Rökkur - 15.05.1922, Side 7
53
Ráðið heilt.
Alt af skyldi “Áfram” vera
inst og dýpst í huga þér,
alt af láns er lýsigullið
lífs um brautir, hvar sem er,
að eins ef þú gripið getur
gæfuna, er hjá hún fer,
að eins ef þú, maður, metur,
metur rétt hvað býr í þér.
Kannske ertu að reyna að ráða
risagátur fyrir þér.
Eitt sinn var í sál mér svona,
svona löngun, því er ver.
En þó það væri seint eg sá,
að sjálfum var eg gáta mér
og mín insta, insta þrá
varð öll að ráða: Hvað mér ber!
Láttu prófessora pískra
og pára um lífsins gátur rit.
Á okkar sviði er nóg að nema,
notum til þess okkar vit.
Að herða sig og vinna og vilja
veitir Grettistökum frá
— og kannske gamla þulu að þylja,
þegar skella hretin á. (Troy, N. Y., ’ 19.)