Rökkur - 01.09.1929, Qupperneq 49

Rökkur - 01.09.1929, Qupperneq 49
47 um eftir Axel Thorsteinson, komu út 1928. Smásögur pessar hafa allar verið prentaöar áður í blöðum og tímarltum, og sumar oft, en það virðist hafa haft örvandi áhrif á sölu bókarinnar. Þar eð Rökkur getur ekki mælt með eða móti bók þessari frá eigin brjósti, verða hér til tínd nokkur blaða- og tímarita- ummæli um hana. „Ritverk A. Th. bera það öll með sér, að hann hefir næmt auga fyrir veilunum í þjóð- félaginu, að hann þekkir kjör smælingjanaa, skilur þau og hefir djúpa samúðartilfinningu með öllum þeim, er lægst standa í mannfélags- stiganum að auði og metorðum. Hann hefir og unun af því, að lýsa óbrotnum alþýðumönn- um, löngunum þeirra, sorgum þeirra og bar- áttu. Einna skýrast kemur þetta fram í hinní nýútkomnu bók hans, „1 leikslok“. I bókinni eru ellefu smásögur og gerast þær allar á styrjaldarárunum í herbúðum Bandamanna. Segja þær allar frá hörmungum þeim, er alls staðar mættu hermönnunum á leið þeirra, en inn í þær er fléttað frásögnum um smávægi- lega atburði, er skapa söguþráðinn og varpa ljósi yfir sálarlíf þessara manna, sem sendir eru á vjgstöðvarnar til þess að fremja bræðra- morð. Allar eru sögurnar dökkar, sem vonlegt er. Þó bregður fyrir í þeim birtu af nýjum degi: gleði hermannanna, kærleikurinn til ást- vinanna, þráin eftir heimilunum. Friðarþráin er sterkust. Sögur þær, er segja frá skelfingum

x

Rökkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.