Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2008, Síða 40
40 - Sjómannablaðið Víkingur
Sjómannablaðið Víkingur - 21
máli. Nauðsynlegt er að gera sér grein
fyrir þessu og finna leiðir til að jafna
þennan mun.
Hvað er þá til ráða? Það eina sem er í
stöðunni er að á fót verði komið alþjóð-
legri skipaskrá með skattaívilnunum.
Hvað leið verði farin að því er fyrir sér-
fræðinga að kveða á um, en nokkuð er
mismunandi hvernig nágrannalönd okk-
ar hafa farið að, en sameiginlegt er þess-
um leiðum öllum að skattar áhafnar eru
endurgreiddir til útgerðar að einhverju
eða öllu leyti, auk þess sem útgerðirnar
eru með skattfríðindi.
Segja má að það sé samdóma álit allra
hagsmunaaðila að brýnt sé að koma á fót
alþjóðlegri skipaskrá með skattaívilnun-
um. Slíka skrá beri að líta á sem sóknar-
færi til eflingar kaupskipaútgerð. Hvort
skoða beri alþjóðlega skipaskrá og
skattaívilnanir sem óaðskiljanlega hluti
eða tvö óskyld málefni eru menn svo
ekki á einu máli um.
Í apríl síðastliðnum voru þessi mál í
umræðu á Alþingi og má segja að þá hafi
fjármálaráðherra þáverandi, Geir Haarde,
slegið þetta út af borðinu á þeim nótum
að rekstur íslensku skipafélaganna væri
það góður að félögin þyrftu ekki slíka
ölmusu.
Mín skoðun er að hæstvirtur ráðherr-
ann skilji ekki um hvað málið snýst.
Ég veit ekki betur en að fyrirtækja-
skattar á Íslandi séu lægri en víða ann-
arsstaðar hjá nágrönnum okkar, hvers-
vegna má þá ekki reyna að gera kaup-
skipaútgerð fýsilegan kost með þessum
hætti og freista þess að stöðva þessa þró-
un sem við horfumst í augu við, það er
að segja brátt andlát íslenskrar far-
mennsku.
Miðað við óbreytt ástand þá verður
þess ekki langt að bíða að þau skip sem
þó enn sigla með íslenskum áhöfnum
verði mönnuð útlendingum, hugsanlega
fyrst að einhverju leyti og svo að öllu
leyti.
Hæstvirtur ráðherrann, Geir H. Haarde, veit ekki um hvað málið snýst, er skoðun Ægis Steins,
og fullyrðir að miðað við óbreytt ástand sé þess ekki langt að bíða að íslenskir farmenn heyri
sögunni til. Ljósm.: Roald Evensen
Vagnhöfða 10 - Sími: 567 3175
GSM: 897 5741 - Fax: 587 1226
Sendum sjómönnum
bestu jóla og nýárskveðjur
og þökkum
viðskiptin
á árinu
Sumir hafa einstæða hæfileika til að hitta naglann svo illa á
höfuðið að jaðrar við list. Lítum á nokkur dæmi okkur til
upplyftingar í því svartnætti sem nú ríkir:
•
„Himinn og jörð voru sköpuð á sama augnablikinu, klukkan
níu að morgni hinn 23 október árið 4004 fyrir fæðingu Krists.“
Dr. John Lightfoot, aðstoðarmaður rektors Cambridge-háskóla
rétt fyrir útgáfu bókar Darwins um þróun tegundanna, Origin of
the Species.
•
„Það gefur því að skilja, að um herbergjahitun með rafmagni
getur því aðeins verið að ræða, að framleiðsla rafmagnsins sé
afar ódýr, eða helst að hún kosti ekkert annað en vexti og fyrn-
ingar einhverrar ekki mjög mikillar stofnfjárhæðar.“
Jón Þorláksson: „Rafmagn úr vatnsafli“, Lögrétta 12. nóv-
ember 1913. Jón trúði því statt og stöðugt, að kol yrðu um
ókomna framtíð notuð til að hita híbýli manna á Ísland en að
rafmagnið myndi aðeins nýtast til ljósa og suðu.
•
„Drengurinn er treggáfaður, einrænn og fullur af bjánalegum
draumórum.“
Barnakennari um nemanda sinn, Albert Einstein.
•
„Það er fráleitt að ímynda sér að fólk geti nokkru sinni
ferðast með hraðfara járnbrautarlestum, einfaldlega vegna þess
að farþegarnir myndu ekki ná andanum og kafna.“
Dr. Dionysys Lardner (1793-1859), prófessor í náttúrufræð-
um og stjörnufræði við Háskólann í Lundúnum. Dr. Lardner
staðhæfði einnig að stóru gufuskipin gætu aldrei siglt yfir
Atlantshafið því til þess þyrfti meiri kol en þau gætu borið.
Tveimur árum eftir að doktorinn lét þessa fullyrðingu frá sér
fara sigldi Great Western frá Englandsströndum yfir til New
York. Ferðin tók 15 daga.
•
„Dýr sem hreyfa sig hafa útlimi og vöðva. Jörðin hefur hins
vegar hvorki útlimi né vöðva; þar af leiðandi hreyfist hún ekki.“
Scipio Chiaramonti.
•
„Við töldum það óhugsandi að jafnvel herra Lincoln sjálfur
gæti samið ræðu svo stílljóta, svo laustengda, svo barnalega,
ekki aðeins í uppbyggingu heldur einnig í hugmyndafræði, til-
finningum og skilningi. Hann hefur slegið sjálfum sér við.“
Chicago Times um Gettysborgar-ávarp Lincolns forseta, sem
hann flutti hinn 19. nóvember 1863, og sem fræðingar 20.
aldar höfðu í hávegum og vísuðu til sem fyrirmyndar um ræðu-
mennsku.
•
LISTIN AÐ HAFA
RANGT FYRIR SÉR
Félag skipstjórnarmanna óskar félagsmönnum
sínum og aðstandendum þeirra gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
Þökkum samstarfið á líðandi ári.
Félag skipstjórnarmanna
Með fagmennsku og færni í fyrirrúmi
Grensásvegi 13, 108 Reykjavík
Skipagötu 14, 600 Akureyri
Heimasíða www.officer.is og www.skipstjorn.is
Tölvupóstfang officer@officer.is og skipstjorn@skipstjorn.is