Bændablaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 1
15. tölublað 2022 ▯ Fimmtudagur 25. ágúst ▯ Blað nr. 616 ▯ 28. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Jón Eiríksson hefur stundað búskap á Búrfelli í Miðfirði frá árinu 1982. Samhliða því að stunda búskap með 30 kýr og 300 kindur hefur hann gefið sig
málaralistinni á vald. Eftir að hann innréttaði gamla vélaskemmu sem vinnustofu hefur listin hans sprungið út. Til þess að forðast upplýsingaóreiðu og
áreiti hefur hann aldrei eignast farsíma og er búinn að losa sig við tölvuna og sjónvarpið. Sjá nánar á bls. 26–27. Mynd / Ástvaldur Lárusson
Ágætar uppskeruhorfur fyrir útiræktað grænmeti:
Úrkoman kom í hæfilegum skömmtum
Fylgst með
blóðtökum
Tímabil blóðtöku úr fylfullum
hryssum stendur nú yfir og fékk
Bændablaðið að vera við tvær
slíkar á dögunum.
Að minnsta kosti tvær
tilkynningar bárust lögreglu-
stjóranum á Suðurlandi vegna
ferða fólks um og við býli sem
halda blóðmerar ásamt óleyfilegum
myndbandsupptökum í byrjun
ágúst. Þar voru á ferðinni York
Ditfurth og Sabrina Gurtner frá
dýraverndarsamtökunum TSB og
AWD ásamt tveimur starfsmönnum
þýsku sjónvarpsstöðvarinnar ARD.
York og Sabrina segja að þau
hafi mætt mótlæti þegar þau komu
við á búum og hugðust ræða við
bændur. Ábúendur hefðu ekki verið
reiðubúnir til viðtals eða samtals við
þau og segja í viðtali að augljóst sé
að blóðbændur séu að fela starfsemi
sína. Þau óska eftir upplýsingum
og samtali við bændur sem enn
stunda starfsemina.
Á meðan segja ábúendur
á bænum Álftarhóli frá
undarlegri hegðun starfsmanna
dýraverndarsamtakanna, en þegar
bóndi ætlaði að ná tali af þeim hefðu
þau forðað sér í snatri. Þau Þórdís
Ingunn Björnsdóttir og Heiðar Þór
Sigurjónsson segjast hins vegar ekki
hafa neitt að fela þegar kemur að
blóðmerabúskap sínum. Þau halda
39 merar til blóðtöku og leyfðu
Bændablaðinu að fylgjast með
blóðtöku. Það gerðu enn fremur
bændur á Sólvöllum, en með því
vilja blóðbændur stuðla að opnu
samtali um starfsemina og svipta
hulunni af meintri leynd kringum
búskapinn.
Jón Kolbeinn Jónsson dýralæknir
segir að merar í blóðtöku séu
almennt ekki undir miklu álagi við
meðhöndlunina. Hann telur þurfa að
horfa á hestamennsku á heildstæðari
hátt og bera saman mismunandi
aðstæður sem hross á Íslandi búa
við. Hanna Valdís Guðjónsdóttir
notar m.a. tamdar reiðhryssur frá
sér í blóðtöku þegar þær eru í
folaldseignum og sjá ekkert að því.
Bændurnir segja að velferð og
heilsa meranna sé í fyrirrúmi enda
sé það grundvöllur fyrir búskapnum
og starfseminni.
York og Sabrina telja daga PMSG
talda í ljósi þess að til séu aðrir
valkostir til að stilla gangmál og auka
frjósemi í búfénaði. Ábúendurnir
á Álftarhóli telja umræðuna um
frjósemislyf ógagnsæja.
Ný reglugerð um blóðtöku úr
fylfullum hryssum gildir í þrjú ár
og vonast bændurnir til að á þeim
tíma verði hægt að skoða allar
hliðar málsins, bæði vísindalega
og siðferðilega. /ghp
Sjá nánar bls. 20, 21 og 22.
Ágætar uppskeruhorfur eru
sunnanlands fyrir útiræktað
grænmeti nú í lok ágústmánaðar.
Á Norðurlandi má hins vegar búast
við tveggja til þriggja vikna seinkun á
markaðssetningu grænmetisins miðað
við meðalárferði.
Axel Sæland, formaður deildar
garðyrkjubænda innan Bændasamtaka
Íslands, segist hafa nýlega heyrt í
bændum á Suðurlandi, sem segja að
allt stefni í að flest allar útiræktaðar
grænmetistegundir berist í verslanir
á svipuðum tíma og venjulega – þeir
séu nú þegar byrjaðir fyrir nokkru
að uppskera. Norðlenskir bændur
séu hins vegar enn í talverðri
óvissu því alltaf sé hætta á því að
það frysti á þessum árstíma – sem
geti haft afdrifarík áhrif á flestar
grænmetistegundir.
Á pari við meðalárið
„Það má kannski segja að það sé
einmitt um þetta leyti [í kringum 15.
ágúst] sem bændur hér sunnanlands
vanalega byrja að taka upp gulrætur
og kartöflur í einhverju magni til að
setja á markað. Held það sé alveg
óhætt að segja að uppskeruhorfur
núna á Suðurlandi fyrir útiræktað
grænmeti séu á pari við meðalárið.
Blómkál og brokkólí kemur svo
alltaf aðeins seinna á markað, en
káltegundirnar eru líka alveg á réttu
róli,“ segir Axel.
Kaldur og blautur júlímánuður
„Það var ofboðsleg bjartsýni í maí
og byrjun júní meðal bænda, en svo
var júlí bara mjög kaldur og blautur.
Þá hægði á öllu en nú lítur allt út
fyrir að þetta verði bara meðalár
hérna á Suðurlandi – kannski aðeins
betra. Kartöflumyglan hrjáir ekki
kartöflubændur þetta sumarið eins
og í fyrra þegar hún olli miklum
skaða. Þeir voru undirbúnir og gátu
gripið til fyrirbyggjandi aðgerða.
Eini selleríræktandi landsins, á
Hverabakka II, er fyrir nokkru
farinn að pakka því á fullu fyrir
markaðssetningu og sömuleiðis er
kínakálið á leið í búðir,“ segir Axel.
Hann bætir því við að ef til vill
hafi einhverjir búist við verri horfum
á Suðurlandi, vegna vætutíðar, en
það sem hafi í raun ráðið mestu
er að úrkoman kom í hæfilegum
skömmtum – að ekki rigndi samfleytt
í langan tíma.
Kalt og blautt á Norðurlandi
„Bændur á Norðurlandi fara heldur
verr út úr þessu sumri. Þar er búið
að vera ofboðslega kalt og blautt.
Uppskeran þar verður tveimur eða
jafnvel þremur vikum á eftir áætlun
– sem þýðir að ekki er hægt að búast
við miklu á markað í ágústmánuði
frá norðlenskum garðyrkjubændum
í útiræktun.
Ef hins vegar ágústmánuður
verður góður og ekki frystir þannig
að þeir geti geymt grænmetið lengur
í görðunum, þá er alveg möguleiki
á því að heildaruppskeran þar verði
allt í lagi. En það má alls ekki frysta,
sem þó er alltaf mögulegt í ágúst,“
segir Axel.
Stuðningurinn við útiræktun
Á undanförnum misserum hefur
ítrekað komið fram í áherslum
stjórnvalda hvað varðar fæðu-
öryggismál og grænmetisframleiðslu
á Íslandi, að auka þurfi hlutfall
innlendrar framleiðslu verulega.
Sömuleiðis hefur ítrekað
komið fram að vegna þess hversu
stór fjárfesting það er fyrir unga
garðyrkjubændur að hefja eigin
framleiðslu – og fjármögnunarleiðir
séu þeim ekki greiðar – þá verði ekki
sú fjölgun í stétt garðyrkjubænda né
nýliðun sem nauðsynleg sé til að
nægilegur vöxtur geti orðið.
Axel segir að mikilvægir
tímar séu fram undan þar sem
undirbúningsvinna fyrir endurskoðun
búvörusamninga muni eiga sér stað.
„Ég hef í sumar verið að benda
aðeins á þörfina fyrir betri stuðningi
við greinina, en það er erfitt á þessum
árstíma að fá einhvern hljómgrunn
hjá stjórnsýslunni fyrir samtali. Það
sem bíður okkar er að undirbúa
vel núna í haust og byrjun vetrar
endurskoðun búvörusamninga
sem verða á næsta ári. Við verðum
tilbúin með góðar tillögur að því
sem við viljum sjá að verði gert
til að mæta þessum áherslum
stjórnvalda varðandi aukna innlenda
grænmetisframleiðslu.“
Hann segir enn fremur að til að ná
fram markmiðum um aukna hlutdeild
innlendrar grænmetisframleiðslu sé
ljóst að það þurfi að koma til mun
meiri fjárhagslegur stuðningur við
garðyrkjubændur. „Það verður svo
verkefni að finna út úr því hvernig
sá stuðningur nýtist greininni sem
best; til dæmis til nýliðunar og
þeim bændum sem fyrir eru – til
að viðhalda því úrvali grænmetis
sem er fyrir en þannig að hægt sé að
auka talsvert við bæði í tegundum
og í magni. Það er vilji stjórnvalda
og við búumst við því að honum
verði komið til leiðar í gegnum bú-
vörusamningana,“ segir Axel. /smh
Nýir eigendur
Narfasels
30–3128
Réttarlistinn
32
–33
Ólga í evrópskum
bændum