Rökkur - 01.09.1929, Qupperneq 42
40
milli Danco-lands og vesturstrandar Grahams-
lands- og Palmer-eyjanna. Fundið og kannað
af Belgica-leiðangursmönnunum.
Belle-Alliance, búgarður í Suður-Brabant, viö
veginn frá Bruxelles til Genappe. Þjóðverjar
kalla oft Waterloo-orustuna (Waterloo er par
nokkru norðar) Belle-Alliance-orustuna.
Beneden, Pierre Joseph van (1809—94), fræg-
ur dýrafræðingur. Sonur hans, Edouard van
Beneden (1846—90) var prófessor í dýrafræði
og líffærafræði við háskólann í Liége.
Benoit, Peter (1834—1901), forstjóri músik-
konservatoríisins í Antwerpen. Af nafni hans
stendur hvað mestur ljómi í allri hljómlistar-
sögu Flæmingja. Hann var og frægur kom-
pónisti og skrifaði um hljómlistarsöguleg efni
á flæmsku.
Berchem, B.-lez-Anvers, á flæmsku Berghem,
ein af útjaðraborgum Antwerpen. Vigi. Ibúa-
tala 32 000. Gólfdúkaiðnaður, sterkjuframleiðsla
og tóbaksiðnaður.
Bergen, sjá Mons.
Bériot, Charles de (1802—70), fiðlusnillingur,
mjög frægur og vinsæll á sinni tið. Hann var
prófessor við konservatoríið í Bruxelles; kvænt-
ur söngkonunni Malibran-Garcia. Tónskáld gott.
Dó blindur.
Beveren, borg í Austur-Flanders við járn-
brautina milli Ghent og Antwerpen, íbúatala
9 10 000. Kniplingaiðnaður, leður, tréskór.
Bilsen, bær við ána Demer, ibúatala 3800.
Binche, bær í Hennegau (Hainault), við ána