Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1941, Page 29

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1941, Page 29
Norræn jól II. Saga Norðmanna á 19. öld hefur borið svip æskunnar, framsóknar dugandi unglings, sem allt í einu gerir sér grein fyrir kröftum þeim, sem í honum búa, og neytir þeirra út í æsar. Það var engu líkara en þjóðin risi upp um 1814, hvíld og endurnærð af margra alda svefnmóki, eins og kol- bítur úr öskustó, og sækti fram með fágætri orku og árangri á öllum svið- um athafna og menningar. Samt má vitanlega sjá margvíslegan aðdrag- anda þeirrar viðreisnar á undanförnum öldum, ef betur er að gæít. En tæki- færin voru minni, meðan Noregur var hjálenda. Mikið af hæfileikum hefur farið forgörðum vegna þess, að skilyrði menntunar og þroska skorti í land- inu sjálfu. Þeir, sem brutust áfram og náðu mestum frama, eins og Tor- denskjold og Holberg, urðu að leita sér starfsviðs annars staðar, og afrek þeirra urðu föðurlandi þeirra ekki að eðlilegri frægð né notum. Það gefur að skilja, að ekkert hefur komið fram hjá norsku þjóðinni á 19. öld, sem bjó ekki í henni áður. Munurinn er sá, að tápinu og gáfunum voru smáni saman sett stærri takmörk, opnaðar fleiri brautir, betur að þeim hlúð og búið, þeim var nú beitt í þágu eigins lands. Hér er hvorki rúm né þörf á að telja fram allt það, sem þessi fámenna þjóð hefur afrekað frá 1814. Hún var þá ekki nema ein miljón að tölu og í höfuðstaðnum, Kristianíu, voru 11 000 íbúar. Öll verkleg og andleg menning bar þess merki, að landið hafði lotið erlendu valdi í hálfa fimmtu öld, ekki verið annað en sel frá höfuð- bóli. Síðan hafa Norðmenn rutt sér til rúms sem fyllilega sjálfstæð þjóð, jafnokar hinna norrænu þjóðanna á flestum sviðum, en á sumum komizt feti framar. Þeir hafa að tiltölu við fólksfjölda orðið mesta siglingaþjóð veraldarinnar, sýnt þar furðulegt framtak, sem fáir vita um til hlítar. C. J. Hambro sagði mér einu sinni, að þegar hann kom til Kaliforníu, hefði sér komið það alveg á óvart að fá vitneskju um, að mestallar strandferðir við vesturströnd Ameríku væru í höndum Norðmanna. Þarna væru menn í siglingum árum saman án þess að koma heim til Noregs. Þá hafa Norð- menn komið upp stórfelldum iðnaði og orkuverum og hagnýtt sér auðs- uppsprettur landsins, sem að ýmsu leyti er hart og naumgjöfult, með hugvæmni og atorku í senn. í bókmenntum og listum hafa þeir orðið ein af forustuþjóðum heimsins síðustu hundrað árin, og er því til sönn- unar nóg að nefna fáein nöfn: Henrik Ibsen, Björnstjerne Björnson, 27
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norræn jól : ársrit Norræna félagsins
https://timarit.is/publication/1682

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.