Fréttablaðið - 15.09.2022, Page 14

Fréttablaðið - 15.09.2022, Page 14
Ungt fólk vill og getur haft áhrif. Það þarf að vinna stöðugt að því að opinn vettvangur fyrir ungmenni innan samfélagsins sé tryggður. Sumir vilja meina að börn og ung- menni hafi ekki áhuga á að láta skoðanir sínar í ljós en raunin er að börn og ungmenni eru stór rétt- indahópur sem þarf að lifa með þeim ákvörðunum sem fullorðna fólkið tekur núna í dag. Starf ungmennaráða Ungmennaráð star fa í f jölda sveitarfélaga og eiga sveitarstjórnir að hlutast til um stofnun þeirra. Ungmennaráð hafa það hlutverk að vera rödd barna og ungmenna innan stjórnsýslunnar og ýta undir lýðræðislega þátttöku barna og ungmenna í sínu samfélagi. Ung- mennaráð eru einnig gríðarlega mikilvægur vettvangur fyrir börn og ungmenni þar sem þau geta komið skoðunum sínum á framfæri. Í sveitarfélögunum okkar, Reykja- nesbæ (skipað ungmennum frá 14-18 ára) og Akureyrarbæ (skipað ungmennum frá 13-18 ára), starfa öflug ungmennaráð sem sinna fjöl- breyttum verkefnum á borð við: Ungmennaráð til ráðamanna n Bæjarstjórnarfund Unga fólksins n Ungmennaþing / Stórþing ung- menna n Áheyrnarfulltrúa í ráðum og nefndum n Skipulags- og mannvirkjamál (strætó, deiliskipulög, o.fl.) n Samstarfsverkefni með er- lendum ungmennaráðum og ungmennasamtökum Þrátt fyrir að sinna svipuðu starfi, og vera hluti af verkefninu Barn- væn sveitarfélög, eru ráðin á mis- munandi stað hvað varðar stöðu sína innan stjórnsýslunnar. Sem dæmi má nefna fá fulltrúar Ung- mennaráðs Akureyrarbæjar greidda fundarsetu, bæði fyrir vinnu í ráð- inu og fyrir vinnu sem áheyrnarfull- trúar (Fræðslu- og lýðheilsuráð og Umhverfis- og mannvirkjaráð) en fulltrúar Ungmennaráðs Reykja- nesbæjar fá ekki greidda fundarsetu en hafa þó fleiri áheyrnarfulltrúa í f leiri ráðum bæjarins (fræðsluráð, íþrótta- og tómstundaráð, lýð- heilsuráð, menningar- og atvinnu- ráð, umhverfis- og skipulagsráð og velferðarráð). Námskeið UNICEF Þann 17. mars og 28. maí síðastlið- inn tókum við þátt í verkefni með UNICEF sem var haldið með það í huga að efla ungmennaráð, byggja og styrkja tengsl á milli þeirra ásamt því að hlúa að upplýsingamiðlun milli ráða. Þar var gefin aukin fræðsla um réttindi barna og ung- menna, Barnvæn sveitarfélög, en í lok námskeiðsins settu meðlimir ungmennaráðanna saman ráð til ráðamanna. Þau má sjá hér: Ráð til ráðamanna 1. Ungmennaráð þarf að vera upplýst um það sem fram undan er í sveitarfélaginu. 2. Ekki taka ákvarðanir sem varða börn og ungmenni án þess að þau mál séu lögð fyrir ungmennaráð. Það má senda fleiri mál til umsagnar til ung- mennaráðs. 3. Tryggja þarf aðgengi ung- mennaráðs að upplýsingum á barnvænu máli. 4. Tryggja þarf ungmennaráði fræðslu, m.a. um rétt barna til þátttöku og þjálfun í því að nýta rödd sína og um það hvernig stjórnsýsla sveitar- félagsins virkar. 5. Bera þarf virðingu fyrir börnum og ungmennum og taka hug- myndum þeirra alvarlega. 6. Ungmennaráð ættu að fá fleiri tækifæri til þess að koma inn á bæjarstjórnarfundi og eiga áheyrnarfulltrúa í nefndum og ráðum. 7. Það þarf að kynna starf ung- mennaráða betur bæði fyrir börnum og fullorðnum. 8. Ungmenni ættu að fá greitt fyrir fundarsetu. 9. Fundartímar, t.d. hjá ráðum og nefndum, þurfa að henta börnum. Það þarf að passa að börnin séu ekki í skóla eða með aðrar skuldbindingar á fundar- tíma. 10. Sveitarfélög ættu að tryggja eftirfylgni. Ungmennaráð ætti að fá að vita hvaða áhrif þátttaka þeirra hafði og ef hugmyndir voru ekki fram- kvæmdar þarf að útskýra hvers vegna. 11. Það er mikilvægt að ráðamenn séu heiðarlegir, ekki bara „næs“. 12. Verkefni sem snúa að börnum og ungmennum ættu að vera vel fjármögnuð. Á námskeiðinu hjá UNICEF lærðum við alls konar hluti sem við í Ungmennaráðum getum svo sannarlega nýtt okkur! Til dæmis lærðum við um þátttökustiga Harts þar sem okkur var sagt frá mis- munandi þátttökuþrepum eins og t.d. muninum á sýndarþátttöku og raunverulegri þátttöku. Við viljum nýta tækifærið til þess að þakka UNICEF kærlega fyrir það tækifæri að hafa fengið að taka þátt í þessu námskeiði. Ennþá langt í land Frá upphafi hefur UNICEF verið ungmennaráðum og sveitarfélögum innan handar með góðum árangri, alls staðar á landinu má sjá öflug ungmennaráð rísa og styrkjast en það sýnir okkur líka bara eitt: Ungt fólk vill og getur haft áhrif. Sú brenglaða valdadýnamík milli full- orðinna og ungmenna sem er orðin svo rótgróin í samfélaginu er múr sem þarf að brjóta niður fyrir fram- vindu samfélagsins en ungt fólk mætir oft miklu mótlæti þegar það lætur rödd sína heyrast um þau mál sem þau vilja láta sig varða. Þrátt fyrir mikla velgengni verður þó alltaf að hafa í huga að það verð- ur að halda áfram að byggja ofan á það sem nú þegar hefur verið byggt upp, þessi vinna og verkefnið Barn- væn sveitarfélög er ekki bara fínt skraut eða eitthvað geggjað nútíma- lega töff dæmi sem ráðamenn geta valið að taka þátt í einu sinni og síðan bara sagt það gott. Þetta er verkefni sem allir þurfa að vinna að, hvort sem maður er ungur eða eldri, ráðamaður eða manneskjan sem býr í húsinu úti á næsta horni, við þurfum öll að hjálpast að. Fyrir þá sem vilja dýpka þekk- ingu sína á þessum málefnum og fræðast enn frekar um mikilvægi þess að ungt fólk hafi rödd og stöðu innan samfélagsins og stjórnsýsl- unnar viljum við benda á ráðstefnu UNICEF um þátttöku barna sem verður haldin 15. september næst- komandi og við hvetjum alla sem hafa áhuga, hvort sem þau vinna mikið með börnum eða hafa hrein- lega bara áhuga á að efla sitt sam- félag, til að fylgjast með ráðstefn- unni þar sem fræðsla er gríðarlega mikilvægt framtak í baráttunni um réttindi barna! n Betsý Ásta Stefánsd óttir fulltrúi í Ungmennaráði Reykjanesbæjar Hermann Borgar Jakobsson fulltrúi í Ungmennaráði Reykjanesbæjar Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi í Ungmennaráði Akureyrarbæjar Ungmennaráð eru einnig gríðarlega mikil- vægur vettvangur fyrir börn og ungmenni þar sem þau geta komið skoðunum sínum á framfæri. HJARTA OG ÆÐAKERFI ARCTIC HEALTH AHI.IS OMEGA-3 COLLAGEN HREIN ÍSLENSK FÆÐUBÓT Í POKUM FYRIR LÁGMARKS KOLEFNISSPOR 14 Skoðun 15. september 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.