Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1941, Page 25
Norræn jól
yfirdrottnun né arðrán, heldur eingöngu vinarhugur frændþjóða, er óska,
að öll fimm Norðurlandaríkin haldi hópinn og auki og treysti vináttu- og
bræðraböndin.
En nú heyrast stundum þær raddir, að samvinna Norðurlandanna hafi
rofnað fyrir rás viðburðanna, óheilindi og sundurþykkja skapazt, er örðugt
muni að færa í samt lag á ný. En ég ætla, að þessar skoðanir séu byggðar
á litlum skilningi og vanmati. Að vísu er nú fjörður á milli frænda og vík
á milli vina. En breiðari firðir og víðari víkur hafa áður verið yfirstign-
ar af hinum norrænu þjóðum.
Vor gamla sambandsþjóð, Danir, á nú í vök að verjast. Ofurefli hins
nazistiska nágranna hefur nú um skeið lagt hramm sinn yfir hina dönsku
þjóð. En allt bendir til þess, að þessi merkilega menningarþjóð muni losa
sig úr viðjunum, endurreisa sjálfstæði sitt, og ganga áfram eins og áður,
veg lýðræðis og félagslegs þroska og fullkomnunar. Við þessa ágætu þjóð
hafa Islendingar um margar aldir haft náin skipti. Og það er engin ástæða
til þess að rifja upp það, er miður hefur farið í þessum samskiptum.
Hitt er aðalatriðið, að sambúð þjóðanna og gagnkvæmur skilningur hefur
farið batnandi, eftir því sem lengur hefur liðið, og verður án efa þá beztur,
er hver þjóðin um sig hefur fullkomið frelsi og sjálfstæði. Og illa trúi ég
því, að hægt verði að nota andúð gegn Dönum, sem stjórnmálaagn á ís-
landi. Hitt þykist ég vita með vissu, að áfram haldi, aukist og eflist
margháttað samstarf og gagnkvæm kynni Dana og íslendinga.
Á tveim árum hefur Finnland tvisvar átt í styrjöld við óvæginn ein-
ræðis nágranna. I bæði skiptin hefur Finnland átt hendur sínar að verja
fyrir árásum. I fyrra skiptið varðist þessi þjóð af fádæma þreki og af-
burða hreysti, þótt þeim ójafna leik lyki með stórkostlegum fórnum
finnsku þjóðarinnar af mannslífum og landsvæðum. í síðara sinnið hefur
Finnland náð landi sínu á ný, og þess óska allir, er virða rétt smáþjóða,
að endurheimt landsins verði varanleg, og að Finnar geti sem fyrst kom-
izt út úr eldi styrjaldarinnar og haldið áfram að nytja í næði land sitt,
reisa úr rústum fallnar borgir og fái lifað lýðfrjálsu menningarlífi sínu
sem áður, í samstarfi við hin Norðurlöndin.
Noregur hefur ratað í dýpstar raunir allra Norðurlandanna. Landið
hefur með ofbeldi verið lagt undir grimmt ofbeldisríki eftir afburða
23