Fréttablaðið - 15.09.2022, Síða 25
VIRK Starfsendurhæfingar-
sjóður eflir starfsgetu ein-
staklinga með heilsubrest
sem stefna að aukinni
þátttöku á vinnumarkaði.
Vinnan sjálf getur oft verið
besta úrræðið í starfsendur-
hæfingunni og rannsóknir
hafa sýnt að úrræði sem
tengjast vinnustaðnum eru
oft árangursríkari.
Rannsóknir hafa einnig sýnt fram
á mikilvægi þess að gefa kost á
vinnuaðlögun til að auðvelda
starfsmönnum að vera áfram í
vinnunni eða snúa aftur eftir fjar-
veru og þannig auðvelda þeim að
skila vinnu sinni á fullnægjandi
hátt. Þess vegna meðal annars
hefur VIRK lagt aukna áherslu
undanfarin misseri á starfsendur-
hæfingu samhliða vinnu.
Þjónustuþegar VIRK sem nýta
sér starfsendurhæfingu samhliða
vinnu þurfa að hafa tíma til að
sækja viðeigandi úrræði auk þess
sem mikilvægt er að geta hvílt sig
og safnað kröftum. Því er ekki
mögulegt að vera í fullri vinnu
eða námi samhliða starfsendur-
hæfingunni. Að taka virkan þátt
í starfsendurhæfingu þarf sinn
tíma og það er erfitt ef viðkom-
andi er í fullu starfi eða námi.
Ef einstaklingar vilja og hafa
fengið samþykki á sínum vinnu-
stað til að taka þátt í starfsendur-
hæfingu samhliða vinnu þá er
mikilvægt að þeir láti ráðgjafa sinn
í starfsendurhæfingu vita en einnig
getur þetta komið fram í beiðninni
um starfsendurhæfingu frá lækni
viðkomandi.
Stefnt er að sama markmiði
hvort sem fólk er að sækja starfs-
endurhæfingu með vinnu eða
hefur farið alveg af vinnumarkað-
inum – að ná heilsu aftur til að
verða virkur þátttakandi á vinnu-
markaði
Fyrir hverja?
Starfsendurhæfing samhliða
vinnu gæti komið til greina fyrir
starfsmenn sem eiga erfitt með að
skila vinnu sinni á fullnægjandi
hátt vegna heilsubrests. Oft er
vinnustaðurinn þegar búinn að
koma til móts við starfsmanninn
með aðlögunum á vinnustað,
vinnutíma og/eða verkefnum sem
hefur ekki náð að breyta starfsgetu
starfsmannsins. Þá væri kannski
gott að skoða starfsendurhæfingu
samhliða vinnu.
Starfsmaðurinn fær úthlutað
ráðgjafa sem sér um að halda
utan um einstaklingsmiðaða
starfsendurhæfingaráætlun og
atvinnulífstengil sem sér um sam-
skiptin við vinnustaðinn. Það sem
er frábrugðið hér frá almennri
starfsendurhæfingu er að vinnu-
staðurinn tekur þátt í ferlinu og
kemur til móts við starfsmanninn
með möguleika á aðlögun á vinnu-
stað, vinnutíma og/eða verkefnum
og vinnustaðurinn styður starfs-
manninn í gegnum allt ferlið.
Starfsendurhæfingin og úrræðin
sem standa þjónustuþeganum til
boða hjá VIRK eru hins vegar þau
sömu.
Hvernig fer þetta fram?
Atvinnulífstengill frá VIRK,
starfsmaðurinn og yfirmaður
hans á vinnustaðnum koma að því
að skipuleggja ferlið hvað varðar
stigvaxandi endurkomu í fyrra
starfshlutfall. Skipulagið þarf að
virka fyrir bæði starfsmanninn
og vinnustaðinn og saman verður
til stigvaxandi virkniáætlun sem
allir viðkomandi telja að muni
geta gengið upp. Atvinnulífsteng-
ill frá VIRK fylgir síðan þjónustu-
þeganum eftir á vinnustaðnum.
Þátttaka starfsmanns á vinnu-
staðnum eftir því sem hann getur
er líka mjög mikilvæg til þess að
starfsendurhæfingin skili til-
hlýðilegum árangri. Þar sem
vinnustaðurinn er með í ferlinu,
þá skiptir það öllu máli að stjórn-
endur hafi samþykkt að vera með
og séu tilbúnir að koma til móts
við starfsmanninn með vinnuað-
lögun að getu hans sem stundum
þýðir að það þarf að fara tvö skref
aftur á bak til þess að taka þrjú
skref áfram.
Endurmat á virkniáætlun á
vinnustað á sér stað reglulega í
gegnum starfsendurhæfingar-
ferlið. Auðvitað koma stundum
upp aðstæður sem kalla á endur-
mat á áætlun og þá er bókaður
tími til að fara yfir hlutina. Niður-
staða þessara funda getur verið
að halda áætlun eins og sett var
upp í byrjun, eða gefa í eða draga
úr, allt eftir því hvernig gengur hjá
starfsmanninum í starfsendur-
hæfingunni.
Hver eru skilyrðin?
Allir sem telja sig þurfa starfs-
endurhæfingu hjá VIRK þurfa að
skila vottorði frá lækni þar sem
fram kemur staðfesting á heilsu-
bresti sem hindri fulla þátttöku á
vinnumarkaði – sjá nánar um rétt
til þjónustu VIRK á virk.is.
Athugið að þjónustuþegar
VIRK geta ekki verið í fullri vinnu
eða námi samhliða starfsendur-
hæfingu. Miðað er við 60–70%
starfshlutfall eða lægra ef ein-
staklingar stefna á starfsendur-
hæfingu samhliða vinnu. Í sumum
tilfellum þarf að byrja í enn lægra
starfshlutfalli sem síðan er aukið í
ferlinu upp í fullt starfshlutfall eða
fyrra starfshlutfall ef einstaklingur
var í hlutastarfi. n
Upplýsingar um starfsendurhæf-
ingu samhliða vinnu má nálgast á
vefsíðu VIRK og hjá sérfræðingum
í atvinnuteymi VIRK. Hægt er að
senda póst á atvinnutenging@
virk.is eða hringja í 535 5700.
Starfsendurhæfing samhliða vinnu
– öflug þjónustuleið hjá VIRK
Stefán Ólafur
Stefánsson at-
vinnulífstengill
og Jónína Waag-
fjörð sviðsstjóri
ráðgjafar og at-
vinnutengingar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Starfsendurhæfing
samhliða vinnu
gæti komið til greina
fyrir starfsmenn sem
eiga erfitt með að skila
vinnu sinni á fullnægj-
andi hátt vegna heilsu-
brests.
kynningarblað 5FIMMTUDAGUR 15. september 2022 ENDURHÆFING