Rökkur - 15.05.1922, Blaðsíða 37
83
að eins rósir, angandi rósir; rauðar og hvítar, rauð-
ar sem blóðið fagurrautt, hvítar sem snjórinn á jökl-
unum. Og þau áttu sér eina dóttur barna, og þá er
hún óx upp var hún fríð sýnum. Og allar rósirnar
hneigðu sig fyrir henni, þegar hún gekk um úti,
hneigðu sig og grétu af gleði. Þær grétu tærum
daggardropum ofan á litlu, hvítu fæturna hennar —
Og dagarnir liðu og árin liðu og lþau voru ham-
ingjusöm öll þrjú, því þau lifðu á meðal rósa. Og
litla dóttirin þeirra óx upp og varð há og fnð, með
ljósgult hár og blá augu. Og þau kölluðu hana
Sunnu, því Sunna þýðir sól — og Sunna, dóttirin
þeirra, var fögur sem sólin sjálf. Og Sunna varð
hærri með hverjum deginum sem leið og æ fríðari.
Iðulega gekk hún fram með firðinum og lét öldurn-
ar þvo fætur sína.
Og vindurinn lék sér að hárinu hennar Ijósa. Oft
sat hún á hamrinum og starði út á fjörðinn. Og söng-
ur marbendlanna barst að eyrum hennar. Sál henn-
ar fyltist unaði. Það var eins og hún vaggaði sér á
gullöldum fjarðarins. Og söngur hafsins kvað sí og
æ við í eyrum hennar, hvert sem hún fór. En á Jóns-
messunótt, þegar hún var réttra átján ára, sat hún
við hafið og hlustaði á niðinn í öldunum og á söng
marbendlanna. Og þegar sólin var hnigin til viðar,
kom til hennar unglingspiltur. Hann var hár vexti og
fríður sýnum, augun blá, djúp og hrein, eins og sjór-
inn fram undan hamrinum. Og hann settist við hlið
hennar, tók í hönd hennar og sagði: