Heilbrigðisskýrslur - 08.12.1982, Side 31
5,8% í 2948 g árin 1971-75, en minnkaói um 2,1% í 2887 g síðustu
fimm ár (1976-80).
3.1.5. Tengsl tóbakssölu og kaupmáttar
Svo virðist sem sala tóbaks ráóist að verulegu leyti af efnahags-
ástandi, eins og sjá má á mynd 8. Ef kaupmáttur ráðstöfunartekna er
notaður sem visbending um efnahagsástand kemur i ljós að fylgni
ráóstöfunartekna og söl\omagns sigaretta á ibúa fyrir timabilið 1960
til 1981 er nánast alger eða tæplega 0,9.
3.2. NEYSLUKANNANIR
3.2.1. Reykingavenjur unglinga
Borgarlæknisembættið hefur gengist fyrir nokkrum könnunum á reyk-
ingavenjum barna og unglinga i skólum Reykjavikur. Árið 1959 fór
fram könnun á reykingavenjum unglinga á aldrinum 13 til 17 ára og
náði hún til um 2700 nemenda. Árið 1962 fór fram hliðstæð könnun
meðal 10 til 12 ára barna i stærstu skólum Reykjavikur og Sel-
tjarnarness og tóku um það bil 3800 börn þátt i henni. Arið 1974
var gerð enn á ný athugun á reykingavenjum nemenda og náði hún til
tæplega 10300 nemenda á aldrinum 9-17 ára (25). Næst siðasta könnun
var geró árið 1978 og náði til tæplega 7900 nemenda á aldursbilinu
10 til 16 ára (39).
Nýjasta könnunin var gerð i april 1982, og liggja fyrstu niðurstöð-
ur nú fyrir. Af 6374 nemendum á aldrinum frá 10 ára til 16 ára
sögðust 866 reykja, eða 13.6 af hundraði. Árið 1974 reyktu 23.4 af
hundraði á þessurn aldri og 17.2 af hundraði árið 1978. Hefur þvi
reykingamönnum i þessum aldurshópum fækkað um meira en fimmtung
(20.9%) siðustu fjögur árin, en um 42% frá 1974. Dregið hefur úr
daglegum reykingum i svipuðum mæli. Nú segjast 10.2% nemenda reykja
daglega, miðað við 12.3% fyrir fjórum árum og 16.4% fyrir átta árum.
Reykingar hafa minnkað hjá öllum árgöngum en þó mismunandi mikið.
Breytingin er mest hjá 11 og 12 ára nemendum, en á þeim aldri
reykja nú helmingi færri en áður. I 10 og 16 ára aldursflokkunum
hafa reykingar minnkað um fjórðung. Á sama hátt og 1974 og 1978
eru hlutfallslega skörpust skilin i reykingatiðninni þegar bornir
31