Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2008, Síða 47
Sjómannablaðið Víkingur - 47
Villa í sjókorti
Hugsanlegt er að villa í sjókorti hafi valdið því að skemmti-
ferðaskipið Sea Diamond strandaði og sökk við Santorini á síð-
asta ári með þeim afleiðingum að tveir farþegar fórust. Gríski
sjóherinn gaf nýlega út nýtt sjókort af svæðinu þar sem skipið
strandaði og kom þá í ljós að skerið sem Sea Diamond lenti á er
í nýja kortinu merkt sem rif sem nær 113 metra frá landi en á
eldra sjókorti náði það aðeins 58 metra. Strandstaðurinn er nú
sagður með um 5 metra dýpi í stað 18 til 22 metra dýpis í eldra
kortinu. Ekki hefur tekist að fá yfirlýsingu frá sjóhernum um
málið.
Fimm sænskar í áhöfn Atlantic Companion. Stýrimennirnir eru í gulu bux
unum.
Konur í sviðsljósi
Þegar ein atvinnugrein hefur sýnt að miklir atvinnumögu-
leikar séu í boði þá er eðlilegt að þangað flykkist fólk í
atvinnuleit. Konur hafa í æ ríkari mæli tekið stefnuna á sjóinn.
Áhöfnin á sænska gáma- og ekjuskipinu Atlantic Companion
hefur sannarlega fengið að njóta krafta kvenna á þessu ári
en af 18 manna áhöfn eru fimm konur og þar af fjórar þeirra
stjórnendur. Yfirstýrimaðurinn og annar stýrimaður eru kon-
urnar í brúnni en í vélinni er tæknistjórinn (yfirvélstjórinn) og
fyrsti vélstjóri kvenmennirnir þar. Þá er einn messinn um borð
kona. Yfirstýrimaðurinn Anneli Borg hafði á orði í viðtali við
Nautisk Tidskrift, sem er félagsblað skipstjórnarmannafélags-
ins sænska, að venjulega yfirgæfu konurnar sjóinn þegar þær
eignuðust börn. Ekki veit ég hvort þessum orðum hennar gætu
falist ábendingar til kollega hennar þar sem annar stýrimaður,
Victoria Quiding, er trúlofuð einum hásetanna um borð. Hjá
útgerð skipsins, AB Transatlantic, eru í dag 230 yfirmenn og
þar af eru 25 konur. Í nýlegri úttekt IFSMA, alþjóðasamtaka
skipstjóra, kemur í ljós að meðal starfsaldur kvenna á sjó eru 4
ár en karla 7 ár. Það má því segja að mikil þörf er á nýju fólki
inn í atvinnugreinina enda stoppa margir stutt við.
Vantaði pappíra
„Skipstjóri“ bandarísks dráttarbát á yfir höfði sér fimm ára
fangelsi og 250 þúsund dollara sekt fyrir að falsa atvinnu-
skírteini sitt. Það var útgerð dráttarbátsins sem tók eftir föls-
uninni og kærði hann til strandgæslunnar. Fyrir dómi við-
urkenndi skipstjórinn brot sitt en hann hafði fengið útgefið
atvinnuskírteini árið 2000 sem síðan var afturkallað árið 2005.
Skipstjóranum hafði síðan tekist að vinna í 227 daga á falsaða
skírteininu áður en upp um hann komst. Dómur verður kveð-
inn upp þann 21. janúar á næsta ári.
Hvalræði
Loka sagan að þessu sinni er einnig frá hinni ótrúlegu
Ameríku. Nú í byrjun desember taka gildi nýjar reglur sem ná
til skipa er sigla á austurströnd Bandaríkjanna og eiga að draga
úr hraða þeirra vegna hvala. Sú krafa verður gerð að skip sem
sigla nær landi en 20 sjómílur dragi úr ferð niður í 10 hnúta og
einnig eru skip beðin um að minnka ferð ef þau sjá til þriggja
eða fleiri sléttbaka utan þessa svæða. Samkvæmt upplýsingum
frá NOAA telja þeir að einungis 400 dýr séu eftir af þessari
tegund en svo er spurningin hvort rétt var talið. Það verður
eflaust erfitt fyrir skip í ströngum áætlunarsiglingum að þurfa
að hægja á sér um allt að helming. Spurningin er sú hvort síðan
komi bann við siglingu skipa að næturlagi þar sem ekki sjáist
þá til hvalanna.
Lausn á síðustu krossgátu