Skessuhorn


Skessuhorn - 17.08.2022, Síða 1

Skessuhorn - 17.08.2022, Síða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 33. tbl. 25. árg. 17. ágúst 2022 - kr. 950 í lausasölu Ert þú í áskrift? Sími 433 5500 www.skessuhorn.is 699 3444 molby@fastlind.is Löggiltur fasteignasali ÁRALÖNG ÞEKKING OG REYNSLA AF FASTEIGNAMARKAÐI Á VESTURLANDI BOGI MOLBY Allir kaupendur og seljendur fá Vildarkort Lindar hjá fjölmörgum fyrirtækjum sem veitir 30% afslátt Þinn árangur Arion Það getur verið vandaverk að flytja listaverk, en í þessu tilfelli tókst það giftusamlega. Hér er verið að koma fyrir á stéttinni framan við Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði nýju listaverki sem er skírskotun í undirstöður samfélaga á Snæfellsnesi; sjávarútveg og landbúnað. Verkið var unnið af úkraínska listaparinu Olenu Sheptytiska og Mykola Kravets en þau eru nú búsett í Grundarfirði. Sjá nánar á bls. 19. Ljósm. tfk Óheimilt er að raska friðuðum húsum og mannvirkjum, spilla þeim eða breyta, rífa þau eða flytja úr stað nema með leyfi Minjastofn- unar Íslands. Samkvæmt lögum sem tóku gildi árið 2013 miðar friðun við hundrað ára aldur. Á samráðsgátt stjórnvalda má nú sjá tillögu um að endurskoða það ákvæði og miða friðun þess í stað við tiltekið ártal, sem enn á eftir að ákveða hvert verður. Allar byggingaleyfisskyldar framkvæmdir við hús og mannvirki sem náð hafa hundrað ára aldri þurfa leyfi Minjastofnunar sem einnig veitir styrki til viðgerða. Þetta miðast nú við árið 1922 eins og gefur að skilja. Mikið var hins vegar byggt á Íslandi á árunum sem þá fóru í hönd. Er því stutt í aldurs- friðun mikils fjölda bygginga og ekki gefið að þær hafi allar sérstakt verndargildi. Fjölmörg hús og mannvirki á Vesturlandi hafa gegnum árin notið styrkja frá Minjastofnun að undangenginni umsögn Húsafriðunarnefndar. Má sem dæmi nefna að í ár voru veittir styrkir til endurbóta á nokkrum kirkjum, svo sem Fitjakirkju í Skorradal og Rauðamelskirkju í Eyja- og Miklaholtshreppi. Einnig voru veittir myndarlegir styrkir til gamla skólahússins á Bifröst og Norska hússins í Stykkishólmi. Nefna má að friðunarákvæðið gildir einnig um innviði svo sem gaddavírsgirðingar í sveitum lands- ins og aukinheldur þess vegna er þörf á að yfirfara gildandi lög um menningarminjar. Umsagnar- frestur um lagabreytinguna er til 22. ágúst nk. og verða umsagnir birtar jafnóðum og þær berast í samráðsgátt stjórnvalda. gj Aldursfriðunarákvæði gamalla húsa endurskoðað Gamla skólahúsið á Bifröst er í hópi þeirra bygginga sem notið hafa styrks frá Minjastofnun.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.