Skessuhorn


Skessuhorn - 17.08.2022, Qupperneq 19

Skessuhorn - 17.08.2022, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2022 19 Laugardaginn 27. ágúst kl. 15 verður kveðjusamsæti í Félagsheimi linu Þinghamri í Stafholtstungum þar sem Guðmundur Finnsson, hús- vörður til fjörutíu ára, lætur af störfum eftir farsælan feril. Það eru sveitungar sem ætla þar að kveðja Guðmund. Hann hefur stokkið til við ýmislegt kvabb í gegnum árin og vilja þeir þakka fyrir liðleg- heitin. Þetta tækifæri verður einnig nýtt til að fara yfir sögu Þingham- ars. Fyrir fórst að vígja félags- heimilið á sínum tíma en fimmtíu ár eru síðan bygging þess hófst og fjörutíu ár síðan það var fullbyggt og tekið í notkun. Af þessu tilefni kemur Helgi Bjarnason frá Lauga- landi og fer yfir sögu Þinghamars. Kvenfélag Stafholtstungna, Björg- unarsveitin Heiðar, Ungmennafé- lag Stafholtstungna, leikdeildin og húsnefnd Þinghamars standa að kaffisamsætinu og bjóða íbúum til kveðjustundar húsvarðar. -fréttatilkynning Norðurlandameistaramótinu í eldsmíði lauk á Safnasvæðinu í Görðum á Akranesi síðdegis á sunnudaginn með úrslitum og verðlaunaafhendingu. Keppt var í þremur flokkum á mótinu, skipt eftir getu og þekkingarstigi. Keppt var í byrjenda,- sveina- og meist- araflokki og tóku alls 15 kepp- endur þátt frá fimm þjóðum; Íslandi, Noregi, Svíþjóð, Finn- landi og Danmörku. Eldsmíði er ein elsta iðngreinin sem enn er stunduð, þótt í smáum stíl sé sem handverk. Rekja má gömul orða- tiltæki á borð við „hamra skal járnið meðan það er heitt,“ til eld- smíðinnar og ekki síður þegar sagt er að „eitthvað sé í deiglunni“. Í byrjendaflokki var keppt á föstu- dag, í sveinaflokki á laugardeg- inum en keppni í meistaraflokki fór fram á sunnudag. Þá var slegið upp liðakeppni á laugardeginum, sem aukagrein á mótinu. Fjöl- margir gestir gerðu sér ferð að Görðum af þessu tilefni og var stöðugt rennerí af fólki alla móts- dagana. Um þúsund gestir komu við að sögn Önnu Leif Elídóttur sem sá um samskipti eldsmíðafé- lagsins við fjölmiðla. Ankerissmíð var þema keppn- innar að þessu sinni í öllum styrk- leikaflokkum. Úrslit urðu þau að í byrjendaflokki varð Sören Hammer frá Danmörku þriðji, Nestori Widenoja frá Finnlandi annar en Svíinn Magnús Nil- son bar sigur úr býtum. Í sveina- flokki varð Emil Lindqvist Svíþjóð þriðji, Daninn Kasper Reinholdt annar, en sigurvegari varð Finn- inn Sami Niinilampi. Mest spenna var fyrir úrslitum í meistaraflokki. Beate Stormo frá Kristnesi í Eyja- firði var keppandi fyrir Íslands hönd og önnur af tveimur konum sem tóku þátt að þessu sinni. Hún var ríkjandi Norðurlandameistari og hafði því titil að verja. Smíði hennar fór þó ekki eins og hún hafði vonað, en hún hreppti engu að síður þriðja sætið í keppninni fyrir ankeri sitt. Í öðru sæti varð Mikael Wunderlich frá Noregi. Nýr Norðurlandameistari í eld- smíði er Svíinn Mathias Wilson. Norðurlandakeppnin í eldsmíði var síðast haldin á Akranesi árið 2013, en þá var þemað að hanna og smíða stóla, en nokkra smíðis- gripi síðan þá má sjá á meðfylgj- andi mynd. Áætlað er að næsta Norðurlandamót fari fram í Dan- mörku eftir tvö ár. Í tilkynningu frá Íslenska eldsmiðafélaginu segir að; „Hið forna handverk, sem þróað var á járnöld, lifi enn góðu lífi.“ Það var Guðmundur Sigurðsson á Akranesi, formaður Íslenskra eld- miða, sem stýrði mótinu. mm Á stéttinni framan við Fjölbrauta- skóla Snæfellinga í Grundarfirði er nú búið að koma fyrir glæsilegu listaverki. Verkið er skírskotun í undirstöður samfélaga á Snæfells- nesi; sjávarútveg og landbúnað. Sjávarútvegur er og hefur verið megin undirstaða samfélaga á Nes- inu og á öldutoppunum við fiskinn, ganga kindur en á Jeratúni, þar sem skólinn stendur, voru alltaf kindur á beit á sumrin. Verkið var unnið af Olena Sheptytiska og Mykola Kravets sem eru úkraínskt lista- fólk sem búsett er í Grundarfirði. Þau hafa unnið við skúlptúragerð og skreytingar í áratug en hægt er að skoða verk þeirra á vefsíðunni https://dyvyna.com.ua en þar er margt skemmtilegt að skoða. Verkið á vafalaust eftir að vekja mikla athygli vegfarenda enda setur það skemmtilegan svip hvar það stendur við framhlið skólans. tfk Guðmundur Finnsson fyrir framan Þinghamar þar sem hann hefur sinnt starfi húsvarðar sl. 40 ár. Ljósm. Skessuhorn/sþ Kveðjuhóf fyrirhugað í Þinghamri Starfsmenn FSN og listamennirnir stilltu sér upp við verkið þegar það var komið á sinn stað. Nýtt listaverk afhjúpað hjá Fjölbrautaskóla Snæfellinga Hlutirnir sem urðu til í keppninni voru margir listavel unnir. Hér er eitt af ankerum sem framleitt var af byrjanda í keppninni og hafnaði í öðru sæti. Eldsmiðurinn er Finninn Nestori Widenoja. Mathias Wilson nýr Norðurlandameistari í eldsmíði Þau skipuðu þrjú efstu sætin í sínum flokki. Fremst sitja meistararnir, Mathias Wilson fyrir miðju. Allir halda keppendurnir á smíðisgripum sínum og verðlauna- skjölum. Andreas Oster var fulltrúi Dana í meistaradeildinni. Hér er hann langt kominn með sitt ankeri. Gestir gátu skoðað smíðisgripina. Á jörðinni framan við borðið eru stólar sem gerðir voru á Norðurlandameistaramótinu árið 2013. Hinn sænski Mathias Wilson, nýkrýndur Norðurlanda- meistari. Þeir Guðmundur Örn, Ingvar og Guðmundur slógu saman í lið og tóku þátt í liðakeppni á laugardaginn þar sem þemað var hestar. Flestir smíðisgripir voru fagurskapaðir hestshausar, en þeir félagar ákváðu að smíða afturenda af hesti, einskonar beislissnaga. Ljósm. ÍE.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.