Skessuhorn - 17.08.2022, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 202226
Pennagrein
Við á Íslandi erum heppin að hafa
þessi litlu snotru handverksbakarí
í flestum þorpum landsins þar sem
íbúar og aðrir gestir geta nálgast
vörur sem unnar eru frá grunni
á staðnum. Við í Geirabakaríi í
Borgarnesi erum einmitt eitt af
handverksbakaríum landsins.
Nær allt unnið frá
grunni í Geirabakaríi
Við vitum vel að hægt er að reka
bakaríin með mun meiri hagn-
aði og minni starfsmannaveltu ef
við bara verslum allar vörurnar
tilbúnar eða forbakaðar eins og
heildsölur eru að bjóða upp á. Sem
dæmi má nefna að hægt er að kaupa
steiktar frosnar pönnukökur, dón-
uts og vínarbrauð af þeim sem er
bara brotabrot af því sem hægt er
fá tilbúið erlendis frá. Það er tíma-
frekt að laga og baka vörurnar og
þar kemur launakostnaður sterkur
inn. Við þurfum að manna fleiri
stöður og gerum það vel hérna
í Geirabakaríi, við höfum verið
heppin að halda okkar fólki til
margra ára, sumarstarfsfólkið
vinnur um helgar á veturna og
svona rúllar þetta áfram ár eftir ár.
Við erum stolt af vörunum okkar
sem klárlega má sjá að eru hand-
verksvörur sem ekki eru fram-
leiddar með málbandi eða skornar
í jafnar stærðir í vélum erlendis.
Það sjá það flestir að handverks-
bakarí eru ekki samkeppnishæf við
til dæmis litlu bakaríin í stórmörk-
uðunum sem rúlla á forbökuðum
brauðum og bakkelsi, þar eru nær
tilbúnar vörur settar frosnar í ofn-
inn og búðin ylmar af nýbökuðum
brauðum og bakkelsi.
Stöndum vörð um
íslenska framleiðslu!
Við í Geirabakaríi erum stolt af
því að titla okkur handverksbak-
arí og viljum með þessari grein
koma því á framfæri að við gerum
allar vörur frá grunni að frátöldum
dónutshringjunum. Telja má allt
að 50 vörutegundir í búðinni á dag
og er ein vara af því sem við ekki
framleiðum frá grunni. Stöndum
vörð um íslaneska framleiðslu!
Jóhanna Erla Jónsdóttir
Höfundur er rekstrarstjóri
Geirabakarís í Borgarnesi.
Handverksbakarí - eða
erlent verksmiðjubakarí
Söngkonan Jóna Margrét Guð-
mundsdóttir gaf út sína fyrstu plötu
á dögunum og ber hún nafnið
Tímamót. Þegar Skessuhorn náði
tali af Jónu Margréti var hún í
kaffipásu í vinnunni en hún byrj-
aði í sumar að vinna í skautsmiðju
Norðuráls á Grundartanga. „Ég er
að vinna í Norðuráli, í skautsmiðj-
unni, og mér finnst það mjög
skemmtilegt. Síðustu 7-8 ár hef ég
verið að vinna sem þjónn á sumrin
og nú langaði mig bara aðeins að
breyta til. Ég byrjaði sem sumar-
starfsmaður en ég ætla að vera hér
alveg fram að áramótum, þá fer ég
til Danmerkur í söngnám.“ Jóna
Margrét mun taka þriggja mánaða
söngprógram við danska skólann
Complete Vocal Institute. „Þar er
ég í rauninni að fara að læra um allt
sem gerist í líkamanum þegar þú ert
að syngja og hvernig þú getur beitt
röddinni betur þegar þú syngur.“
Skipstjóri eða söngkona
Jóna Margrét býr á Akranesi hjá
foreldrum sínum og verður þar
þangað til hún fer út til Danmerkur.
Hún er nemi á tónlistarbraut við
Menntaskólann á Akureyri og
núna í haust ætlar hún að klára síð-
ustu önnina í fjarnámi með vinnu
og mun þá útskrifast þaðan í des-
ember. „Sko, ég var í MA á raun-
greinabraut því ég ætlaði að verða
skipstjóri og var mjög áhugasöm
um það. En svo breyttist það bara
þegar ég kom í MA því það voru
svo mörg skemmtileg tækifæri í
skólanum. Þar er leiklistar- og tón-
listarfélag og það kveikti rosalegan
áhuga hjá mér þannig ég fór að
spyrjast fyrir hvort það væri hægt
að útskrifast á stúdentsbraut í tón-
list í MA og það kom í ljós að það
var bara vel hægt. Ég kláraði sem
sagt allan grunn á raungreinabraut
og tók svo alla auka áfanga á tón-
listarbraut. Núna á ég eftir að klára
einn áfanga í tónfræði og útskrifast
svo um jólin.“
Alltaf syngjandi
Dalirnir eiga stóran hlut í hjarta
Jónu Margrétar, hún flutti þangað
þegar hún var í 6. bekk í grunn-
skóla og lauk grunnskólagöngunni
þar. Hún segir að þar hafi verið
lagður hornsteinninn að hennar
tónlistarferli og þar lærði hún að
koma fram. „Mamma segir að ég
hafi byrjað að syngja áður en ég
lærði að tala og ég hef einhvern
veginn alltaf verið syngjandi. Það
hefur verið draumur frá því ég var
lítil að vera söngkona og geta lifað
á því. Það var samt ekki fyrr en ég
flutti í Búðardal að ég fór að æfa
söng og þar steig ég fyrst á svið.
Ólafur Rúnar Einarsson var söng-
kennarinn minn í Búðardal og
hann hjálpaði mér ótrúlega mikið
og fékk mig til að þora að syngja
fyrir framan aðra. Svo sagði hann
mér til og sýndi mér hvernig ég
átti að passa upp á raddböndin og
fleira. Hann gaf mér í raun mjög
dýrmæt verkfæri sem ég nýti mér
enn í dag.“
Tímamót
Platan Tímamót kom út 12. ágúst
og hafði þá verið í smíðum í tvö
ár. Platan inniheldur níu lög sem
öll eru samin af Jónu Margréti
sjálfri en með góðri aðstoð vina
Jóna Margrét gefur út plötuna Tímamót
og vandamanna. „Það koma mjög
margir að þessari plötu og ég ætla
ekki að taka heiðurinn af henni
allri sjálf,“ segir Jóna og nefnir
í kjölfarið að hún hafi haft mjög
góða pródúsera sem hjálpuðu
henni að útsetja lögin og mamma
hennar og aðrir vinir hafi hjálpað
henni með textagerð og lagasmíð.
En af hverju að gefa út plötu?
„Það var eiginlega bara hluti af
skólaverkefni. Á tónlistarbrautinni
fáum við mikið að velja verkefni
sem við gerum; sumir gera tónlist
í bíómyndir og aðrir gera nótna-
bækur. Mig langaði að gera plötu
þar sem eru fjölbreytt lög og ég fæ
að prófa alls konar; mismunandi
tilfinningar og mismunandi tón-
listarsnið og tónlistarstíl. Í þessu
ferli komst ég líka að því að ég
geri ekki bara eina tegund af tón-
list heldur ræður tilfinningin svo-
lítið því sem ég geri hverju sinni.
Á plötunni er allt frá ballöðu yfir í
grjóthart klúbbalag.“
Uppáhaldslag Jónu Margrétar
á plötunni er lagið Skák og mát.
„Það fjallar um togstreituna í
ástar sambandi sem er að verða
komið á endastað, þar sem báðir
einstaklingar eru að reyna að láta
sambandið ganga en maður veit
innst inni að það er ekki að fara að
ganga.“
Brennur fyrir söng-
og leiklist
Hver eru framtíðarplön Jónu Mar-
grétar? „Draumurinn er að fara
til Danmerkur í söngskólann og
koma svo heim og sækja um í LHÍ
á leikara braut og svo bara halda
áfram í þessu. Ég ætla að flytja
suður og ég er með aðgang að stúd-
íói þar svo þar mun ég bara skrifa og
semja og halda áfram. Ég mun bara
pakka mér inn í tónlist og leiklist.“
Jóna Margrét segist hafa valið
leiklistarnám í LHÍ því hún getur
ekki ákveðið hvort hún vilji verða
leikari eða söngvari. „Ég ætla að
byrja á söngnáminu því það er gott
að hafa það á ferilskránni því það
getur verið erfitt að komast inn á
leiklistarbrautina. En það skemmti-
legasta sem ég geri er að leika og
vera í söngleikjum og ég brenn fyrir
því.“
Föstudaginn 26. ágúst nk. mun
Jóna Margrét koma fram á Vín-
landssetrinu í Búðardal. Hún stígur
á svið klukkan 21:00 og flytur lög af
nýútgefinni plötu sinni, Tímamót.
gbþ/ Ljósm. aðsendar
Platan Tímamót.
Útgáfutónleikar á Græna hattinum.
Útgáfutónleikar á Græna hattinum.