Bændablaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 29
29Bændablaðið | Fimmtudagur 25. ágúst 2022
Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - 551-5464
www.wendel.is - wendel@wendel.is
HILLTIP
VETRARBÚNAÐUR
____________________
SNJÓTENNUR, FJÖLPLÓGAR,
SALT - OG SANDDREIFARAR
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
HAGKVÆM DEKK FYRIR
ALVÖRU KRÖFUR
Þegar velja skal vinnuvéla- og landbúnaðardekk skipta gæði,
ending og áreiðanleiki höfuðmáli.
Maxam dekkin eru hagkvæmur kostur og
hafa reynst vel við krefjandi aðstæður.
Gerðu kröfur - hafðu samband við sölumenn okkar
í síma 590 5280 og kynntu þér kosti Maxam dekkjanna.
Við Norðurlandsveg - 560 VarmahlíðSími: 453 8888 - Opið virka daga kl. 9-17
Fjárbætir Stein- og bætiefni Stórbaggagrindur
Sendum
um land
allt!
Allt fyrir sauðféð
Ýmislegt áhugavert bar fyrir
augum á Landbúnaðarsýningunni
í Herning á Jótlandi um síðustu
mánaðamót.
Þar voru til sýnis fallegir gripir
og áhugaverðar tækninýjungar til að
létta bændum lífið og auka uppskeru.
Það sem vakti mesta athygli
blaðamanns Bændablaðsins á
sýningunni var stór sjálfstýrandi
landbúnaðarróbóti sem kallast
Robotti og er hannaður og
framleiddur af dönsku fyrirtæki sem
kallast Agrointelli.
Við fyrstu sýn virtist róbótinn
fremur klunnalegur enda er hann
3,1 tonn að þyngd og 2,15 metrar
að hæð, tæpir fimm metrar að lengd
og breidd og með bil á milli hjóla
stillanlegt frá 1,66 og upp í 3,65
metra. Við nánari skoðun kom í ljós
að græjan var furðu lipur og snögg í
snúningum og vegna hönnunarinnar
á hjólabúnaðinum gat hún snúið
við svo gott sem á punktinum.
Díselmótorinn sem drífur róbótinn
áfram er af gerðinni Kubota.
Nýsköpun kjarninn
Ole Green, stofnandi Agrointelli og
aðalhönnuður Robotti liðléttingsins,
sagði í samtali við Bændablaðið að
mikil vinna og nýsköpun lægi að
baki tækninni sem Robotti byggði á.
„Helsti kostur róbótans er að hann
er ódýr í rekstri, léttir bændum vinnu
og dregur úr fjölda starfsmanna
og því fjárhagslega hagkvæmur.
Auk þess viðbótarbúnaðar sem
við bjóðum í dag erum við meðal
annars að hanna tækni sem staðsetur
og mælir vöxt plantnanna og getur
því gefið viðbótarskammt af áburði
þar sem þess er þörf.
Í dag eru 30 slíkir róbótar í
notkun í nokkrum löndum og en sá
síðasti seldist til Austurríkis.“
Tvær týpur í boði
Robotti liðléttingana er hægt að fá í
tveimur útgáfum, LR og 150D. Báðar
týpurnar vinna í megindráttum eftir
lögmáli lítilla slátturóbóta þar sem
vinnusvæðið er afmarkað fyrirfram
en auk þess má stjórna þeim með
fjarstýringu.
Báðar gerðirnar eru gerðar til að
sá, reyta illgresi og úða á ökrum.
Auk þess sem hægt er að fá fyrir
þær aukabúnað eins og sláttuvél,
jarðtætara, sæti til fólksflutninga
og ýmislegt fleira.
LR týpan er keyrð áfram af einum
mótor en 150D er með tvo mótora og
því öflugri og ætluð fyrir torfærara
land. Afkastageta beggja er um 36
hektarar á dag.
Að sögn Ole er fyrirtækið þegar
komið með umboðsaðila víða um
heim og fulltrúar þess alltaf tilbúnir
að tala við þá sem hafa áhuga á
upplýsingum um tækið. /VH
Landbúnaðarsýningin í Herning:
Landbúnaðarróbóti
Ole Green, stofnandi Agrointelli.
Sáning með Robotti landbúnaðarróbótanum.