Bændablaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 25. ágúst 2022
Skráning hefst 19. ágúst á slóðinni www.fa.is/fjarnám
Önnin hefst 8. september
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
ALLAR STÆRÐIR
AF CAT RAFSTÖÐVUM
Gerðu kröfur - hafðu samband við Karl
í síma 590 5125 og kynntu þér þína möguleika.
Stöðvar í gám
Þeir eru ófáir ferðalangar
sumarsins sem hafa rekið sig á
afleiðingar manneklu flugvalla.
Þá í allmörgum tilvikum er
snerta farangursflutning, en eftir
faraldur Covid hafa helst til margir
starfsmenn flugvallanna kosið
að snúa ekki aftur í sín störf eftir
fjöldauppsagnir þess tíma.
Yfirmenn flugfélaga standa
í burði farangurs
Ástandið er þannig víðs vegar um
heiminn að ýmsir hafa þurft að
stíga í hlutverk þess að ferma og
afferma farangur, meira að segja
stjórnarmeðlimir flugfélaga, eins og
þeir hjá Qantas, einu helsta flugfélagi
Ástrala.
Fréttir þess efnis bárust á vefsíður
ljósvakans nýverið. Í fréttum The
Guardian kemur fram sú staðreynd
að einungis komist ein af hverjum tíu
ferðatöskum á leiðarenda – á réttum
tíma – hjá ferðalöngum Qantas þessa
dagana. Vegna faraldursins, sem er
enn í hápunkti þarlendis, hafa átt
sér stað verulegar fjöldauppsagnir
flugvallastarfsfólks síðan árið 2020
og því mikill skortur á vinnuafli.
BBC tekur undir slæma stöðu
félagsins og greinir frá því að stjórn
Qantas hafi lagt til að yfirmenn þess
taki að sér ýmis störf næstu mánuði á
borð við umsjón og hleðslu farangurs
auk þjónustu flugvéla almennt.
Nýr vinkill á málið
New York Times fjallaði einnig um
málið, en þó með nýjum vinkli. Þar
tók fréttamaður viðtal við hjónin
Mariu og Joey Boyd-Scott, konur
á eftirlaunaaldri, sem sáu sér leik
á borði þegar hörgull var á fólki til
þess að hlaða og afferma farangur
á alþjóðaflugvellinum í Ontario
í San Bernardino-sýslu Kaliforníu
nú í fyrravor.
Maria, sú yngri – þá sextug, gerðist
þar starfsmaður á gólfi með það fyrir
augum að vinna 15 klst. vikulega
og öðlast í kjölfarið þau hlunnindi
sem flugvallastarfmönnum United
fyrirtækisins er boðið upp á.
Með þeim geta hún og eiginkona
hennar ferðast ókeypis innan
Bandaríkjanna á svokölluðu standby
fari sem felur í sér að ef að laus sæti
eru í flugvél, mega þeir sem hafa hug
á, nýta sér þau að kostnaðarlausu.
Svipað á við er kemur að ferðalögum
utan Bandaríkjanna, en þá hljóta
starfsmenn United verulegan afslátt
á slíkum fargjöldum.
Í kjölfar þess að Maria festi sig í
sessi sem flugvallarstarfsmaður tryggði
eiginkona hennar, sem er nær sjötugu,
sér hlutastarf sem móttökustúlka eins
Hilton hótelanna, en starfsfríðindin
þar fela í sér verulegan afslátt af
hótelherbergjum keðjunnar sem eru
tæplega sjö þúsund á heimsvísu.
Upplagt fyrir fólk yfir fimmtugt
Hjónin eru því vel sett þegar kemur
að fríðindum er varða ferðalög
og nýta sér þau til hins ýtrasta.
Þau eru hluti af vaxandi hópi þarlendra
eldri borgara sem ganga í stöður
starfsmanna sem stigu til hliðar í
faraldrinum.
Fyrir utan háan meðalaldur eiga
starfsmennirnir það sameiginlegt
að ásælast ferðahlunnindin og það
blygðunarlaust.
Kemur fram í frétt New York
Times að stjórnendur hótela og
flugfélaga lítist afar vel á þessa nýju
starfsmenn sína og telji þá hiklaust
með áreiðanlegri og röggsamari
starfsmönnum – en áætlað er að frá
upphafi heimsfaraldursins hafi að
minnsta kosti 65 prósent nýráðninga
í þessi lægst launuðu hlunnindastörf,
verið fólk yfir fimmtíu ára aldri. /SP
Farangurinn ferjaður:
Heldri borgarar njóta
góðs af hlunnindum
Vegna faraldurs Covid, hafa átt
sér stað verulegar fjöldauppsagnir
flugvallastarfsfólks síðan árið 2020
og því víða mikill skortur á vinnuafli.
Zombíormur af tegundinni Osedax
mucofloris eða horblóm.
Mynd / marinespecies.org
felst í því að gera gat á það með
meltingarsýru og leysa beinið þannig
upp. Rannsóknir á steingervingum
benda til að ormarnir hafi komið
fram á sjónarsviðið fyrir meira en
150 milljón árum og löngu áður en
að hvalir komu fram.
Þar sem zombíormategundir
finnast og melta margar gerðir
beina bendir flest til að þeir séu ekki
sérhæfðir í fæðuvali á beinum.
Fernisúlfur
Ættkvísl þeirra hefur fengið
latínuheitið Osedax sem vísar til
þess að þeir melti bein. Tegund
sem fannst á rúmlega tveggja
kílómetra dýpi undir ísbreiðu
Norðurheimsskautsins fékk heitið
O. fenris eða Fernisúlfur.
Kvendýr zombíorma eru talsvert
stærri en karldýrin og einungis
kvendýrin melta bein. Karldýrin
finnast aftur á móti tugum eða
hundruðum saman í karlabúrum eða
sekkjum inni í kvendýrum þar sem
eina sjáanlega hlutverk þeirra felst
í að frjóvga egg kvendýranna. /VH