Fréttablaðið - 15.09.2022, Qupperneq 48
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Kolbeins
Marteinssonar
n Bakþankar
Leitin að hamingjunni, lífsfyllingu
eða friðinum er eitt stærsta verk-
efnið sem við sem manneskjur
stöndum frammi fyrir. Hvernig
við skilgreinum þetta ástand er
síðan jafn ólíkt og við erum mörg.
Sjálfur hef ég skilið hamingju
þannig að tveir grundvallarþættir
þurfi að vera í lagi til að hægt sé að
nálgast þetta ástand. Við þurfum
í fyrsta lagi að vera ánægð með
stöðu mála í lífi okkar, ástarlíf,
félagslíf, vinnu, fjármál og helst
vera þakklát. Síðan er það hin
hliðin sem krefst þess að tilfinn-
ingar okkar séu í jafnvægi og að
við finnum í sálinni ró.
Mér hefur oft fundist ágætt að
sjá leitina að hamingjunni eins
og slönguspil, spil sem við f lest
höfum spilað og gengur út á að
komast frá upphafsreit að enda-
stöð með teningakasti. Á leiðinni
getur maður lent á stiga sem færir
mann upp um reiti eða slöngu
sem hendir manni lóðbeint til
baka. Þannig held ég að sé ágætt
að sjá leitina að lífshamingjunni,
maður nær þó sjaldnast endastöð
en færist fram með hverju kasti
og stundum aftur. Áföll, veikindi,
átök og vímuefnaneysla eru ágætis
dæmi um slöngur sem senda
mann aftur. Fæðing barna, gefandi
vinna, heilsa og heilbrigt fjöl-
skyldulíf eru svo dæmi um stiga
sem færa okkur upp.
Settu því upp slönguspilið að
þinni lífshamingju í höfði þínu.
Skoðaðu hvar þú ert í dag og þakk-
aðu fyrir stigana sem hafa komið
þér þangað sem þú ert. Mundu að
slöngurnar sem sendu þig aftur
kenndu þér að meta það sem þú
hefur og hverfulleika þess. Reyndu
því að temja þér þakklæti fyrir það
sem þú ert og það sem þú hefur. Ef
það er ekki staðan er gott að muna
að það kemur fljótlega að þér að
kasta aftur. n
Slöngur og stigar
Allt
fyrir
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
www.partybudin.is
Fjölnotapoki
fylgir hverri
afgreiðslu í dag
Plastlaus september
Góður
þrýstingur
Easy aqutak
110bör
háþrýstidæla
21.036
26.295
Universal
130bör
háþrýstidæla
31.916
39.895
Universal
140bör
háþrýstidæla
48.716
60.895
Universal
150bör
háþrýstidæla
75.596
94.495
vnr. 74810232
vnr. 74810238
vnr. 74810246
vnr. 74810250
-20%
-20%
-20%
-20%
B
ir
t m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
p
re
nt
vi
ll
ur
o
g/
eð
a
m
yn
da
br
en
gl
.