Bændablaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 57

Bændablaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 57
57 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. ágúst 2022 Hér kynnumst við systrunum og borgarbúunum þeim Evu og Eik, sem gerðust mjaltakonur hjá Margréti Drífu og Ágústi á Læk í Flóahreppi nú í sumar. Þær voru liðtækar í verkin og drukku spenvolga mjólk af góðri lyst eftir vel unnin störf. Nafn: Eik Arnarsdóttir Aldur: 7 ára Stjörnumerki: Naut Búseta: Norðlingaholt Skóli: Norðlingaskóli Skemmtilegast að gera: Fótbolti, lesa, föndra, lita, skrifa, hjóla og leika við vinkonur mínar. Uppáhaldsdýr: Hvolpar og kettlingar Uppáhaldsmatur: Pitsa, pylsa og grjónagrautur. Uppáhaldslag: Hlustið, kæru vinir (úr Emil í Kattholti) Uppáhalds bíómynd/sjónvarpsefni: Víti í Vestmannaeyjum Æfir þú íþróttir eða spilar á hljóðfæri: Ég æfi fótbolta með Fylki. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór: Atvinnukona í fótbolta. Mest spennandi sem þú hefur gert: Þegar ég labbaði að eldgosinu. Minnisstæðast frá liðnu sumri: Þegar ég var að keppa á Símamótinu og var að flytja í nýtt hús. Nafn: Eva Arnarsdóttir Aldur: 9 að verða 10 ára Stjörnumerki: Bogamaður Búseta: Norðlingaholt Skóli: Norðlingaskóli Skemmtilegast að gera: Að vera í fótbolta, lesa og leika með vinkonum. Uppáhaldsdýr: Hundur Uppáhaldsmatur: Hamborgari, grjónagrautur og pitsa. Uppáhaldslag: Unstoppable með Sia og Stjörnurnar með Herra Hnetusmjör. Uppáhaldsbíómynd/sjónvarpsefni: Ísskápastríð og Stóra sviðið Æfir þú íþróttir eða spilar á hljóðfæri: Ég æfi fótbolta hjá Fylki. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór: Mig langar að verða innanhússarkitekt, atvinnukona í fótbolta og leikkona. Mest spennandi sem þú hefur gert: Fara til útlanda og labba að eldgosinu. Minnisstæðast frá liðnu sumri: Símamótið og þegar við fluttum í nýtt hús. Efni: 450-500-500-500-550 gr Þingborgarlopi í aðallit 50 gr af þremur litum í mynstur 20 gr af einum lit í mynstur Í Ullarversluninni Þingborg fást pakkar með lituðu tvíbandi, 5 hespur 25 g hver. Eins fást pakkar með lituðum lopa, 4 dokkur 25 g hver. Þessir pakkar eru tilvaldir í mynstrið á peysunni. Eins gefur mynstrið á peysunni þann möguleika að leika sér enn meira með liti, hafa fleiri en gefið er upp eða jafnvel færri. Notið hugmyndaflugið og setjið saman liti að smekk hvers og eins. Sokkaprjónar nr 3,5 og 5 hringprjónar nr 3,5, 40 og 80 cm langir hringprjónar nr 5, 40, 60 og 80 cm langir heklunál Munið að lesa alla uppskriftina áður en byrjað er. Prjónafesta: 14 l og 21 umf í sléttu prjóni = 10 x 10 cm Prjónað er úr plötulopanum tvöföldum. Bolur og ermar eru prjónuð í hring. Bolur opin peysa: Fitjið upp 123-133-148-163-173 l á 80 sm hringprjón nr 3.5, með aðallit, prj. fram og tilbaka byrjað á að prjóna brugðið á röngu og slétt á réttu, 3 umf, skipta yfir í mynsturlit 4, prjóna stroff (sjá mynstur á stroffi), fyrsta umf er á réttunni og byrjað á þremur sléttum lykkjum og umf endar á sama hátt. Í byrjun og enda á stroffi eru 3 sl l, ein l hvoru megin fer undir hneppulista. Að loknu stroffi er skipt yfir á 80 sm hringprjón nr. 5, tengt saman í hring, aukið út í fyrstu umferð um 0-0-1-0-6 l. Fitjaðar eru upp 2 aukalykkjur í upphafi umf sem eru prj brugðnar upp að stroffi í hálsmáli. Prjónað sl uns bolur mælist 44-48 sm. (Mælið viðkomandi og metið bolsídd.) Á dömupeysu er fallegt að gera ,,mitti“ á peysuna með því að taka úr á bol. Setjið merki í hliðar, takið úr 2 l hvoru megin, *prj 2 l saman, prj 1 l prj 2 l saman*. Fyrst er tekið úr er bolur mælist 8-12 sm og síðan 2x aftur með 5 sm á milli. Alls eru teknar úr 12 l. Prj 5 sm, þá er aukið út aftur samsvarandi og með sama millibili og tekið var úr og endað með sama lykkjufjölda. Mælið ykkur og metið hvað þið viljið hafa bolinn síðan og hvar þið viljið að úrtaka byrji. Bolur heil peysa: Fitjið upp 125-135-145-160-175 l á 80 sm hringprjón nr 3,5, með aðallit, prj. í hring 3 sléttar umf, skipta yfir í mynsturlit 4, prjóna stroff (sjá mynstur á stroffi). Að loknu stroffi er skipt yfir á 80 sm hringprjón nr. 5, aukið út um 3-3-1-0-1 l í fyrstu umferð eftir stroff. Prjónað sl uns bolur mælist 44- 48 sm. (Mælið viðkomandi og metið bolsídd.) Gera mittissnið ef vill, sjá hér að ofan. Ermar: Fitjið upp 30-35-35-40-40 l á sokkap. nr. 3.5, með aðallit eins og neðan á bol og síðan með mynsturlit 4, prjónið í hring. Skiptið yfir á sokkap. nr. 5 þegar stroffi er lokið og aukið út um 6-6-6-6-6 l jafnt yfir umf. Prjónið 6 umf, aukið út um 2 l, (1 l eftir fyrstu lykkju og 1 l fyrir síðustu l í umf). Endurtakið aukningu 7-8-8-8-8 x upp ermi, með u.þ.b. 7-8 umf á milli þar til 52-59-59-64-64 l eru á prjóninum. Skiptið yfir á stutta hringprjóninn nr. 5 á u.þ.b. miðri ermi. Gott er að nota prjónamerki til að merkja þar sem aukið er út. Prjónið uns ermi mælist 46-52 sm. Mælið handlegg og finnið út rétta ermalengd. Byrjað er að mæla 5 sm frá handarkrika og mælt fram á hendi. Axlastykki heil peysa: Sameinið nú bol og ermar á 80 sm hringprjóninn nr 5. Setjið 5-5-5-5-5 síðustu l og 5-5-5-5-5 fyrstu l af ermum á prjónanælu. Setjið fyrstu 10-10-10-10-10 l af bol á prjónanælu, prj fyrri ermi 42-49-49-54-54 l, prj næstu 54-59-63-70-78 l af bol, gerið þá eins með seinni ermina og þá fyrri, setjið svo næstu 10-10-10-10-10 l af bol á prjónanælu og að síðustu 54-59-63-70-78 l af bol. Þá eru 192-216-224-248-264 l á prjóninum. Prj mynstur eftir teikningu. Notið styttri hringprjóna eftir því sem lykkjum fækkar. Þegar mynstri lýkur er tekið úr aukalega þar til 70-75-75-80-80 l eru eftir á prjóninum. Þá er skipt á 40 cm hringprjón nr 3.5 og prj mynstur á stroff frá umf 8 til umf 1, prj 3 umf slétt með aðallit. Fellið laust af. Gangið vel frá öllum endum og lykkið saman undir höndum. Axlastykki opin peysa: Sameinið nú bol og ermar á 80 sm hringprjóninn nr 5. Setjið 5-5-5-5-5 síðustu l og 5-5-5-5-5 fyrstu l af ermum á prjónanælu. Prj 26-28-32-36-39 l af bol að framan, prjónið fyrri ermina við 42-49-49-54-54 l, setjið næstu 10-10-10-10-10 l af bol á prjónanælu. Prjónið næstu 54-57-65-71-81 l af bol og setjið næstu 10-10-10-10-10 l á prjónanælu. Prjónið seinni ermina við og gerið eins og með hina og að síðustu 26-28-32-36-39 l af bol. Þá eru 190-211-227-251-267 l á prjóninum. Prj mynstur eftir teikningu. Notið styttri hringprjóna eftir því sem lykkjum fækkar. Þegar mynstri lýkur er tekið úr aukalega þar til 68-73-78-83-88 l eru eftir á prjóninum. Þá er skipt á 40 cm hringprjón nr 3.5 og prj mynstur á stroff frá umf 8 til umf 1, byrjað á þremur sléttum lykkjum og endað á sama hátt, prjónaðar 3 umf slétt á réttu og brugðið á röngu. Fellið laust af. Gangið vel frá öllum endum og lykkið saman undir höndum. Listi: Saumið í vél með beinu þéttu spori og samlitum tvinna í brugðningu að framan sitt hvoru megin, sem næst slétta prjóninu. Gott er að sauma tvisvar hvoru megin. Klippið upp á milli saumanna. Snúið réttunni á peysunni að ykkur og notið heklunálina til að taka upp lykkjur í hneppulista þvert á prjónið. Krækið í bandið með heklunálinni í gegnum lykkjurnar, en sleppið alltaf fjórðu hverri umferð, það er ágætis þumalputtaregla, þá er listinn passlega langur. Færið lykkjurnar jafnóðum yfir á hringprjón nr 3.5 80 sm langan. Prjónið stroff 2-3 umf ef það á að setja rennilás en 5-6 umf. ef setja á tölur og gerið þá hnappagöt með jöfnu millibili á annan boðunginn. Passið að affellingin sé mátulega strekkt. Til að fela sárið innan á eftir saumaskapinn, er gott að hekla eina umf af fastahekli yfir það og varpa það svo niður með einföldu spori. Mælt er fyrir rennilás eftir þvott og er hann hafður 3-4 sm styttri en boðungurinn mælist. Þræðið hann á og passið að mynstur standist á. Ef hann er saumaður á í saumavél er gott að sauma hann í sömu átt beggja megin og byrja þar sem mynstur byrjar og sauma að hálsmáli og eins þegar saumað er niður. Með þessari aðferð gengur betur að láta mynstur stemma en ef saumað væri sitt í hvora áttina. Þvottur: Þvoið flíkina í volgu vatni með góðri ullarsápu eða sjampói. Skolið vel og vindið svo í hálfa mínútu í þvottavél. Mikilvægt er að vélin fari strax að vinda, (þær eru misjafnar að þessu leyti) en sé ekki að veltast með flíkina fyrst, þá getur hún þófnað. Leggið peysuna á handklæði til þerris. Skammstafanir: l = lykkja, umf = umferð prj = prjónið/prjónað sl = slétt Hönnun: Guðbjörg Björgvinsdóttir Útfærsla uppskriftar: Anna Dóra og Margrét. Ullarvikupeysa 2022 HANNYRÐAHORNIÐ Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. SUDOKUÞRAUTIR Bændablaðsins Þung Þyngst Létt Miðlungs Fjósakonurnar á Læk FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ Uppskriftir sem mæla með íslensku prjónabandi og lopa. Okkar frábæri Þingborgarlopi er sérunninn og alíslenskur, í sauðalitum og í honum er sérvalin lambsull og hann kembdur á Íslandi af Ístex fyrir Ullarverslunina Þingborg. Litaði lopinn okkar og bandið er allt handlitað, umhyggja í hverjum þræði. Lopinn fæst í Þingborg. Einning er litaður lopi og band á heima- síðunni okkar www.thingborg.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.