Fréttablaðið - 15.09.2022, Síða 20
leikar þegar platan kemur út, sem
verður á næsta ári einhvern tím-
ann. Útlönd ásamt alls konar ævin-
týrum og aukinni spilamennsku
bíða okkar svo á næsta ári.“
Daníel og Heiða sýna hér les-
endum inn í fataskápinn.
Spurt og svarað
Hvernig hefur tískuáhugi þinn
þróast undanfarin ár?
Heiða: Ég kaupi færri flíkur
núna en leyfi mér að eyða meiru í
hverja flík
Daníel: Maður reynir að hafa
puttann á púlsinum eins og maður
getur. Hérna áður fyrr var ég
aldrei með puttann á púlsinum en
með árunum hefur puttinn alltaf
færst nær púlsinum og nú myndi
ég segja að ég sé með puttann á
púlsinum.
Hvernig fylgist þú helst með
tískunni?
Heiða: Ég fylgist ekki með
tískunni. Eða jú, ég horfi kannski
á annað fólk og skoða hverju það
klæðist og hvað fæst í búðum. En ef
það passar ekki að mínum stíl þá
gef ég því ekki gaum. Ég fylgi bara
minni eigin tísku, sem er miklu
betra því að það dettur þá aldrei
neitt úr tísku, nema bara að mér
finnist það ekki lengur flott sjálfri.
Daníel: Ég fer alltaf á tískusýn-
ingu í París, tvisvar á ári. Þannig
næ ég að hafa puttann á púlsinum
og koma fólki á óvart með nýjustu
flíkunum. Í ár eru það vesti.
Hvar kaupir þú helst fötin þín?
Heiða: Ég var voða hrifin af
Karen Millen, en þau breyttu um
eiganda og stíl. Þannig að nú kaupi
ég bara frá þeim notaðar flíkur.
Núna á ég nýtt uppáhaldsmerki
sem heitir Zimmermann og er
ástralskt, eins og kærastinn.
Hérna áður fyrr var
ég aldrei með
puttann á púlsinum en
með árunum hefur
puttinn alltaf færst nær
púlsinum.
Daníel Jón Jónsson
Nýlega lauk Superserious
upptökum á fyrstu breið-
skífu sinni sem kemur út á
næsta ári. Fram undan eru
nokkrir tónleikar, meðal
annars á Iceland Airwaves
og útgáfutónleikar. Tveir
meðlimir sveitarinnar sýna
lesendum inn í fataskápinn.
Hljómsveitin Superserious er
samansafn af fólki sem elskar að
semja tónlist og flytja hana, sér-
staklega fyrir annað fólk, segja
systkinin Daníel Jón Jónsson,
söngvari og gítarleikari, og
Heiða Dóra Jónsdóttir, söng-
kona og textasmiður. „Tónlistin
er stundum góð, oftast glaðleg og
alltaf hress. Hún virkar vel til þess
að tralla og dilla sér með,“ segir
Heiða. Auk þeirra skipa Super-
serious þeir Haukur Jóhannesson
á gítar, Helgi Einarsson á trommur
og Kristinn Þór Óskarsson á bassa,
hljómborð og pródúser.
Sveitin tók nýlega upp fyrstu
plötu sína í Malmö í Svíþjóð.
„Hljóðverið heitir Gula Studion
þar sem Arnar Guðjónsson var
með okkur á tökkunum, sá mikli
meistari. Platan nær að blanda
saman indí-rokki, pönki, poppi,
lagom og Ikea, öllu saman í einn
vegan bragðaref. Ekkert nema lög
sem vonandi gleðja og seðja gítar-
þyrst fólk,“ bætir Daníel við.
Fyrsta lagið af komandi breið-
skífu kemur út 21. október og
heitir Bye Bye Honey. „Við munum
spila talsvert á næstu mánuðum,
til dæmis á tónleikum á Húrra og
Sirkus í október. Einnig ætlum við
að gefa allt sem við eigum í Iceland
Airwaves í byrjun nóvember. Svo
verða að sjálfsögðu útgáfutón-
Hér klæðist Daníel gömlum kraftgalla frá móður sinni.
Heiða klæðist brúnum buxum, ljósri peysu og silkiklút
frá Zimmermann. Sólgleraugun eru úr Yeoman.
Kjóllinn er frá
Zimmermann
og hvítu skórnir
eru fermingar
skór Heiðu.
Leðurjakki
Daníels er frá
Bolongaro Tre
vor og skyrtan
var keypt í New
York. Buxurnar
eru frá Suitup
Reykjavík og
sólgleraugun
eru frá Cutler
and Gross.
Bleiki kjóllinn sem Heiða er í er frá ástralska merkinu Zimmermann. Skórnir
eru dansskór og eyrnaskrautið er orkídea. Daníel er í jakkafötum, skyrtu,
slaufu og skóm frá íslenska fatamerkinu Suitup Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Starri Freyr
Jónsson
starri
@frettabladid.is
Oftast glaðleg
og alltaf hress
Daníel: Ég fékk alltaf gamlar
flíkur frá Heiðu þegar ég var yngri
en núna fæ ég flest mín föt frá ann-
arri systur minni, Hafdísi, en hún
er fædd árið 2001. Heiða er nefni-
lega fædd 1982 og því erfiðara fyrir
hana að hafa puttann á púlsinum,
ólíkt Hafdísi, en hún er stöðugt
með puttann á púlsinum.
Hvaða litir eru í uppáhaldi?
Heiða: Eftir að ég átti yngri
strákinn minn hef ég verið sjúk í
bleikan lit. Það eru hormónar held
ég.
Daníel: Rauður er soldið haustið
2022 en er að reyna að minnka
rauðan hjá mér því of mikill rauður
er ekki góður. Þá er gott að nota föt
með „gradient“ mynstri, kannski
rautt efst en hvítt neðst.
Hvaða þekkti einstaklingur er
svalur þegar kemur að tísku?
Heiða: Haukur Jóhannesson
er flottur í öllu sem hann klæðist
og Björk er með flottan stíl. Svo er
móðir mín, Anna Kristín Daníels-
dóttir, mikil fyrirmynd þegar
kemur að tísku.
Hvaða f líkur hefur þú átt lengst
og notar enn þá?
Heiða: Fermingarskóna.
Daníel: Ég á nærbuxur sem ég
hef átt síðan ég var svona tólf ára
og er í þeim núna.
Áttu uppáhaldsverslanir?
Heiða: Yeoman er skemmtileg og
Spaksmannsspjarir. Elska íslenska
hönnun.
Daníel: Suit Up-gaurarnir eru
alltaf með puttann á púlsinum. Þeir
eru duglegir að koma með jákvæða
styrkingu þegar maður labbar inn,
hrósa manni, gefa manni fimmu og
þess háttar. Þannig vil ég hafa það.
Áttu eina uppáhaldsflík?
Heiða: Nei, erfitt að velja.
Daníel: Guinness sokkarnir
koma sterkir inn. Þeir eru tveir.
Eyðir þú miklum peningum í föt
miðað við jafnaldra þína?
Heiða: Daníel segir að ég ætti að
senda verðkönnun á elliheimilið.
Læt það nægja sem svar hér.
Daníel: Það er sko ekki ódýrt að
hafa puttann á púlsinum. En maður
tekur lán ef þess þarf til að halda
þessari martröð gangandi. n
Hægt er að fylgja Superserious
eftir á Facbook (superserious
iceland) og hlusta á útgefin lög
á Spotify. Lesa má lengri útgáfu
viðtalsins á frettabladid.is.
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
Laxdal er í leiðinniFylgið okkur á FB
SKOÐIÐ
LAXDAL.IS
HaustyfirHafnir
í úrvali
4 kynningarblað A L LT 15. september 2022 FIMMTUDAGUR