasti þáttur frásagnar Baldvins Bárðdal sem Björn Ingólfsson, fræðimaður á Grenivík og fyrrverandi skólastjóri, hefur ritstýrt. Í rómantísku ljósi Þessi fr­ásögn Baldvins af sjór­óðr­um­ er­ tekin úr­ kafla sem­ í handr­iti hans ber­ heitið Sjómannalíf við Eyjafjörð fyrir 50-60 árum. Að hálfr­i öld liðinni sé­r­ hann sjóm­anns- lífið hillingum­ og r­óm­antísku ljósi og finnst ým­su hafa far­ið aftur­. Í m­inningunni leikur­ ljóm­i um­ þessar­ hetjur­ hafsins sem­ hann var­ þá í fé­lagsskap m­eð. Hann segir­: Röskvari drengi hef ég aldrei hitt. Það var allt gert með flýti, fjöri, vandvirkni og ánægju. Af þessu leiddi að menn urðu hraustir, snarir í snúningum og djarfir í öllu, en þó með forsjá. Það var ekki verið að hika við eða hanga yfir verk- inu með ólund eða deyfð, kjaftæði eða óvandvirkni. Slíkt kom ekki fyrir, og aldrei þetta bölv og klám og heimskuhjal sem fjöldinn af sjómönnum iðkar nú. Skinnklæddir sjómenn við gamlar verbúðir.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.