Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2008, Side 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2008, Side 30
Ég geng um götur Santa Cruz, höfuð borgar Tenerife. Börnin eru að safna í brennur. Það er hátíð í bæ. Fiesta de San Juan, kalla börnin þegar ég spyr og skil ekki orð. Um kvöldið brenna eldar. Ég fer um garða og þröngar götur. Yfir mér gnæfir fjallshlíðin og ofvaxin hótel. Í hlíðunum hanga húsin eins og vínber á klasa. Ég sest niður svolítið annars hugar. Mér er heitt og ég sötra bjór, meira fyrir siðasakir en að mér finnist hann svo góður. – Guten Tag. Ég lít upp. Gamall maður hefur stað- næmst við bekkinn minn og horfir á mig forvitnum augum. Ég gríp til skólaþýskunnar og hann skiptir umsvifalaust yfir í ensku. Jú, ég segist kunna hrafl í því máli. Sá gamli: Ég er fyrir tungumál en ég vil læra þau eins og börnin, fullkomnun er mitt markmið. Er maðurinn að sneyða að enskukunn- áttu minni? Ég er ekki viss um að mér líki við þennan gamla karl. Spyr samt um ætt og uppruna. Sá gamli: Ég er fæddur hér á Tenerife og hér hef ég átt heima í 70 ár. Á eftir fylgir langur fyrirlestur um Kanaríeyjar, að þær séu mögulega leifar hins forna meginlands Atlantis, um frum- byggja Tenerife, Guanche, sem Spánverjar áttu í hinu mesta basli við að undiroka, og ... svo kemur spurningin: – Vissirðu að hér missti Nelson flota- foringi handlegginn? Ég sé ekki betur en að gamli maðurinn rétti örlítið úr bakinu og stoltið leynir sér ekki. – Jú, þetta var eina orrustan sem Nelson tapaði. Ég nota þetta á Englendingana þegar þeir eru með kjafthátt. Sem er oft. Þeir koma hingað í sólina og hamingjuna en eru svo ekk- ert nema ofstopinn, drekka mikið og eru sífellt að koma sér í vandræði við lögregl- una. En þeir vilja ekki tala um Nelson og árás hans á Santa Cruz. Þegar ég minnist á hana þá missa þeir skyndilega málið og láta sig jafnvel hverfa. Gamli maðurinn hefur greinilega fund- ið aðferð til að eiga við uppivöðslusama Tjalla. Hvar missti Nelson handlegginn, er spurningin sem setur tappann í jafnvel hinn ósvífnasta, bjórdrykkju-óróasegg. Að minnsta kosti ef hann er af ensku bergi brotinn og staddur í borginni Santa Cruz á eyjunni Tenerife. Ég er hvorugt og spyr því: Hvar missti Horatio Nelson handlegginn? Og hvernig? Dregur til tíðinda Í júlí 1797 sigldi bresk flotadeild undir stjórn Nelsons áleiðis til Tenerife. Bretar áttu í stríði við Frakka og Spánverjar höfðu lagst á sveif með Frökkum. Fyrir vikið voru spönsku gullskipin, sem komu handan yfir hafið frá Ameríku, hlaðin gulli og silfri, landbúnaðarvörum og öðru verðmæti, orðin réttmætt hergóss. En það var snúið að ná þeim. Bretarnir vissu að höfnin í Santa Cruz var fastur áfangastað- ur gullskipanna og ákváðu því að leggja hana undir konung sinn. Nelson tók að sér verkefnið. Árásarflotinn samanstóð af níu skipum, stærri og smærri, sem höfðu um borð samtals 400 fallbyssur og 4000 manns. Til varnar hafði Spánverjum tekist að skrapa saman um 1.700 manna liði her- 30 - Sjóm­annablaðið Víkingur­ Texti og ljósmyndir: Jón Hjaltason Nelson, Tenerife og handleggurinn

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.