Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1986, Blaðsíða 8
Lyktir Handritamálsins
Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra og Bertel Haarder kennslumálaráðherra Dana við
undirritun bókunar um lyktir handritamálsins á Pingvöllum 1. ágúst í sumar.
Samkvæmt dönsku handritalögunum
frá 1961, sem aftur voru samþykkt
óbreytt á danska þjóðþinginu 1965,
skyldi nefnd fjögurra manna kanna
handritin og leggja fyrir danska for-
sætisráðherrann tillögu um það hvaða
handrit ættu að fara til íslands sam-
kvæmt ákvæði laganna. Tveir nefnd-
armenn skyldu tilnefndir af Kaup-
mannahafnarháskóla og tveir af Há-
skóla íslands. Eftir að sáttmálinn um
handritaskilin hafði verið fullgiltur
1971 voru skipaðir í nefndina af hálfu
Danmerkur Chr. Westergárd-Nielsen
prófessor og dr. Ole Widding, en af
íslands hálfu Jónas Kristjánsson
forstöðumaður Árnastofnunar á ís-
landi og Magnús Már Lárusson þá-
verandi rektor Háskóla íslands.
Nefndin hélt fyrsta fund sinn í júlí
1972 og síðan hvern af öðrum, að
jafnaði fjóra fundi á ári, til skiptis í
Danmörku og á íslandi. Að loknum
42. fundi í september 1984 þótti sýnt
að nefndin kæmist ekki að fullu sam-
komulagi, og var ágreiningur um tæp
200 handrit í Árnasafni.
Umræður fóru fram milli
kennslumálaráðherra Danmerkur og
menntamálaráðherra íslands, og í júlí
1985 lagði danski ráðherrann fram
ákveðnar tillögur til lausnar málinu.
Tveir danskir fræðimenn, Iver Kjær
lektor og John Kousgárd Sörensen
prófessor, höfðu tekið að sér að semja
tillögur þessar að beiðni ráðherrans.
Óhætt er að segja að íslendingar
töldu tillögurnar ganga nokkuð
skammt. Samkvæmt þeim skyldi að-
eins lítill hluti hinna umdcildu hand-
rita falla í okkar hlut, enda virtust
okkur sjónarmið þau, sem lágu til
grundvallar tillögunum, vera ærið
vafasöm.
Hinn 14. janúar 1986 héldu danski
kennslumálaráðherrann, Bertel Haar-
der, og íslenski menntamálaráð-
herrann, Sverrir Hermannsson, fund í
Kaupmannahöfn. Varð að ráði með
þeim að fengnir skyldu fjórir fræði-
menn, tveir frá hvoru landi, til að
leitast við að skipta handritunum sem
ágreiningur var um í gömlu handrita-
nefndinni. Danski ráðhcrrann kjöri til
þessa verks fyrrncfnda tvo háskóla-
kennara, Iver Kjær og John Kous-
gárd Sörensen, en íslenski ráðherrann
kjöri dr. Jakob Benediktsson og und-
irritaðan Jónas Kristjánsson. Dönsku
fulltrúarnir töldu sig ekki vera nægi-
lega sérfróða um handrit, og því var
Jonna Louis-Jensen prófessor fengin
þeim til aðstoðar á fundinum. Á sama.
hátt fengu íslensku fulltrúarnir sér til
aðstoðar dr. Ólaf Halldórsson, sem
verið hafði varamaður og ritari af ís-
lands hálfu í handritanefndinni.
Lundurinn var haldinn í gömlu
háskólabyggingunni í Kaupmanna-
höfn. Hann hófst síðdegis 21. janúar
og lauk með undirskrift lokatillagna
28. janúar. Samkvæmt þeim tillögum
skyldu alls 84 af fyrrgreindum ágrein-
ingshandritum fara til íslands. Meðal
sérstakra kjörgripa má telja Stjórnar-
handritið AM 227 fol., eitt fegursta
íslenskt handrit sem til er.
Samkvæmt dönsku handritalögun-
um er fullnaðar-ákvörðun um afhend-
ingu handritanna í höndum danska
forsætisráðherrans, en honum ber að
hafa samráð við kennslumálaráðherra
Danmerkur og íslands. í samræmi
við tillögur okkar fræðimannanna
gerðu ráðherrarnir tveir, Bertel Haar-