Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1941, Síða 97
Norræn jól
Páll ísólfsson organleikari og
Vilhj. Þ. Gíslason skólastjóri.
Ritari: Guðlaugur Rósinkranz, Ásvallagiitu 58. Sími 2503, oftast við kl. 6 7 síðd.
Stjórn Akureyrardeildar: Steindór Steindórsson menntaskólakennari,
formaður, Sveinn Bjarman aðalbókari, ritari og Axel Kristjánsson heildsali.
Stjórn ísafjarðardeildar: Haukur Helgason bankafulltrúi, formaður, Guð-
mundur Jónsson frá Mosdal, ritari, Björn H. Jónsson skólastjóri, Jónas Tómasson
bóksali og Ólafur Björnsson kennari.
Stjórn Siglufjarðardeildar: Baldvin Þ. Kristjánsson bókari, formaður,
Friðrik Hjartar skólastjóri, ritari, Jónas Björnsson afgreiðslumaður, Óskar Sveinsson
húsasmíðameistari og Vigfús Friðjónsson verzlunarmaður.
Danmörk
Af starfi félagsins þar hefur ekkert frétzt annað en að nokkrir rithöfundar og lista-
menn fóru til Svíþjóðar á danska viku, sem þar var haldin í marz siðastliðnum.
Noregur
Þaðan hafa félaginu hér engar fréttir borizt.
Finnland
í byrjun ársins gaf bergsráðið L. Baumgartner félaginu herragarðinn Svartá. Það
er stór og glæsileg bygging, frá því um 1800, með öllum tilheyrandi húsgögnum, sem eru
gömul, einkar vönduð og virðuleg. Félagið hefur því fengið þarna glæsilegt og vistlegt
heimili. Ný deild var stofnuð í Ábo þann 15. febrúar og önnur í Knopi þann 23. marz.
Þá hefur félagið hafið útgáfu á tímariti, sem fjallar um norræn menningarmál og félags-
mál. Félaginu áskotnaðist á þessu ári 250000 marka dánargjöf, til eflingar
norrænni samvinnu. frá fyrrverandi formanni félagsins, senator Otto Stenroth, er lézt
síðastliðið ár. Norrænn dagur var haldinn 27. marz með þeim hætti, að fyrirlestrar
voru fluttir um norræn efni fyrri hluta dagsins í háskólunum, en síðari hluta dagsins
voru hátíðahöld á ýmsum stöðum, með norrænni dagskrá.
Svíþjóá
Félagið hélt 18.—29. marz námskeið fyrir unga menntamenn, um
norræn málefni. Dönsk vika var haldin í Stokkhólmi í marz. Danskir vísindamenn,
rithöfundar og listamenn komu til Stokkhólms og héldu fyrirlestra, lásu upp, sungu og
léku. Félagið gekkst fyrir námskeiði fyrir hússtjórnarkennslukonur
í Gautaborg 3.-9. ágúst. Ekki er kunnugt hve mikil þátttaka hefur verið, en 25 kennslu-
konum mun hafa verið boðið frá hverju landi. Að öðru leyti er félaginu hér ókunnugt um
starf félagsins í Svíþjóð þar eð vér höfum ekkert beint samband haft við félagið.
95