Bændablaðið - 25.08.2022, Qupperneq 29

Bændablaðið - 25.08.2022, Qupperneq 29
29Bændablaðið | Fimmtudagur 25. ágúst 2022 Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - 551-5464 www.wendel.is - wendel@wendel.is HILLTIP VETRARBÚNAÐUR ____________________ SNJÓTENNUR, FJÖLPLÓGAR, SALT - OG SANDDREIFARAR KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is HAGKVÆM DEKK FYRIR ALVÖRU KRÖFUR Þegar velja skal vinnuvéla- og landbúnaðardekk skipta gæði, ending og áreiðanleiki höfuðmáli. Maxam dekkin eru hagkvæmur kostur og hafa reynst vel við krefjandi aðstæður. Gerðu kröfur - hafðu samband við sölumenn okkar í síma 590 5280 og kynntu þér kosti Maxam dekkjanna. Við Norðurlandsveg - 560 VarmahlíðSími: 453 8888 - Opið virka daga kl. 9-17 Fjárbætir Stein- og bætiefni Stórbaggagrindur Sendum um land allt! Allt fyrir sauðféð Ýmislegt áhugavert bar fyrir augum á Landbúnaðarsýningunni í Herning á Jótlandi um síðustu mánaðamót. Þar voru til sýnis fallegir gripir og áhugaverðar tækninýjungar til að létta bændum lífið og auka uppskeru. Það sem vakti mesta athygli blaðamanns Bændablaðsins á sýningunni var stór sjálfstýrandi landbúnaðarróbóti sem kallast Robotti og er hannaður og framleiddur af dönsku fyrirtæki sem kallast Agrointelli. Við fyrstu sýn virtist róbótinn fremur klunnalegur enda er hann 3,1 tonn að þyngd og 2,15 metrar að hæð, tæpir fimm metrar að lengd og breidd og með bil á milli hjóla stillanlegt frá 1,66 og upp í 3,65 metra. Við nánari skoðun kom í ljós að græjan var furðu lipur og snögg í snúningum og vegna hönnunarinnar á hjólabúnaðinum gat hún snúið við svo gott sem á punktinum. Díselmótorinn sem drífur róbótinn áfram er af gerðinni Kubota. Nýsköpun kjarninn Ole Green, stofnandi Agrointelli og aðalhönnuður Robotti liðléttingsins, sagði í samtali við Bændablaðið að mikil vinna og nýsköpun lægi að baki tækninni sem Robotti byggði á. „Helsti kostur róbótans er að hann er ódýr í rekstri, léttir bændum vinnu og dregur úr fjölda starfsmanna og því fjárhagslega hagkvæmur. Auk þess viðbótarbúnaðar sem við bjóðum í dag erum við meðal annars að hanna tækni sem staðsetur og mælir vöxt plantnanna og getur því gefið viðbótarskammt af áburði þar sem þess er þörf. Í dag eru 30 slíkir róbótar í notkun í nokkrum löndum og en sá síðasti seldist til Austurríkis.“ Tvær týpur í boði Robotti liðléttingana er hægt að fá í tveimur útgáfum, LR og 150D. Báðar týpurnar vinna í megindráttum eftir lögmáli lítilla slátturóbóta þar sem vinnusvæðið er afmarkað fyrirfram en auk þess má stjórna þeim með fjarstýringu. Báðar gerðirnar eru gerðar til að sá, reyta illgresi og úða á ökrum. Auk þess sem hægt er að fá fyrir þær aukabúnað eins og sláttuvél, jarðtætara, sæti til fólksflutninga og ýmislegt fleira. LR týpan er keyrð áfram af einum mótor en 150D er með tvo mótora og því öflugri og ætluð fyrir torfærara land. Afkastageta beggja er um 36 hektarar á dag. Að sögn Ole er fyrirtækið þegar komið með umboðsaðila víða um heim og fulltrúar þess alltaf tilbúnir að tala við þá sem hafa áhuga á upplýsingum um tækið. /VH Landbúnaðarsýningin í Herning: Landbúnaðarróbóti Ole Green, stofnandi Agrointelli. Sáning með Robotti landbúnaðarróbótanum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.