Íslenzk fyndni - 01.06.1957, Page 34
32
74-
JtJLlUS I HVASSAFELLI hafði verið með Mykle-
stad kláðalækni og lært hjá honum að þekkja fjár-
kláða.
Einu sinni var hann að segja frá því, að þeir hefðu
verið að skoða kláðamaur með stækkunargleri, og
mælti:
„Fjnrst skoðuðum við maurinn í minna glerinu, og
hann varð gríðarlega stór. Svo skoðuðum við hann í
stærra glerinu, en það þoldi hann ekki. Hann sprakk“.
75-
§TEFÁN Á LITLAHÓLI vildi gefa dreng, sem hann
hélt mikið upp á, fermingargjöf. Gekk hann í húðir
á Akureyri og spurði:
„Fást hér beizlisstengur handa fermingardrengjum?“
76.
(^UÐRUN KOLBEINSDÓTTIR, kona Eiríks Vigfús-
sonar bónda á Reykjum á Skeiðum, var gáfukona og
hnyttin í tilsvörum.
Prestur hennar var um skeið Sigurður ögmundsson.
Hann þótti lélegur kennimaður.
Einu sinni kom Guðrún til kirkju í slæmu veðri, og
lét þá einhver í ljós undrun sína yfir því, að hún
skyldi sækja kirkju í slíku veðri.
Þá segir sr. Sigurður:
„Já, Guðrún lætur sig aldrei vanta í kirkju“.