Fréttablaðið - 15.09.2022, Side 23
ÁS Snjöll Heilsa hefur í
samstarfi við sænskt heilsu-
tæknifyrirtæki búið til
snjallheilsulausnina HEALO.
Það er stafrænn sjúkra-
þjálfari sem býður sérsniðna
meðferð fyrir notandann og
styttir biðina eftir þjónustu.
Stofnendur og eigendur fyrirtæk-
isins eru Árni Baldvin Ólafsson og
Svanur Snær Halldórsson, sjúkra-
þjálfarar með framhaldsmenntun
í hnykkingum, nálastungum og
stoðkerfis-ómskoðun, ásamt Inga
Birni Ágústssyni, sérfræðingi í
snjalllausnum.
Árni segir að upphafið að
HEALO megi rekja til ársins
2019 þegar hann fékk símtal frá
gömlum bekkjarfélaga úr sjúkra-
þjálfuninni sem sérhæfði sig í fjar-
heilbrigðisfræðum í Svíþjóð.
„Hún vinnur hjá fyrirtæki sem
er með þessa snjalllausn og vildi
hitta mig og kynna hana fyrir
mér. Þetta var fyrir Covid. En
þegar Covid skall á vorum við
nýbúnir að fá leyfi hjá landlækni
til að nota HEALO sem verkfæri
í sjúkraþjálfun. Við byrjuðum
að nota HEALO mikið þegar við
þurftum að loka vegna Covid og
þá komst smá reynsla á þetta.
En þegar allt var opnað fórum
við aftur að vinna með fólki á
staðnum og þessi lausn sat á hak-
anum,“ segir Árni.
„En svo nefnum við þessa lausn
við Inga Björn félaga okkar. Hann
hafði þá nýlega úlnliðsbrotnað og
fékk blað frá spítalanum varðandi
liðkun á úlnlið. Hann hugsaði
að það gæti verið gott að hafa
æfingar sjúkraþjálfara og aðgang
að honum beint með appi og þá
fórum við að þróa appið í sam-
vinnu við sérfræðingateymið í
Svíþjóð. “
Sérsniðin snjallþjálfun
HEALO virkar þannig að fólk fer
inn á vefinn healo.is til að skrá sig
í þjónustuna. Í kjölfarið fer fólk í
gegnum staðlaðan spurningalista
með aðstoð HEALO og út frá því
metur kerfið hvaða æfingar henta
viðkomandi og býr til persónu-
miðaðar æfingaáætlun. Æfing-
arnar eru í myndbandsformi og
á rauntíma, einnig getur fólk haft
samband við sjúkraþjálfara í
öruggu spjalli og þeir geta þá leið-
beint því með æfingarnar.
„Kerfið metur hæfni ein-
staklings til meðferðar eða hvort
nánari rannsóknir þurfi með því
að gefa viðkomandi f lagg, rautt,
gult eða grænt. Ef þú færð rautt
f lagg þá þarftu að fara beint til
læknis eða hitta sjúkraþjálfara.
Þá höfum við samband og getum
gripið einstaklinginn. Grænt f lagg
merkir að það megi byrja stafræna
sjúkraþjálfun strax en gult f lagg
þýðir að hægt er að hefja endur-
hæfingu í gegnum appið en við-
komandi gæti samt þurft nánari
skoðun. Þegar einhver skráir sig í
kerfið fær sjúkraþjálfari tilkynn-
ingu um það og er í beinu sam-
bandi við skjólstæðinginn sem
gerir æfingar sem annað hvort
kerfið velur eða við breytum,“
útskýrir Árni.
Hver meðferð er 3-5 æfingar
sem yfirleitt taka um 2 mínútur
hver, að sögn Árna. En hægt er að
svara spurningum um fleiri en
eitt vandamál í appinu. Þannig er
til dæmis hægt að fara í meðferð
vegna verks í öxl og mjóbaki á
sama tíma ef vandamálin eru þar.
„Notendur meta verkina sína á
skalanum 0-100 á mjög auðveldan
máta í appinu, bæði fyrir og eftir
hverja notkun. Þannig getum við
fylgst með hvernig ástandið er að
þróast yfir tíma og bætt við eða
breytt æfingunum ef þess þarf.
Þannig er fylgst með hvernig fólk
er að bregðast við meðferðinni,
hvort fólk er að gera ráðlagðar
æfingar og þá gripið inn í ef þarf,
verið með hvatningu, mark-
miða setningu, skipulögð almenn
hreyfing og annað heilsutengt,
allt í samvinnu við notandann.
Markmiðið er jú að gera hann
verkjaminni, virkari og að hann
geti stundað sín áhugamál án
vandamála. Fólk er ekki alltaf
að gera sömu æfingarnar því við
erum að vinna í að bæta ein-
staklinginn.“
Enginn biðtími
„Kosturinn við HEALO-kerfið
er að það hentar f lestum, bæði
sem endurhæfing en líka sem
forvarnartæki, til að fyrirbyggja
krónísk vandamál. Annar kostur
er að þetta styttir biðtíma eftir
sjúkraþjálfun töluvert. Þú þarft
ekki að bíða eftir að komast að hjá
lækni sem gefur þér tilvísun og
bíða svo áfram eftir að komast að
hjá sjúkraþjálfara. En það getur
alveg verið nokkurra mánaða bið
í að komast að í sjúkraþjálfun
og á meðan er beðið er ekki
verið að lækna eða meðhöndla
verkina. Með þessu kerfi getur
fólk strax hafið meðhöndlun á
sínum vandamálum í samráði við
sjúkraþjálfara og það getur gert
æfingarnar á hvaða tíma sem því
hentar. Æfingarnar miða við að
þú getir gert þær í stofunni heima
eða við skrif borðið í vinnunni,
þú þarft ekki sal eða tæki,“ segir
Árni.
„Kerfið getur fækkað endur-
komum á sjúkrahús og heilsu-
gæslur því skjólstæðingurinn
þarf ekki að mæta á svæðið til að
fá uppfærðar æfingar. Þar sem
HEALO er samþykkt lækningar-
tæki þá getur fólk treyst því að
þjáfunin er fagleg, ekki YouTube-
lækningar,“ bætir hann við og
heldur áfram:
„Snjallsjúkraþjálfun er komin
til að vera. Þjónustan er persónu-
leg. Hún er góð bæði sem forvörn
og líka til að meðhöndla vanda
sem er þegar til staðar. Hún er
mikilvæg til að létta á heilbrigðis-
kerfinu til að stytta biðtíma og
við getum alltaf gripið inn í ef
við teljum þörf á að hitta skjól-
stæðinginn. Það að fólk geti sinnt
endurhæfingunni sjálft, heima og
undir eftirliti, hefur þegar fram
í sækir haft áhrif til að minnka
króníska verki. En algengustu
orsakir krónískra verkja eru ein-
hæfar endurteknar hreyfingar.“
Heilsufarspakki fyrir fyrirtæki
ÁS Snjöll Heilsa býður upp á
heilsufarspakka fyrir fyrirtæki.
Fyrirtæki fá þá aðgengi að HEALO
fyrir starfsmenn sína. Því er fylgt
eftir með fyrirlestrum um meðal
annars stoðkerfi og vinnuvernd.
Einnig er boðið upp á heimsóknir
hjúkrunarfræðinga sem gera
heilsufarsmælingar á starfsfólki.
Allar mælingar eru skráðar í
HEALO-appið.
„Starfsmaðurinn getur þá séð
sínar niðurstöður í appinu og getur
borið saman niðurstöðurnar á
mælingum, jafnvel þótt hann skipti
um vinnu. Upplýsingarnar eru
alltaf til staðar í appinu,“ segir Árni.
„Tveir af hverjum þremur glíma
við stoðkerfisverki og þurfa að
nota sjúkraþjálfun að einhverju
leyti. Fyrir íslenskan vinnumark-
að þýðir það að um 125 þúsund
manns glími við verki reglulega.
Það er því mikill akkur fyrir fyrir-
tæki að geta boðið starfsfólki sínu
upp á betri þjónustu með því að
stytta tímann til að fara til sjúkra-
þjálfara.
Heilsa starfsfólks er forsenda
góðs vinnuanda og afkasta, gott
aðgengi að heilbrigðisþjónustu og
að geta tæklað vandamálin strax
getur hjálpað fyrirtækjum að búa
til frábært starfsumhverfi.“ n
Nánari upplýsingar á healo.is
Snjallsjúkraþjálfun komin til að vera
Árni Baldvin Ólafsson, Ingi Björn Ágústsson og Svanur Snær Halldórsson þróuðu app fyrir snjallheilsulausnina HEALO í samstarfi við sænska sérfræðinga. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þegar einhver
skráir sig í kerfið
fær sjúkraþjálfari til-
kynningu um það og er í
beinu sambandi við
skjólstæðinginn.
Árni Baldvin Ólafsson
Kosturinn við
HEALO-kerfið er
að það hentar flestum,
bæði sem endurhæfing
en líka sem forvarnar-
tæki.
Árni Baldvin Ólafsson
kynningarblað 3FIMMTUDAGUR 15. september 2022 ENDURHÆFING