Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2008, Page 49
sem má finna á síðunni.
Mjög áhugaverða síðu fann ég á slóð-
inni http://www.american.edu/TED/
malacca.htm þar sem fjallað er um hið
umferðarmikla Malacca sund en þar
hafa orðið mörg sjóslys í gegnum tíðina.
Reyndar er mikið lesefni á þessari síðu
en engu að síður mjög áhugavert. Gefið
ykkur góðan tíma fyrir síðuna og þið
verðið ekki svikin af henni.
Til að skyggnast inn í framtíðina í
skipaheiminum er síðan hjá Ulstein
keðjunni í Noregi sú rétta. Slóðin www.
ulsteingroup.com leggur kúrsinn á hið
nýja stefnislag sem þegar hefur vakið
mikla athygli og má segja að skip verji
sig betur með því heldur en okkar hefð-
bundnu stefnum. Þar er líka hægt að
hlaða niður myndböndum frá smíði og
sjósetningu skipa sem þeir hafa verið að
smíða, sem er alveg ótrúlega gaman að
horfa á. Ég held að margir sem á þetta
myndband horfa halda að þeir séu að
skoða 5 stjörnu hótel en þegar menn átta
sig á því að þetta er um borð í nýtísku
skipi fara eflaust einhverjir að hugsa sér
til hreyfings. Síðan er mjög stílhrein og
ber þokka góðrar hönnunar.
Ég var að skoða íslenska skipasíðu
sem reyndar hefur verið fjallað um hér í
þessum pistlum og þá sá ég að vitnað var
í færeyska síðu þaðan sem viðkomandi
upplýsingar voru fengnar. Ég varð forvit-
inn og ákvað að skoða þessa síðu á http://
skipini.com og þá kom í ljós að þrír
færeyskir strákar Kiran Jóanesarson16
ára, Bárður Michaelsen 14 ára og Sverri
Egholm 13 ára halda þessari síðu úti.
Þeir segjast hafa fengið hugmyndina að
síðunni þegar þeir fóru að velta fyrir
sér framtíðaráformum sínum. Vissulega
frábært framtak hjá þessum upprennandi
skipaáhugamönnum.
Ef við nennum ekki að stunda mikinn
lestur yfir hátíðarnar þá er alltaf hægt að
fara á http://www.lloydslist.com/ll/news/
mediaCentre.htm?vyooclient=lloydslist
en þetta er slóð á fréttamiðilinn Lloyd’s
List en þar eru fluttir fréttapistlar, On the
Radar, úr skipaheiminum. Að vísu eru
þeir á ensku en það ætti nú ekki að vera
mikið vandamál. Þar eru líka athyglisverð
viðtöl við frammámenn í skipaheiminum
og sér pistlar um einstök málefni.
Alveg afskaplega fróðlega síðu,
Container Shipping Information Service,
er að finna á slóðinni http://www.ships-
andboxes.com/eng/. Þessi síða hefur svör
við öllu er varðar flutning á vörum með
gámum og verð ég að segja að hún er
nokkuð sem ætti að vera kennsluefni í
skólum en því miður er hún á ensku.
Hér er útskýrt mjög skemmtilega hvernig
vörurnar í búðunum komast frá framleið-
anda í gámum og þaðan á milli heimsálfa
sjóleiðina. Á síðunni er að finna slóð
á BBC fjölmiðlarisann og verkefni sem
þeir eru með varðandi ferðalag gáms um
heiminn. Þegar þetta var skrifað var gám-
urinn staðsettur um borð í gámaskipi á
Kyrrahafi á leið til Los Angeles.
Lokasíðan að þessu sinni er frá Svíþjóð
en tímaritið Shipping Gazette er að finna
á slóðinni www.shipgaz.com en það
fjallar um skipaheiminn eins og nafn-
ið gefur til kynna. Ef einhverjir eru að
hugsa sér til hreyfings úr landi þá er þar
að finna atvinnuauglýsingar en fyrir þá
sem ekki eru á þeim buxunum er hægt að
taka netnámskeið til að mennta sig meira.