Bændablaðið - 25.08.2022, Side 37

Bændablaðið - 25.08.2022, Side 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 25. ágúst 2022 Skráning hefst 19. ágúst á slóðinni www.fa.is/fjarnám Önnin hefst 8. september KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is ALLAR STÆRÐIR AF CAT RAFSTÖÐVUM Gerðu kröfur - hafðu samband við Karl í síma 590 5125 og kynntu þér þína möguleika. Stöðvar í gám Þeir eru ófáir ferðalangar sumarsins sem hafa rekið sig á afleiðingar manneklu flugvalla. Þá í allmörgum tilvikum er snerta farangursflutning, en eftir faraldur Covid hafa helst til margir starfsmenn flugvallanna kosið að snúa ekki aftur í sín störf eftir fjöldauppsagnir þess tíma. Yfirmenn flugfélaga standa í burði farangurs Ástandið er þannig víðs vegar um heiminn að ýmsir hafa þurft að stíga í hlutverk þess að ferma og afferma farangur, meira að segja stjórnarmeðlimir flugfélaga, eins og þeir hjá Qantas, einu helsta flugfélagi Ástrala. Fréttir þess efnis bárust á vefsíður ljósvakans nýverið. Í fréttum The Guardian kemur fram sú staðreynd að einungis komist ein af hverjum tíu ferðatöskum á leiðarenda – á réttum tíma – hjá ferðalöngum Qantas þessa dagana. Vegna faraldursins, sem er enn í hápunkti þarlendis, hafa átt sér stað verulegar fjöldauppsagnir flugvallastarfsfólks síðan árið 2020 og því mikill skortur á vinnuafli. BBC tekur undir slæma stöðu félagsins og greinir frá því að stjórn Qantas hafi lagt til að yfirmenn þess taki að sér ýmis störf næstu mánuði á borð við umsjón og hleðslu farangurs auk þjónustu flugvéla almennt. Nýr vinkill á málið New York Times fjallaði einnig um málið, en þó með nýjum vinkli. Þar tók fréttamaður viðtal við hjónin Mariu og Joey Boyd-Scott, konur á eftirlaunaaldri, sem sáu sér leik á borði þegar hörgull var á fólki til þess að hlaða og afferma farangur á alþjóðaflugvellinum í Ontario í San Bernardino-sýslu Kaliforníu nú í fyrravor. Maria, sú yngri – þá sextug, gerðist þar starfsmaður á gólfi með það fyrir augum að vinna 15 klst. vikulega og öðlast í kjölfarið þau hlunnindi sem flugvallastarfmönnum United fyrirtækisins er boðið upp á. Með þeim geta hún og eiginkona hennar ferðast ókeypis innan Bandaríkjanna á svokölluðu standby fari sem felur í sér að ef að laus sæti eru í flugvél, mega þeir sem hafa hug á, nýta sér þau að kostnaðarlausu. Svipað á við er kemur að ferðalögum utan Bandaríkjanna, en þá hljóta starfsmenn United verulegan afslátt á slíkum fargjöldum. Í kjölfar þess að Maria festi sig í sessi sem flugvallarstarfsmaður tryggði eiginkona hennar, sem er nær sjötugu, sér hlutastarf sem móttökustúlka eins Hilton hótelanna, en starfsfríðindin þar fela í sér verulegan afslátt af hótelherbergjum keðjunnar sem eru tæplega sjö þúsund á heimsvísu. Upplagt fyrir fólk yfir fimmtugt Hjónin eru því vel sett þegar kemur að fríðindum er varða ferðalög og nýta sér þau til hins ýtrasta. Þau eru hluti af vaxandi hópi þarlendra eldri borgara sem ganga í stöður starfsmanna sem stigu til hliðar í faraldrinum. Fyrir utan háan meðalaldur eiga starfsmennirnir það sameiginlegt að ásælast ferðahlunnindin og það blygðunarlaust. Kemur fram í frétt New York Times að stjórnendur hótela og flugfélaga lítist afar vel á þessa nýju starfsmenn sína og telji þá hiklaust með áreiðanlegri og röggsamari starfsmönnum – en áætlað er að frá upphafi heimsfaraldursins hafi að minnsta kosti 65 prósent nýráðninga í þessi lægst launuðu hlunnindastörf, verið fólk yfir fimmtíu ára aldri. /SP Farangurinn ferjaður: Heldri borgarar njóta góðs af hlunnindum Vegna faraldurs Covid, hafa átt sér stað verulegar fjöldauppsagnir flugvallastarfsfólks síðan árið 2020 og því víða mikill skortur á vinnuafli. Zombíormur af tegundinni Osedax mucofloris eða horblóm. Mynd / marinespecies.org felst í því að gera gat á það með meltingarsýru og leysa beinið þannig upp. Rannsóknir á steingervingum benda til að ormarnir hafi komið fram á sjónarsviðið fyrir meira en 150 milljón árum og löngu áður en að hvalir komu fram. Þar sem zombíormategundir finnast og melta margar gerðir beina bendir flest til að þeir séu ekki sérhæfðir í fæðuvali á beinum. Fernisúlfur Ættkvísl þeirra hefur fengið latínuheitið Osedax sem vísar til þess að þeir melti bein. Tegund sem fannst á rúmlega tveggja kílómetra dýpi undir ísbreiðu Norðurheimsskautsins fékk heitið O. fenris eða Fernisúlfur. Kvendýr zombíorma eru talsvert stærri en karldýrin og einungis kvendýrin melta bein. Karldýrin finnast aftur á móti tugum eða hundruðum saman í karlabúrum eða sekkjum inni í kvendýrum þar sem eina sjáanlega hlutverk þeirra felst í að frjóvga egg kvendýranna. /VH

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.