Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1941, Síða 54

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1941, Síða 54
Norræn jól vini, en það var kvartað þegar hann kom og glaðst þegar hann fór. Af honum var megn tóbaks- og brennivínslykt og þegar hann var búinn að fá nokkra snapsa eða einn „toddy“ varð hann drukkinn og sagði þá rudda- legar sögur. Hann var hrein plága á hinum gestrisnu heimilum. Ein jólin fór hann til Laufdala, þar sem Liljekrona, hinn mikli fiðlu- leikari bjó. Liljekrona hafði verið einn af „kavaljerunum“ á Ekeby, en eftir dauða majórsfrúarinnar fór hann heim til sín að Laufdölum og bjó þar síðan. Ruster kom til hans nokkrum dögum fyrir jól, í mestu jólaönn- unum, og bað um vinnu. Liljekrona lét hann skrifa dálítið af nótum. „Þú hefðir átt að láta hann fara strax aftur,“ sagði konan. „Nú treinir hann sér þetta svo lengi, að við sitjum uppi með hann um jólin.“ „Einhvers staðar verður hann þó að vera,“ svaraði Liljekrona. Og svo bauð hann Ruster upp á „toddy“ og brennivín, sat hjá honum og rifjaði upp endurminningarnar frá Ekebyverunni. En Liljekrona var samt í slæmu skapi og leiður á Ruster, þó hann vildi ekki láta á því bera, því gömul vinátta og gestrisni voru honum heilög. A heimili Liljekrona hafði jólaundirbúningurinn staðið í þrjár vikur. Fólkið hafði haft ákaflega annríkt, vakað svo að augun voru orðin rauð og þrútin af vökum og reyk. Það hafði verið kalt í skemmunni, þar sem kjötið var saltað, og eins í brugghúsinu við ölgerðina. En bæði húsmóðirin og vinnufólkið sætti sig samt við þetta, allt vegna tilhlökkunarinnar til aðfangadagskvöldsins og þeirrar helgistemmningar, er það átti von á að njóta þetta kvöld. Jólin mundu hafa þau áhrif að vekja hjá því gleði, gaman- semi og skáldskapargáfu, svo að kvæðin myndu liggja því á tungu án minnstu fyrirhafnar. Það kæmi fjör í fætur þess, svo það langaði til þess að dansa, dansvísurnar myndu vakna úr djúpum minninganna, þó maður héldi að þær væru alveg' gleymdar. Á aðfangadagskvöld yrðu allir svo glaðir og góðir. Þegar Ruster kom fannst öllu heimilisfólkinu í Lauídölum að jóla- gleðin væri eyðilögð. Húsmóðirin, börnin og gamla vinnufólkið var allt á sömu skoðun. Návist Rusters vakti hjá því angist og kvíða. Það var hrætt um, að þegar þeir Liljekrona færu að rifja upp gamlar endurminn- ingar myndi listamannsblóðið ólga í æðum hins mikla fiðluleikara, og að heimilið missti hann á ný. Hann hafði aldrei getað staðnæmzt lengi heima. 52
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norræn jól : ársrit Norræna félagsins
https://timarit.is/publication/1682

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.