Heilbrigðisskýrslur - 08.12.1982, Page 9
hingað til mest byggst á smygli, en litill vafi er á því að ólög-
leg ræktun kannabisplantna fer vaxandi innanlands. Tiltölulega
stutt er síðan kannabisefni héldu innreió sína til Vesturlanda.
Venjulega líöa nokkur misseri frá því aó fólk byrjar reglulega
neyslu kannabisefnis þar til heilsutjón kemur í ljós. Ýmsir hafa
því álitið að efnið væri hættulaust. Nú er flestum ljóst að kanna-
bis er hættulegt heilsu manna, og hafa m.a. sérfræóingar Alþjóóa
heilbrigóisstofnunarinnar komist að þeirri niðurstöðu.
1.5. SNIFF
Ekki viróist vera um aó ræða aukningu á misnotkun lífrænna leysi-
efna hér á landi. Notkun þessara efna i vímuskyni virðist vera
bundin við 13-15 ára unglinga, sem í allflestum tilfellum vaxa upp
úr þessu fikti. Hörmulegar undantekningar eru þó til þegar eitran-
ir hafa valdið verulegu heilsutjóni.
1.6. KÓKAlN 0.FL.
Um neyslu annarra fíkniefna, svo sem heróins, morfins, kókains,
LSD og englaryks, er litið vitaó meó vissu, en notkun þeirra viró-
ist ekki almenn- meðal unglinga á Islandi.
1.7. LYF
Lögleg sala vanabindandi lyfja, örvandi lyfja, svefnlyfja og
róandi lyfja var fyrir 8-10 árum einna mest hér á landi af Noróur-
löndunum. Þessi sala hefur minnkað verulega á siðustu árum og er
nú minni en almennt gerist i nágrannalöndunum. Samtimis hefur sala
áfengis hins vegar aukist nokkuð.
1.8. AÐGERÐIR
Frá ómunatið hefur notkun vimuefna verið einn af fylgikvillum
mannlegs samfélags. Áfengisneysla fer vaxandi vióa um heim. Sterk
tengsl eru á milli heildarneyslu áfengis og tjóns af völdum
neyslunnar. Meö þvi að draga úr neyslu áfengis má þvi minnka þaö
heilsutjón sem áfengi veldur. Hversu æskilegt sem þaó kann að
vera að koma algerlega i veg fyrir notkun tóbaks og annarra
ávana- og vimuefna þá er ekki raunhæft aö starf allra næstu ára
hafi svo fjarlægt markmið. Stjórnvöld þurfa að setja sér mælanleg
og timasett markmió sem þau ætla sér að ná meó markvissum og vel
skipulögðum aógerðum. Aó þvi er varðar áfengi og tóbak þurfa a
aðgerðir að beinast að öllum eftirtöldum þáttum: Sölu og dreifingu,
verðlagningu, löggæslu og fræðslu.
Enda þótt allir vióurkenni að mikið og óhamlaö framboð á ólögleg-
um vimuefnum leiói til aukinnar neyslu virðist samt gleymast að
nákvæmlega sama gildir um áfengi og tóbak. Fjöldi útsölustaða,
sölutimi og verólagning hafa áhrif á heildarneysluna. Er mjög
nauósynlegt að stjórnvöld nýti sér þessar staðreyndir i baráttunni
fyrir minni notkun áfengis og tóbaks. Varnir gegn hvers konar
smygli eða ólögmætri framleiðslu vimuefna ber að efla, m.a. meö
þvi aö bæta aðstöðu og mönnun löggæslu og tollgæslu.
9