Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1986, Blaðsíða 38
Norðurkolluferð
sumarið 1986
í júnímánuði síðastliðnum efndi
Norræna félagið á íslandi til tveggja
vikna námsferðar til Norðurkollu fyrir
ungt fólk. Skipulagningu ferðarinnar
annaðist Norræna félagið á íslandi í
samvinnu við norrænu félögin í Norr-
botten í Svíþjóð og Rovaniemi í Finn-
landi, Nordnorsk kulturrád og Lýðhá-
skólann í Kiruna. Hér á eftir fer frá-
sögn af ferðalaginu.
Um miðjan dag hinn 16. júní síð-
astliðinn lagði hópur ungs fólks úr
nokkrum deildum Norræna félagsins
á íslandi af stað í ferðalag um Nord-
kalotten eða Norðurkollu, en svo nefn-
ast norðurhéruð Skandinavíu einu
nafni.
Ferðin hófst með flugi frá Kcflavík
áleiðis til Helsinki og þar var lcnt
laust fyrir miðnætti.
Næsta dag var dvalið í Helsinki og
haldið svo á þriðja degi til borg-
arinnar Rovaniemi í Norður-Finn-
landi. Þar átti hópurinn að hitta farar-
stjórann Kristínu Stefánsdóttur.
Þótt hópurinn væri fararstjóralaus
fyrstu dagana var vel séð fyrir okkur
því að Reynir Ingibjartsson, sem
ásamt fjölskyldu sinni var okkur sam-
ferða í vélinni, hafði tekið að sér það
hlutverk að vera leiðsögumaður hóps-
ins í Helsinki.
Við sem tókum þátt í hópferðinni
höfðum ekki hist fyrir brottför og til
auðkenningar bárum við því nafn-
spjöld með merki Norræna félagsins.
Þegar við vorum lent í Helsinki og
höfðum fundið farangur okkar og
hvert annað, héldum við áleiðis inn í
borgina í leigubílum. Þá fyrst fundum
við fyrir því að vera komin til annars
lands því að leigubílstjórarnir töluðu
bara finnsku og við skildum ekki orð.
Fyrsti áfangastaður okkar í Helsinki
var Hótel Academika í miðborg Hels-
inki. Það er heimavist sænskumæl-
andi háskólanema á vetrum en hótel á
sumrin.
Þó að degi væri tekið að halla gætti
engrar ferðaþreytu meðal okkar og
var því ákveðið að skella sér á næsta
diskótek og líta á skemmtanalíf
frænda vorra Finna. Næsta diskótek
var í kjallara hótelsins og því ekki
langt að fara. Þar spilaði bresk hljóm-
sveit. Fámennt var á diskótekinu og
nær engir Finnar. Einu gestirnir fyrir
utan okkur voru sænskir mótorhjóla-
gæjar. Eftir lokun diskóteksins geng-
um við niður í bæ. í gönguferðinni
ræddum við um fyrstu reynslu okkar
af skemmtanalífi Finna, sem sumum
þótti heldur fábrotið, en það var nú
ekki að marka því að þetta var á
mánudegi.
Daginn eftir hittist hópurinn á ný
við morgunverðarborðið og var
ákveðið að fara fyrst og skoða hina
frægu Tempel-kirkju. Kirkjan, sem
vígð var árið 1969, er mjög nútímaleg
með hringlaga klettaveggjum og
koparlögðu þaki. Kirkjan er fræg fyrir
góðan hljómburð og hann fengum við
að heyra því að amerísk stúlka var að
spila á orgel og syngja þegar okkur
bar að.
Eftir að hafa skoðað kirkjuna geng-
um við í átt að Þjóðminjasafninu og
Finlandia-húsinu. í Þjóðminjasafninu
sáum við konungamyndir, myntsöfn,
altaristöflur, muni úr lífi alþýðufólks
og fleira sem of langt yrði upp að telja
hér.
Eftir hádegi var svo frjáls tími og
mannlíf, verslanir og fleira skoðað.
Við hittumst um kvöldmatarleytið og
héldum upp á sautjánda júní í tívolí-
inu í Helsinki.
Það sem af var ferðinni hafði veðrið
leikið við okkur og hitinn ekki farið
undir 30 stig.
Þriðja deginum þurftum við að
eyða í ellefu tíma lestarferð í 33 stiga
hita norður til Rovaniemi sem er
höfuðborg fmnska Lapplands.
Þó heitt hafi verið og margir mókt í
hitanum, þá leiddist okkur ekki.
Þarna fengum við tækifæri til að kynn-
ast hvert öðru, auk þess sem nokkra
forvitna Finna fýsti að vita eitthvað
um ísland. Við svörðuðum eftir bestu
getu þrátt fyrir tungumálaerfiðleika.
Yfirleitt vissu Finnar lítið annað um
ísland en að forsetinn héti Vigdís og
að á íslandi væru jöklar og heitir
hverir. Viðmælendur okkar vildu líka
segja okkur frá Finnlandi og urðum
við margs vísari um landið, sérstak-
lega um þau héruð sem við áttum eftir
að ferðast um.
Klukkan níu að kvöldi vorum við
loks komin til Rovaniemi. Þar tók á
móti okkur Irma Láhdesmáki, einn af
forystumönnum Norræna félagsins,
ásamt Ulf Piippola, rútubílstjóra, sem
átti eftir að aka með okkur um
Norðurkollusvæðið.
Norræna félagið í Rovaniemi bauð
okkur í kvöldverð og snæddum við
hreindýrakjöt. Eftir að hafa komið
okkur fyrir á sumarhóteli í iðnskólan-
um, fórum við í gönguferð inn í mið-
bæ Rovaniemi til að átta okkur á stað-
háttum í bænum. Ferðin varð þó ekki
löng og við flýttum okkur til baka til
að horfa á leik Dana og Vestur-Þjóð-
verja í heimsmeistarakeppninni í