Heilbrigðisskýrslur - 08.12.1982, Blaðsíða 5
F O R M Á L I
Það mun hafa veriö með þjóðhátíðarávarpi forsætisráðherra sumarið
1981 að umræður fóru að aukast um nauðsyn nýrra aðgerða í ávana- og
fikniefnamálum á íslandi. í lok þess árs var Landlæknisembættinu
falið að safna saman vitneskju um það hve víðtækt þetta vartdamál
væri hérlendis. Var þegar hafist handa og hafa tveir til þrir tugir
sérfróðra aðila lagt til efnivió í þá skýrslu sem hér birtist.
Ekki er vitað um að áður hafi verið reynt að safna á einn stað svo
margþættum upplýsingum um ástand þessara mála á íslandi. Kemur i
ljós að á undanförnum árum hafa verið gerðar all ýtarlegar kannanir
á neyslu áfengis, tóbaks, fikniefna og ávanalyfja, en tilviljun
virðist oft hafa ráðið þvi hvenær og hvernig að þessum könnunum
hefur verið staðið. Engu að siður eru þær mjög mikilvægar þar sem
þekking á ástandinu á hverjum tima og þróun þess hlýtur að vera
forsenda þess að stjórnvöld geti gripið til úrræða.
Ekki er um það alger samstaða lærðra og leikra hvaða úrræði eru
vænlegust til árangurs. Þrátt fyrir þetta liggja nú fyrir að mati
undirritaðs nægjanlegar upplýsingar til þess að hægt sé að taka
ákvörðun um aðgérðir.
Ljóst má þó vera aö úrbætur byggjast ekki eingöngu á aðgerðum heil-
brigðisyfirvalda. Samstarf við heilbrigðisstéttir, sérstaklega
skólalækna og skólahjúkrunarfræðinga, svo og við fræðsluyfirvöld,
skólastjóra, kennara, samtök foreldra og unglinga er veigamikið.
Árangur aðgerða stendur og fellur með því hvernig til tekst með
þetta samstarf. Þá má minna á að almenn fræðslustarfsemi um heil-
brigðismál þarf að eiga greiða leið í gegnum rikisfjölmiðla, en
fram að þessu höfum við verið eftirbátar nágrannaþjóða á þessu
sviói.
Mikilvægt er aó stjórnvöld setji sér ákveðin markmið á þessu sviöi
og geri áætlanir um hvernig megi ná þeim.
Aö því er varðar tóbak virðist rökréttast aö banna innflutning og
sölu þess. Hitt er svo annað mál að það er varla raunhæft fyrirvara-
laust. Þess vegna verður að vinna markvisst að því að draga úr
tóbaksneyslu með takmörkunum á reykingum, háu verói tóbaksvarnings,
upplýsingum og áróðri.
Að því er varðar áfengi er rétt aó fylgja ábendingum Alþjóða heil-
brigðisstofnunarinnar um hömlur á sölu o. fl.
Aó því er varðar fíkniefni verður aö efla allt viðnám í landinu,
auka toilgæslu og löggæslu, og slaka í engu á þeim viðurlögum sem
nú er beitt.
Aö því er varðar ávanalyfin virðist minnst þörf úrbóta, þar eð
aðgerðir undanfarin ár hafa skilað miklum árangri .
Reykjavík, 26, nóvember 1982.
/ r
Ólafur Ólafsson, landlæknir.