Heilbrigðisskýrslur - 08.12.1982, Side 11
2.
Á F E N G I
2.1. NEYSLAN
2.1.1. Heildarneyslan
Til eru upplýsingar um skráða sölu áfengis á íslandi í heila öld.
Á árunum 1881-1885 var skráð meðalsala áfengis á íbúa 2,38 lítrar
af hreinum vinanda. Skráð héildarsala minnkaði fram til aldamóta
og náði lágmarki á bannárunum. Síðan hefur heildarsalan aukist
stöðugt og árið 1981 var skráð sala af hreinum vinanda 3,16 litrar
á ibúa.(32,50)
Heildarsalan hefur ekki aðeins aukist, heldur hefur hún breyst.
Fyrir hundrað árum var hlutur sterkra drykkja i sölunni 95%, en
var 70% árið 1981. Sala léttra vina hefur þvi aukist úr 5% af
heildarsölunni i 30%. Þrátt fyrir þessar breytingar einkennir
neysla sterkra drykkja áfengisneyslu íslendinga.
Nokkuð stöðug aukning var á sölu hreins vinanda á hvern ibúa frá
1960 til 1974, en siðan hafa breytingarnar verið litlar. Sala
brenndra vina hefur dregist saman' frá 1974 en mikil aukning hefur
orðið á sölu borðvina. Svipuð aukning hefur orðið á sölu heitra
vina, ef undan eru skilin tvö siðastliðin ár.
Ógerlegt er aó meta nákvæmlega það magn áfengra drykkja sem neytt
er. Fyrir hendi eru nákvæmar upplýsingar um áfengissölu ÁTVR,
Mynd 1: Áfengissala á íslandi 1881-1980. Litrar af hreinum vin-
anda, árlegt meðaltal á hvern ibúa. Neðri hluti hverrar
súlu táknar sterka drykki en efri hlutinn létt vin.
3,1
11