Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1941, Síða 88

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1941, Síða 88
Norræn jól Samt er það sannast mála, að þegar litið er yfir líðandi ár, má það valda mestum áhyggjum hvaða áhrif árið hefur á framtíð þjóðlegrar, andlegrar menningar íslendinga. Mál okkar og menning og þjóðlegar minningar og þjóðlegar þroska- og sjálfstæðisvonir eru nú í þeirri deiglu, sem enginn veit hvað úr kemur. Örlítil útkjálkaþjóð fær þar engu um þokað. Smáþjóðirnar fá í Ieikslokin hver sinn skammt. Smáþjóðirnar hafa reyndar lagt menning- unni til mörg frjósömustu og fínustu verðmæti hennar. Þær hafa oft verið til fyrirmyndar um skipulag mála og skynsamlega úrlausn á vandræðum og góða varðveizlu á verðmætum lífsins. Árið, sem er að líða, hefur verið ár eyðilegginganna á slíkum verðmætum, ár vaxandi vandræða og ár kyrkings- ins í þeim vexti, sem fíngerðastur er og beztur. Öllu er nú einbeitt í óáttina, í kraftinn og niðurrifið. En jafnvel upp úr slíku óárani í mannfólki og félagsanda heimsins getur vaxið nýtt líf og ýmislegt gott og nytsamlegt skapazt úr þeirri reynslu og þeim rannsóknum,, sem nú eru gerðar í þágu styrjaldarinnar, þó að betur hefði þeim verið varið til annars. íslendingar hafa ekki einungis fengið að reyna sætleik ársins í árgæzku og gróða. Þeir hafa einnig orðið fyrir áföllunum og þurft að þola harmana. Öllum eru sárlega minnisstæð skipatjón og mannskaðar af völdum styrj- aldarinnar. Ekki þarf að ýfa það upp. En menn minnast í þakklæti allra þeirra, sem þannig lögðu líf sitt fram. Ársins 1941 verður minnzt fyrir marga hluti þó að gróði þess gufi upp. Merkilegir atburðir gerðust í stjórnmálalífi landsins, s. s. kosning fyrsta ríkisstjórans. Bandaríkin tóku sér hervernd landsins. Breytingar urðu á verzlunarháttum. Kosningum var frestað. Háskólinn var aukinn, s. s. bætt við námi í viðskiptafræðum. Ráðin var stofnun húsmæðraskóla. Margt fleira væri gott að telja: garðyrkjusýningu, Iistsýningar, fornminjarannsóknir, skólahald, rausnarlegar gjafir til góðra mála og mikla og margbreytta bóka- útgáfu. En hér verður enginn annáll rakinn. Þetta má aðeins skoða sem fá- orðan formála að nokkrum myndum, sem sýna ýmsa atburði ársins. Seinna kemur sagan og metur árið og vegur á sína vog. Þá sjá menn sjálfsagt sumt öðruvísi en við gerum nú. Sumt, sem nú er stórt, verður þá smátt. Annað, sem nú kann að fara fram hjá okkur, eða er okkur hulið, hefur þá máske borið mikilsverðan ávöxt. Það eru ekki ávallt fyrir- ferðarmestu árin sem frjósömust verða. Máske verður þetta auðuga ár fátækt 86
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norræn jól : ársrit Norræna félagsins
https://timarit.is/publication/1682

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.