Skessuhorn - 17.08.2022, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2022 21
Sturluhátíð, tileinkuð Sturlu
Þórðarsyni sagnaritara, var haldin
um síðustu helgi, eftir tveggja
ára hlé. Hófst hún á göngu um
Staðar hól í Saurbæ, þar sem forn-
leifafræðingarnir Guðrún Alda
Gísladóttir og Birna Lárusdóttir
sögðu frá þeim rannsóknum sem
unnar hafa verið á staðnum. Um
110 manns tóku þátt í göngunni,
sem er langt fram yfir væntingar
skipuleggjara, en Sturlufélagið
hélt hátíðina.
Hvatamaður að bæði hátíð og
félagi á sínum tíma var Svavar
Gestsson heitinn, fyrrverandi
ráðherra og sendiherra. Hans
var minnst í dagskrá sem var í
Tjarnarlundi. Vel á annað hund-
rað manns mætti, fullsetið í sal og
talsvert af fólki í hliðarsal. Einar K
Guðfinnsson, fyrrverandi ráherra
og formaður Sturlufélagsins setti
hátíðina og minntist Svavars,
en sagði einnig frá þeim fram-
kvæmdum sem farið hafa fram á
Staðarhóli og frekari áformum,
m.a. um uppbyggingu áfanga-
staðar, þar sem hægt er að ganga
um hlaðið, fræðast um Sturlu með
lesefni á skiltum og njóta útsýnis-
ins í þessari fallegu sveit.
Eftir erindi Einars sagði Guðrún
Alda Gísladóttir stuttlega frá rann-
sóknunum á Staðarhóli fyrir þá
sem ekki tóku þátt í göngunni, en
að því loknu ræddi Einar Kárason
rithöfundur um sagnir og sagnastíl
Sturlu og nýjustu rannsóknir og
kenningar um höfunda Íslendinga-
sagnanna. Ungt tónlistarfólk spil-
aði nokkur lög í upphafi og lok
viðburðarins, barnabörn Svavars
Gestssonar; þau Una Torfadóttir
sem söng og lék á gítar og Tumi
Torfason sem lék á trompet.
Sturlufélagið bauð upp á kaffi
og kleinur í hléi og hélt síðan
aðalfund sinn að hátíð lokinni,
þar sem boðin voru velkomin í
stjórnina nýir meðlimir, þau Guð-
rún Ágústsdóttir ekkja Svavars og
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitar-
stjóri. Fyrir í stjórn eru Einar K
Guðfinnsson, Guðrún Nordal,
Bergur Þorgeirsson, Einar Kára-
son og Bjarnheiður Jóhannsdóttir.
bj/ Ljósm. ekg.
Landbúnaðarháskóli Íslands og sjö
aðrir samstarfsháskólar í Evrópu
hlutu nýverið styrk frá Erasmus+
áætlun Evrópusambandsins að
upphæð 6,83 milljónir evrur, eða
um 960 milljónir íslenskra króna,
til samstarfsnetsins UNIGreen
(The Green European University).
Hinir háskólarnir eru Háskólinn í
Almeria á Spáni sem stýrir verk-
efninu, Landbúnaðarháskólinn
í Plovdiv í Búlgaríu, Tæknihá-
skólinn í Coimbra í Portúgal,
Paris Sup’Biotech í Frakklandi,
Háskólinn í Modena og Reggio
Emilia á Ítalíu, Háskólinn í Varsjá
í Póllandi og Háskólinn í Liege í
Belgíu.
Undirbúningur að verkefnis-
umsókninni hefur staðið yfir í
nokkuð langan tíma og í febrúar
sl. komu fulltrúar allra háskólanna
saman í Brussel þar sem undirrit-
aður var samningur milli háskól-
anna um aukið samstarf á sviði
landbúnaðar, lífvísinda og líftækni.
Evrópsk háskólanet
Frá því á Gautataborgarfundinum
2017 hefur Evrópusambandið
lagt áherslu á að efla samstarf
æðri menntastofnana í Evrópu.
Evrópskum háskólanetum er ætlað
að tengja saman háskóla í ólíkum
löndum álfunnar og efla samstarf
á sviði menntunar, rannsókna og
nýsköpunar. Markmiðið er að þróa
nýjar leiðir fyrir kerfisbundið og
langvarandi samstarf sem nær bæði
þvert á landamæri og námsgreinar.
Alls var 272 milljónum evra veitt
til háskólanetanna að þessu sinni
og hefur upphæðin aldrei verið
hærri. Netin ná til 340 háskóla í 31
landi. Áður hefur Háskóli Íslands
hlotið styrk vegna Aurora Alliance
samstarfsnetsins. Landbúnaðar-
háskóli Íslands er því annar íslenski
háskólinn sem sameinast evrópska
háskólanetinu.
Efla á menntun,
rannsóknir, nýsköpun
og fleira
Fram kemur í tilkynningu frá LbhÍ
að þátttaka í samstarfsneti auki
möguleikana á fjármögnun alþjóð-
legra rannsókna- og nýsköpunar-
verkefna og að koma upp og
samnýta aðstöðu. „Samhliða á
einnig að efla samstarf um nám
og kennslu. Þannig opnast nýir
möguleikar fyrir kennara og nem-
endur háskólanna sem fá aukið
úrval námskeiða, með aðstoð fjar-
tækni þegar því verður við komið.
Samstarfið leggur einnig áherslu
á að auka gæði háskólastarfsins
og styðja við stjórnsýslu háskól-
anna. Þá mun UNIGreen stuðla
að auknu samstarfi við atvinnulífið
meðal annars með starfsþjálfun,
nýjum þverfaglegum verkefnum
og áherslu á samlegðaráhrif og
þekkingar yfirfærslu.“ mm
Síðastliðinn föstudag var síðasti
dagur Vinnuskólans á Akranesi
þetta sumarið enda skólar brátt að
hefja vetrarstarfið. Af því tilefni
var sprell og grill í skógræktinni sl.
föstudagsmorgun eins og meðfylgj-
andi myndir bera með sér, en þær
sendi Jón Arnar Sverrisson garð-
yrkjustjóri Skessuhorni.
mm
Fulltrúar þeirra átta menntastofnana sem hljóta styrkinn.
LbhÍ og samstarfsskólar
hljóta myndarlegan styrk
Starfslok vinnuskólans
á Akranesi
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Húsfyllir á Sturluhátíð í Saurbæ
Fjölmenni var í Sögugöngu um Staðarhól í Saurbæ.
Húsfyllir á Sturluhátíð í Saurbæ
Una Torfadóttir og Tumi Torfason léku fyrir gesti Sturluhátíðar bæði frumsamin
lög og lög annarra.