Bændablaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. ágúst 2022
Tilgangur þeirra er að vinna að
norrænu samstarfi um nautgriparækt,
miðla þekkingu og reynslu milli
félagsmanna auk þess að byggja upp
tengsl og rækta góða vináttu.
Ráðstefnan
Ráðstefnan var sett sunnudaginn
24. júlí við hátíðlega athöfn í
Selfosskirkju. Þar héldu Jóhannes
Torfason, fráfarandi formaður
NØK, Sigurður Ingi Jóhannsson
innviðaráðherra og Bragi Bjarnason,
formaður bæjarráðs Árborgar,
ávörp. Á milli ávarpa lék Erna Vala
Arnardóttir á píanó. Að setningu
lokinni var boðið upp á fordrykk í
Skyrlandi, þar sem Garðar Eiríksson,
framkvæmdastjóri Auðhumlu, tók á
móti hópnum og sagði frá sýningunni,
sem er einkar glæsileg og fjallar um
sögu skyrgerðar á Íslandi. Gestir gátu
þar upplifað söguna, smakkað hið
víðfræga íslenska skyr og nýtt tímann
til að kynnast öðrum ráðstefnugestum
og fjölskyldum þeirra.
Á mánudeginum voru haldin
tólf erindi undir yfirskriftinni
„loftslagsmál, umhverfi og velferð“
og að erindum loknum bauðst
ráðstefnugestum að ferðast á
Þingvelli og heimsækja Friðheima.
Á þriðjudeginum voru haldin
tólf önnur erindi en í það skiptið
undir yfirskriftunum, „norrænt
samstarf og mjólkurframleiðsla“
og „ræktun – kýr framtíðarinnar
– nýir eiginleikar – litlir stofnar“.
Að kvöldi var haldinn glæsilegur
veislukvöldverður á Hótel Selfossi.
Hátíðinni lauk á miðvikudeginum
með sameiginlegum hádegisverð að
lokinni hópferð um Flóann en í þeirri
ferð var einangrunarstöðin á Stóra-
Ármóti heimsótt sem og bændurnir
á Stóra- og Litla-Ármóti.
Erindi ráðstefnunnar
Í þessu blaði munum við fjalla
um erindi mánudagsins sem sneru
að loftslagsmálum, umhverfi og
dýravelferð. Í næsta tölublaði
blaðsins munum við birta seinni hluta
umfjöllunarinnar sem snýr að norrænu
samstarfi og kúm framtíðarinnar.
Þjóðir heimsins hafa margar hverjar
sett sér metnaðarfull markmið um að
draga úr losun gróðurhúsalofttegunda
á næstu áratugum. Á sama tíma
eykst eftirspurn eftir fæðu sökum
fólksfjölgunar og aukin áhersla
er lögð á dýravelferð. Töluverðar
áskoranir eru því fram undan og
fjölluðu fyrirlesarar um það hvernig
bændur og sérfræðingar geta tekist á
við þessar áskoranir.
Ekki verður fjallað nákvæmlega
um aðgerðir í hverju landi heldur
stiklum við á stóru um það í hverju
þessar aðgerðir felast.
Hjarð- og bústjórnun
Ýmsir þættir geta dregið úr losun
gróðurhúsalofttegunda á hverju búi
fyrir sig. Mikilvægt er að lágmarka
sóun í allri framleiðslukeðjunni
en það má t.d. gera með því að
horfa til hringrásarhagkerfisins
og stuðla að réttri nýtingu og
geymslu búfjáráburðar. Notkun
á endurnýtanlegri orku, góð
landnýting og hámarksuppskera
af hverri flatareiningu eru einnig
umhverfisvænar aðgerðir, sem og að
stunda fóðuröflun sem næst búunum,
til að draga úr flutningsþörf.
Heilsuhraustar kýr mjólka meira
og meiri framleiðsla á hverja kú þýðir
minni losun á hvern lítra mjólkur.
Frjósemi og ending kúnna skiptir
sömuleiðis máli, en því yngri sem
kýrnar bera og því lengur sem þær
endast í framleiðslu, því minni er losun
gróðurhúsalofttegunda. Langlífari kýr
þýðir færri kvígur í uppeldi á hverjum
tíma og hagstæðari rekstur búanna,
en greint var frá því að danskar kýr
skila ekki jákvæðri afkomu fyrr
en eftir 2,5 ár í framleiðslu. Hér
á Norðurlöndunum er valið fyrir
aukinni endingu í kynbótastarfinu og
því að kýrnar haldi hárri nyt lengur
út mjaltaskeiðið en með því fást
meiri afurðir eftir hvern grip. Flest
bendir til að ending fái aukið vægi
í framtíðinni. Til að viðhalda hárri
nyt horfa menn nú til þess að lengja
mjaltaskeiðið með því að seinka
sæðingum. Dönsk rannsókn sýndi
fram á að auðveldara var að greina
beiðsli kúnna við áttunda gangmál
samanborið við annað gangmál þar
sem hreyfing kúnna jókst um 22%.
Þetta hefði í för með sér lengra
mjaltaskeið, hærra fanghlutfall
við sæðingu, nytin helst lengur
út mjaltaskeiðið og efnastyrkur
mjólkurinnar eykst sömuleiðis.
Frumutala, leiðni og sýrustig helst
óbreytt.
Kynbætur gripa
Ein þeirra nýjunga sem hafa átt sér
stað í kynbótum gripa á
Norðurlöndunum er samstarfs-
verkefni NAV, VikingGenetics,
Luke, Århus University, Seges
og Växa en í sameiningu hafa
þau þróað svokallaðan „Saved
Feed index“ til að velja fyrir betri
fóðurnýtingu gripanna. Áætlað
er að ná megi fram 12% betri
fóðurnýtingu með innleiðingu
stuðulsins en hann byggir á „Cattle
Feed InTake“ verkefninu sem felur
í sér mælingar á fóðurinntöku með
þrívíddarmyndavélum (3D).
Myndavélarnar greina át kúnna
og þyngd þeirra á einstaklingsgrunni.
Komið hefur verið fyrir myndavélum
í 23 hjörðum sem saman telja yfir
1.000 Holstein, Jersey og rauðar
danskar kýr. Um 1.600 myndarvélar
eru virkar sem taka um 80 milljón
myndir á dag. Til stendur að stækka
verkefnið enn frekar og árið 2026 er
stefnt að því að 10.000 kýr af hverju
kyni verði myndaðar á hverjum tíma.
Fóðrun
Sérfræðingar horfa nú til nýtingar
hliðarafurða sem fóður fyrir kýr.
Með orðinu hliðarafurðir er átt við
fóður eða annað sem fellur til við
vinnslu á matvælum en mannfólk
getur ekki nýtt. Þannig megi í raun
hámarka nýtingu uppskerunnar og
landsvæðin geta í senn nýst bæði
til kornframleiðslu fyrir mannfólk
og fóðurframleiðslu fyrir kýr.
Svíar rannsökuðu hvort fóðrun á
hliðarafurðum samhliða grasfóðrun
hefði áhrif á át og mjólkurframleiðslu
en svo reyndist ekki vera. Með því
að skipta út korni og sojamjöli,
sem maðurinn getur nýtt, fyrir
hliðarafurðir, var hægt að auka
fóðurframleiðsluna í heild án þess
að það kæmi niður á framleiðslu og
áti kúnna.
Auknar rannsóknir eru nú
gerðar til að finna og/eða þróa
fóður sem veldur minni losun
gróðurhúsalofttegunda. Rannsóknir
hafa sýnt fram á að minni losun sé
til staðar ef gripir eru fóðraðir á
olíuplöntum og þangi. Auk þess hefur
notkun á 3NOP (3 nitrooxypropanol),
sem er lítil sameind sem hindrar
lokaskref metanmyndunar í
jórturdýrum, sýnt fram á minni losun
metans sé henni bætt í fóður. Talið
er að ná megi fram 29-31% minni
losun metans með notkun þess og
hefur Evrópusambandið samþykkt
notkun þess í fóðri.
Vinsældir beitar og beitar-
stjórnunar eykst sömuleiðis þar
sem kolefnissporið er lægra og
markaðurinn færist að einhverju
leyti í átt að afurðum af gripum
sem einungis eru aldir á grasi. Með
aukinni áherslu á líffræðilegan
fjölbreytileika er beit sömuleiðis góð.
Dýrt er þó að fá „Grassfeed“ vottun,
opinberar greiðslur eru óstöðugar,
skemmdir á ræktarlandi geta verið
vandamál sem og afföll dýra sökum
úlfa og hunda. Allt er þetta þó
spurning um framboð, eftirspurn og
afkomu.
Hugsum hnattrænt, störfum
staðrænt „Think globally, act
locally“
Mikilvægt er að horfa á stóru
myndina þegar fjallað er um
umhverfismál þar sem minni losun
frá gripum getur þýtt neikvæðari
umhverfisáhrif vegna vinnslu fóðurs,
og öfugt. Í einhverjum tilfellum getur
því borgað sig að fóðra gripina á
umhverfisvænni hátt, þrátt fyrir
að losun gripanna sé meiri. Við
endum þessa umfjöllun á orðum
Niels Martin Nielsen, ráðunautar
hjá KvægXperten á Jótlandi,
„margt smátt gerir eitt stórt“ en
með því að auka notkun olíuplantna
í fóður um 5%, bæta hjarðstjórnun
um 5%, auka mjólkurframleiðslu
grips um 5%, auka kynbætur
um 5% og fóðurnýtingu um
5% þá minnkar kolefnisfótspor
mjólkurframleiðslunnar um 25%.
Segja má að eftir þennan fyrri
dag ráðstefnunnar standi að innan
nautgriparæktarinnar er ýmislegt
sem hægt er að gera til þess að draga
úr losun og mörg smá skref verða að
einu stóru.
Til þess að hrinda þeim í
framkvæmd þarf hins vegar breytta
hugsun og stuðning samfélagsins alls.
Höfundar: Guðmundur
Jóhannesson og Guðrún Björg
Egilsdóttir, félagsmenn í NØK
Guðrún Björg
Egilsdóttir.
Guðmundur
Jóhannesson.
NØK (Nordisk Økonomisk Kvægavl) 2022
Dagana 24.-27. júlí sl. var 37. ráðstefna NØK (Nordisk Økonomisk
Kvægavl) haldin á Selfossi. NØK eru norræn samtök áhugamanna
um nautgriparækt í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð
en samtökin voru stofnuð þann 21. ágúst 1948 í Falkenberg í Svíþjóð.
LESENDARÝNI
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML)
og Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ)
héldu ráðunautafund 18.-19. ágúst sl. á
Hvanneyri.
Fundurinn var vel sóttur af sérfræðingum
beggja stofnana, en um 40 manns tóku þátt.
Haldin voru erindi um áherslur stofnananna og
um nokkur verkefni sem eru í gangi. Líflegar
umræður sköpuðust um framtíðartækifæri í
íslenskum landbúnaði og verður hér stiklað á
stóru um helstu niðurstöður fundarins.
Umræðurnar sneru að mestu leyti að fimm
áhersluatriðum sem undirbúningsnefndin
lagði fyrir fundarmenn: 1) Bútækni
framtíðarinnar – 4. iðnbyltinguna; 2)
Sjálfbærni – loftslagsmál; 3) Þýðingu
jarðræktar fyrir fæðuöryggi; 4) Búfjárrækt;
og 5) Afkomu bænda.
Bútækni framtíðarinnar – 4. iðnbyltingin
Fyrirséð er að miklar breytingar verða í
bútækni á næstu árum með aukinni tækni- og
sjálfvirknivæðingu, notkun gervigreindar og
nákvæmari og markvissari skráningum. Hér getur
bústærð í sumum tilfellum torveldað innleiðingu,
en í öðrum tilfellum getur tæknin auðveldað
rekstur smærri búa.
Girðingalaus beitarstýring og drónanotkun
er þegar farin að ryðja sér til rúms, sem og betri
nýting ýmissa mælinga. Bútækni framtíðar mun
tengjast loftslagsmálum með beinum hætti og
hér þarf að huga að fjárhagslegum hvötum.
Orkuskipti verður stór þáttur og brýnt er að við
finnum leiðir til orkusparnaðar og aukum notkun
innlendra orkugjafa.
Sjálfbærni - loftslagsmál
Ríkisstjórnin leggur mikla áherslu á framtíð
landbúnaðar, sjálfbærni og loftslagsmál. Íslenskur
landbúnaður á að vera kolefnishlutlaus fyrir árið
2040. Það eru flestir sammála um að Ísland á hér
gríðarleg tækifæri, en til að ná tilætluðum árangri
þarf að vinna eftir skýrri aðgerðaáætlun og tryggja
fjármuni. Stóru þættirnir hér liggja í landnýtingu,
orkuskiptum, bættri nýtingu næringarefna, bættri
fóðrun, en einnig nýjum framleiðsluaðferðum og
jafnvel framleiðslu nýrra afurða.
Mótvægisaðgerðir, s.s. skógrækt, landgræðsla
og endurheimt, spila einnig stórt hlutverk og
þar þarf að styðja við rannsóknir og tilraunir í
auknum mæli.
Þýðing jarðræktar fyrir fæðuöryggi
Mikil umræða hefur verið að undanförnu um
þýðingu jarðræktar og möguleika til stóraukinnar
framleiðslu hérlendis. Hér þarf að auka
rannsóknir og ráðgjöf og tryggja fjármuni til að
bæta kynbótastarf. Áhugi er á því að koma upp
kornsamlagi til að einfalda bændum að auka
framleiðsluna. Í þessu samhengi þarf einnig að
huga að aukinni útiræktun og ylrækt þar sem
innlend orka er nýtt og í öllum tilfellum er um
að ræða vaxandi möguleika á fullvinnslu afurða
eftir því sem innlend framleiðsla eykst.
Búfjárrækt
Góður árangur í búfjárrækt byggir á öflugu
kynbótastarfi, góðum búskaparháttum og að
fylgst sé með hjörðinni. Sífellt þarf að fylgjast
með nýsköpun og tækninýjungum sem geta
skapað ný tækifæri í síbreytilegum heimi.
Markaðssetning, gæði og verð á íslenskum
afurðum er ein af lykilforsendum þess að ná
árangri til framtíðar.
Afkoma bænda
Á sama tíma og lögð er áhersla á landbúnað,
matvælaframleiðslu og fæðuöryggi í stefnu
stjórnvalda og umræðan sjaldan verið meiri um
að Íslendingar geti og eigi að framleiða meira af
hágæðamatvörum, eru margir bændur að hætta
framleiðslu víða um land.
Ástæðan er oft vegna slæmrar afkomu. Hér
þarf að bregðast við. Íslendingar þurfa að eiga
stefnu um þetta mikilvæga málefni til langs tíma,
þ.e. til nokkurra áratuga og tryggja þarf aukna
samvinnu aðila og að hvatar í kerfinu tryggi
góðan árangur.
Aukin samvinna
RML og LbhÍ munu standa saman í því að
efla samvinnu aðila og leggja áherslu á aukna
eftirfylgni með stefnu stjórnvalda og að sett
verði stefna til lengri tíma. Tryggja þarf skýra
aðgerðaáætlun og fjárfestingar sem varðar
leiðina að settu marki. Hraða þarf enn frekar
orkuskiptum í greininni samhliða aukinni tækni-
og sjálfvirknivæðingu. Tryggja þarf umbun til
bænda sem gera vel í loftslagsmálum. Huga þarf
að breytingum í neysluvenjum, hækkun verðs
á aðföngum, nýsköpun og nýjum tækifærum,
þróa áfram kennslu í landbúnaðarfræðum miðað
við nýjar áskoranir, efla alþjóðlegt samstarf og
aðlagast þeim breytingum sem eru að verða.
Landbúnaður varðar umhverfi, samfélag
og efnahag okkar, skilvirk og trygg
matvælaframleiðsla er þjóðaröryggismál
og greinin þarf að hafa stöðu sem slík.
Fundarmenn voru allir sammála um að
íslenskur landbúnaður hefur gríðarleg tækifæri
til framtíðar og nú þyrfti hugrekki og nýja
hugsun til að skapa og grípa þau.
Að loknum fundi var Spildudagur RML
og LbhÍ haldinn í Jarðræktarmiðstöðinni á
Hvanneyri og tilraunareitir skoðaðir.
Sérlega ánægjulegt var hversu góð þátttakan
var og komu bændur og sérfræðingar víða
að. Þökkum við kærlega fyrir góðar viðtökur
og hlökkum til þess að auka enn frekar
samstarf aðila.
Ráðunautafundur 2022
Karvel L. Karvelsson, framkvæmdastjóri RML, og Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor LbhÍ.