Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Page 19

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Page 19
17 að aðstæður voru metnar svo að umræddar framkvæmdir væru í þágu almennings í skilningi ákvæðis dönsku stjórnarskrárinnar um vernd eignarréttar, enda þótt þær tengdust íþróttaiðkun sem eingöngu hluti fólks hefur áhuga á að stunda. Þá kom fram í fyrrgreindum úrskurði að það hefði ekki þýðingu fyrir lögmæti eignarnáms að hið eignarnumda svæði skyldi látið einkareknu fyrirtæki í té sem skyldi sjá um framkvæmdir, sbr. KFE 1996.132. 28 Sams konar sjónarmið má jafnframt sjá í íslenskri dómafram- kvæmd. Hér má nefna dóm Hæstaréttar frá 5. nóvember 2015 í máli nr. 173/2015 (Hestamannafélagið Funi) þar sem ágreiningur var um lögmæti eignar náms í því skyni að koma upp reiðstíg á landi í einkaeigu sem eðli málsins samkvæmt kom eingöngu takmörkuðum fjölda manna til nota. Um þetta sagði meðal annars í dómi Hæstaréttar: „Þótt slík þörf standi samkvæmt áðursögðu jafnframt til að stefnda geti orðið að þola frekari skerðingu á eignarréttindum sínum til að koma við reiðstíg um landið verður ekki horft fram hjá því að stígur af þeim toga kemur aðeins takmörkuðum fjölda manna að beinum notum og er að auki miðað hér við að hann yrði í eigu einkaaðila en hvorki ríkisins né sveitarfélags. Af þessu leiðir að ekki getur komið til álita að skerða eignarréttindi stefndu frekar en orðið er með því að taka undan jörð hennar land undir annað vegarstæði nema fullreynt sé að aðrir ásættanlegir kostir séu ekki tækir.“ [áherslubreyting höfunda] Skilja verður þetta með þeim hætti að mat á því hvort skilyrði 72. gr. stjórnarskrárinnar um að almenningsþörf krefji og að meðalhófs hafi verið gætt sé sérstaklega strangt þegar framkvæmd þjónar eingöngu hagsmunum afmarkaðs hóps manna, svo sem á við um reiðstíg eða aðstöðu til íþróttaiðkunar.29 Að sama skapi geta risið álitamál þess efnis hvort það standist að framkvæma eignarnám í þágu einkaaðila. Telja verður ótvírætt að svo sé, sbr. fyrrgreindan dóm Hæstaréttar frá 15. október 2015 í máli nr. 306/2015 28 Danska stjórnsýslunefndin hefur að ákveðnu leyti sambærilegt hlutverk og úrskurðar- nefnd umhverfis- og auðlindamála sem starfar á grundvelli laga nr. 130/2011. Nánari upplýsingar um nefndina og úrskurði hennar má finna á heimasíðunni. Heimild sótt 12. júní 2017. 29 Í danskri framkvæmd hefur einnig verið lögð áhersla á það skilyrði að framkvæmd þjóni samfélagslegum hagsmunum. Þá hefur verið bent á að við mat á því hvort eignarnám teljist nauðsynlegt geti verið þörf á því að bera saman þá almannahagsmuni, sem til grundvallar liggi, og hagsmuni viðkomandi eiganda af því að þurfa ekki að sæta eignarnámi. Þannig virðast til að mynda samfélagslegir hagsmunir sem tengjast eignarnámi vegna byggingar golfvallar takmarkaðri í samanburði við hagsmuni landeiganda af því að geta nýtt viðkomandi landsvæði áfram til landbúnaðar. Sjá nánar Hanne Mølbeck og Jens Flensborg: Ekspropriation i praksis, bls. 51.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.